Bæjarráð

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
1376. fundur 13. ágúst 2026 kl. 08:10 - 09:50 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Kristján Þór Kristjánsson formaður
  • Elísabet Samúelsdóttir varaformaður
  • Jónas Þór Birgisson aðalmaður
  • Svanfríður G Bergvinsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
  • Gylfi Ólafsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Smölun Fjallaskaga - 2026080022

Á 22. fundi fjallskilanefndar, sem haldinn var 10. ágúst 2026, var samþykkt aðgerðaráætlun vegna fjallskila á Fjallaskaga. Nefndin vísaði áætluninni til bæjarráðs til umfjöllunar í ljósi kostnaðar.
Bæjarráð samþykkir aðgerðaáætlun um smölun villifjár á Fjallaskaga og felur bæjarstjóra að finna fjármagn til smölunarinnar eða gera viðauka við fjárhagsáætlun eftir atvikum, þegar kostnaðaráætlun hefur verið uppfærð.
Smári Karlsson yfirgaf fund kl. 8:21.

Gestir

  • Smári Karlsson, verkefnastjóri - mæting: 08:10

2.Snjótroðari - Útboðinnkaup 2026 - 2026030307

Lagt er fram minnisblað Eyþórs Guðmundssonar, deildarstjóra umhverfis- og eignarsviðs, dags. 10. ágúst 2026, um niðurstöðu útboðs nr. 20264 vegna kaupa á snjótroðara fyrir skíðasvæði Ísafjarðarbæjar. Með málinu fylgja útboðsgögn, fyrirspurnir og svör á útboðstíma, kostnaðaráætlun útboðsins og mat tilboða ásamt lokaniðurstöðu umsjónarmanns. Í minnisblaðinu er lagt til að öllum innkomnum tilboðum verði hafnað og að veitt verði heimild til samningsgerðar á grundvelli 39. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup.
Bæjarráð hafnar öllum tilboðum þar sem ekkert gilt tilboð barst. Bæjarstjóra er veitt heimild til að ganga til samninga á grundvelli 39. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup vegna kaupa á snjótroðara fyrir skíðasvæði Ísafjarðarbæjar, og leggja samning fram til samþykktar.
Eyþór yfigaf fund kl. 8:33.

Gestir

  • Axel R. Överby, sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs - mæting: 08:22
  • Eyþór Guðmundsson, deildarstjóri - mæting: 08:22

3.Malbikun 2026 - Ísafjarðarbær - 2026030111

Á 1370. fundi bæjarráðs, þann 11. júní 2026, var lagt fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, Axel R. Överby, dags. 11. maí 2026, vegna malbiksframkvæmda ársins 2026. Bæjarráð samþykkti tillögu sviðsstjóra að næstu skrefum varðandi útboð á malbikun hjá Ísafjarðarbæ 2026, þ.e. beinu innkaupaferli í kjölfar höfnunar tilboða hjá Vegagerðinni. Bæjarstjóra var falið að leggja fram viðauka á næsta fundi bæjarráðs.

Á 1370. fundi bæjarráðs, þann 18. júní 2026, var lagður fram viðauki 9 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar til samþykktar, ásamt minnisblaði Axels R. Överby, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, dags. 16. júní 2026. Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er engin. Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 274.600.000.
Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 581.600.000. Var viðaukanum vísað til bæjarstjórnar til samþykktar sem samþykkti hann á 573. fundi sínum, samdægurs.

Er málið nú lagt aftur fram til umfjöllunar í bæjarráði vegna aukaverka og forgangsröðunar.
Farið yfir þau atriði þar sem þörf er á varðandi malbikun. Bæjarstjóra falið að vinna viðauka við fjárhagsáætlun fyrir næsta fund bæjarráðs.

4.Hauganes - Beiðni um lóðaúthlutun - 2026040101

Lögð fram til umfjöllunar drög að samningi um lóðaúthlutun vegna Hauganess, til Fjallabóls ehf.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að halda áfram viðræðum við forsvarsmenn Fjallabóls ehf. og vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.

5.Bygging verknámshúss við MÍ - framkvæmd Ísafjarðarbæjar - 2026080042

Lagt fram erindi Steinunnar Halldórsdóttur, f.h. Mennta- og barnamálaráðuneytisins, dags. 24. júlí 206, varðandi mögulega aðkomu Ísafjarðarbæjar að framkvæmd við byggingu verknámshúss.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
Axel yfirgaf fund kl. 9:24.

