Bæjarráð

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
1384. fundur 15. október 2026 kl. 08:10 - 09:30 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Kristján Þór Kristjánsson formaður
  • Elísabet Samúelsdóttir varaformaður
  • Jónas Þór Birgisson aðalmaður
  • Helgi Karl Guðmundsson varaáheyrnarfulltrúi
    Aðalmaður: Svanfríður G Bergvinsdóttir
Starfsmenn
  • Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
  • Gylfi Ólafsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Trúnaðarmál á velferðarsviði - 2026100114

Trúnaðarmál lagt fyrir bæjarráð.
Trúnaðarmál kynnt í bæjarráði.
Margrét yfirgaf fund kl. 8:30.

Gestir

  • Margrét Geirsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs - mæting: 08:10

2.Framkvæmdasjóður ferðamannastaða - umsóknir 2026 - 2026100117

Lagt fram erindi Sölva Guðmundssonar, f.h. Markaðsstofu Vestfjarða, dags. 6. október 2026, þar sem kynnt er að opið er fyrir umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða og er umsóknarfrestur til 27. október 2027, kl. 13.00.
Möguleg verkefni rædd. Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu og leggja aftur fyrir bæjarráð á næsta fundi.

Gestir

  • Eyþór Guðmundsson, deildarstjóri - mæting: 08:30

3.Almenningssamgöngur til og frá Ísafjarðarflugvelli - 2026090355

Á 1383. fundi bæjarráðs, þann 1. október 2026, var lögð fram til kynningar tilkynning frá Vegagerðinni, dags. 21. september 2026, þar sem fram kemur að þar sem aðeins eitt tilboð barst vegna útboðs á akstri leiðar 67, einnig þekkt sem flugrúta, sem var langt umfram kostnaðaráætlun, var tilboðinu hafnað.

Gerður hefur verið tímabundinn samningur við Vestfirskar Ævintýraferðir ehf. meðan unnið er að framtíðarútfærslu á þjónustunni. Leggurinn hefur því verið styttur og hefjast og enda ferðir því á Ísafirði, í stað Bolungarvíkur.

Tekur breytingin gildi 21. september 2026, og verður eftirfarandi:

Ísafjörður - Ísafjarðarflugvöllur - Ísafjörður.
Stoppistöðvar verða eftirfarandi:
- Pollgata Ísafjörður
- Ísafjarðarflugvöllur
- Pollgata Ísafjörður
Einnig er hægt að hafa samband við akstursaðila í síma: 893 6356

Málinu var frestað til næsta fundar og lagt fram nú á nýjan leik.
Lagt fram til kynningar.
Eyþór yfirgaf fund kl. 9.00.

4.Fulltrúar Ísafjarðarbæjar í Hornstrandanefnd - 2026100006

Lagt fram erindi Kristínar Óskar Jónasdóttur, umdæmisstjóra hjá Náttúruverndarstofnun, dags. 29. sept. 2026 þars em óskað er eftir því að Ísafjarðarbær tilnefni tvo fulltrúa í Hornstrandanefnd, samráðsnefnd um friðlandið á Hornströndum.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að Gauti Geirsson og Andrea Sigrún Harðardóttir verði fulltrúar Ísafjarðarbæjar í Hornstrandanefnd.

5.Arctic Mayors Forum 2026 - 2026100116

Lagt fram minnisblað Gylfa Ólafssonar, bæjarstjóra, dags. 13. október 2026, vegna þátttöku í samstarfsvettvangi bæjarstjóra á norðurslóðum, Arctic Mayors' Forum, þar sem lagt er til að bæjarráð samþykki að Ísafjarðarbær taki aftur upp þátttöku í samtökunum.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að Ísafjarðarbær taki aftur upp þátttöku í samtökunum Arctic Mayors' Forum, samstarfsvettvangi bæjarstjóra á norðurslóðum.

6.71. Fjórðungsþing Vestfirðinga - að hausti - 2026090067

Lagt fram að nýju boð til bæjarfulltrúa á 71. Fjórðungsþing Vestfirðinga að hausti, sem haldið verður á Patreksfirði 27.-28. október 2026, auk kvöldverðar 26. október. Minnt er á að allar ályktanir þurfa að berast skriflega á þingið.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að leggja fram drög að ályktunum í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir næsta fund bæjarráðs.

7.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - lögreglulög - 2026010014

Lagt fram erindi frá dómsmálaráðuneytinu, dags. 8. október 2026, þar sem kynnt er til samráðs mál nr. 198/2026, "Drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögreglulögum og fleiri lögum (skipulagsbreytingar hjá lögreglu)".

Umsagnarfrestur er til og með 25. október 2026.
Bæjarráð leggur fram eftirfarandi bókun og felur bæjarstjóra að senda inn umsögn í Samráðsgátt:

"Fyrirhuguð fækkun lögregluembætta á Íslandi

Bæjarráð Ísafjarðarbæjar lýsir þungum áhyggjum af fyrirhuguðum breytingum á skipulagi lögreglunnar í landinu sem fela í sér fækkun lögregluembætta í þrjú embætti.

Bæjarráð leggst gegn því að embætti lögreglustjórans á Vestfjörðum verði lagt niður og yfirstjórn löggæslu í landshlutanum færð annað. Mikilvægt er að stjórnun og ákvörðunarvald lögreglunnar sé áfram á Vestfjörðum, þar sem þekking á staðháttum, samfélaginu og þeim áskorunum sem íbúar Vestfjarða standa frammi fyrir er til staðar.

Vestfirðir búa við sérstakar landfræðilegar aðstæður, langar vegalengdir, fjallvegi og tíðar samgöngutruflanir vegna veðurs og náttúruvár. Þá hefur reynsla undanfarinna ára sýnt hversu mikilvægt er að viðbragðsaðilar og almannavarnir búi yfir staðbundinni þekkingu og geti tekið skjótar ákvarðanir þegar vá steðjar að og þá sérstaklega náttúruhamfarir.

Bæjarráð tekur undir mikilvægi þess að efla lögregluna á landsvísu, bæta starfsaðstæður hennar og tryggja öfluga og faglega löggæslu. Slík markmið verða hins vegar ekki sjálfkrafa tryggð með sameiningu embætta og aukinni miðstýringu. Þvert á móti telur bæjarráð brýnt að efla lögregluþjónustu á Vestfjörðum með nægum mannafla, bættum búnaði og að tryggja þurfi stjórnunina á Vestfjörðum."

8.Aðalfundur 2026 - Byggðasafn Vestfjarða - 2026040231

Lögð fram fundargerð framhaldsaðalfundar Byggðasafns Vestfjarða en fundur var haldinn þann 11. maí 2026.
Lagt fram til kynningar.

9.Vestfjarðastofa - fundargerðir 2026 - 2026100119

Lagðar fram til kynningar fundargerðir 80. og 81. fundar stjórnar Vestfjarðastofu, en fundir voru haldnir 27. ágúst og 30. september 2026.
Lagt fram til kynningar.

10.Fundargerðir 2026 - Samband íslenskra sveitarfélaga - 2026020009

Lögð fram til kynningar fundargerð 1003. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 23. september 2026.
Lagt fram til kynningar.

11.Velferðarnefnd - 508 - 2610001F

Lögð fram til kynningar fundargerð 508. fundar velferðarnefndar, en fundur var haldinn 8. október 2026.

Fundargerðin er í 5 liðum.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 09:30.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?