6.Kosningar - þjóðaratkvæðisgreiðsla ágúst 2026 - 2026060194

Formaður bæjarráðs leggur til við bæjarráð að kjósa neðangreinda aðila í undirkjörstjórnir Ísafjarðarbæjar, vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026:

I.-III. kjördeild Ísafjörður og Hnífsdalur:
15 aðalfulltrúar: Grímur Daníelsson, Eggert Stefánsson, Sturla Stígsson, Ragnhildur Ágústsdóttir, Salmar Már Salmarsson Hagalín, Gunnlaugur Finnbogason, Gunnar Ingi Kristjánsson, Helga Salóme Ingimarsdóttir, Rakel Sylvía Björnsdóttir, Vignir Örn Pálsson, Halla Sigrún Sveinbjörnsdóttir, Einar Bragi Guðmundsson, Guðbjörg Ebba Högnadóttir, Steinn Daníel Þrastarson, Helga Rebekka Stígsdóttir.
3 varafulltrúar: Matthildur Helgadóttir, Gísli Steinn Njálsson, Björn Davíðsson.

IV. kjördeild Suðureyri:
5 aðalfulltrúar: Svala Jónsdóttir, Þorleifur Sigurvinsson, Jóhannes Aðalbjörnsson, Vilborg Ása Bjarnadóttir, Steinar Skjaldarson.
2 varafulltrúar: Lilja Einarsdóttir, Valur S Valgeirsson.

V. kjördeild Flateyri:
5 aðalfulltrúar: Hrefna Erlinda Valdemarsdóttir, Margrét Gauja Magnúsdóttir, Hildur Sólmundsdóttir, Steinunn Ása Sigurðardóttir, Árný Inga Magnúsdóttir.

VI. kjördeild Þingeyri:
5 aðalfulltrúar: Bjarney Sólveig Snorradóttir, Hulda Hrönn Friðbertsdóttir, Hjörleifur Guðnason, Ásta Kristín Pjetursdóttir, Vaida Braziunaite.
5 varafulltrúar: Valdís Kristjánsdóttir, Ausra Kamarauskaite, Heiður Embla Elfarsdóttir, Hafsteinn Már Andersen, Elsa María Thompson.
Bæjarráð samþykkir tillögu formanns um kosningu í undirkjörstjórnir Ísafjarðarbæjar vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026.

Meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur fer bæjarráð með fullnaðarákvörðun mála, samkvæmt 8. gr. samþykktar um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.

7.Farsæld - innleiðing - 2026080041

Lagt fram til kynningar erindi Ernu Leu Bergsteinsdóttur, dags. 10. ágúst 2026, um stöðu innleiðingar farsældarlaga á Vestfjörðum.
Bæjarráð vísar málinu til kynningar í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd og velferðarnefnd.

8.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - Hvítbók um byggðamál - 2026010014

Á 1373. fundi bæjarráðs, þann 2. júlí 2026, var lagt fram erindi innviðaráðuneytisins, dags 19. júní 2026, "Hvítbók um byggðamál". Umsagnarfrestur er til og með 18. ágúst 2026. Jafnframt kom fram að á 1358. fundi bæjarráðs, þann 5. febrúar 2026, var umsagnarbeiðni innviðaráðuneytisins um "Grænbók um byggðamál", mál nr. 22/2026, lagt fyrir bæjarráð til kynningar. Bæjarráð frestaði málinu til næsta fundar.

Bæjarráð fól bæjarstjóra að vinna umsögn vegna málsins og leggja aftur fyrir bæjarráð til staðfestingar.

Er umsögn bæjarstjóra nú lögð fram til staðfestingar.
Bæjarráð samþykkir drög umsögn bæjarstjóra og felur honum að senda hana í Samráðsgátt eftir frekari yfirferð með fulltrúum.

9.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - skipulagsbreytingar lögreglunnar - 2026010014

Lögð fram til kynningar erindi dómsmálaráðuneytisins, dags. 21. júlí 2026, þar sem kynnt er til samráðs mál nr. 138/2026, "Áform um skipulagsbreytingar lögreglunnar". Umsagnarfrestur er til og með 18. ágúst 2026.
Bæjarstjóra falið að útbúa umsögn í samræmi við umræður á fundinum.

10.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 676 - 2607014F

Lögð fram til kynningar fundargerð 676. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 21. júlí 2026.

Fundargerðin er í 15 liðum.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 09:50.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?