Bæjarráð

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
1389. fundur 19. nóvember 2026 kl. 08:10 - 09:37 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Kristján Þór Kristjánsson formaður
  • Elísabet Samúelsdóttir varaformaður
  • Jónas Þór Birgisson aðalmaður
  • Svanfríður G Bergvinsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Gylfi Ólafsson bæjarstjóri
  • Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Ársfjórðungsuppgjör 2026 - Q3 rekstraruppgjör - 2026070077

Lagt fram til kynningar minnisblað Eddu Maríu Hagalín, fjármálastjóra, dags. 16. nóvember 2026, um niðurstöðu uppgjörs janúar til september. Uppgjörið sýnir rekstrarafgang A- og B-hluta upp á 965 m.kr. Fjárhagsáætlun fyrir sama tímabil gerir ráð fyrir rekstrarafgangi upp á 695 m.kr. Rekstrarafgangur er því 270 m.kr. hærri en áætlað er.
Lagt fram til kynningar.

Gestir

  • Edda María Hagalín, fjármálstjóri - mæting: 08:10

2.Ársfjórðungsuppgjör 2026 - Q3 framkvæmdir - 2026070077

Lagt fram til kynningar minnisblað Eddu Maríu Hagalín, fjármálastjóra, dags. 16. nóvember 2026, um stöðu framkvæmda í lok september. Bókaðar framkvæmdir til loka september nema 842 m.kr., eða um 63,3% af heildarfjárheimildum sem nema alls 1.330 m.kr. fyrir árið.
Lagt fram til kynningar.

Gestir

  • Eyþór Guðmundsson, settur sviðsstjóri - mæting: 08:25

3.Ársfjórðungsuppgjör 2026 - Q3 viðhald - 2026070077

Lagt fram til kynningar minnisblað Eddu Maríu Hagalín, fjármálastjóra, dags. 16. nóvember 2026, um stöðu viðhalds í lok september. Bókað viðhald á tímabilinu nemur 357 m.kr., samanborið við áætlun upp á 492 m.kr.
Lagt fram til kynningar.

4.Fasteignir Ísafjarðarbæjar - Kaup fasteigna - 2026090104

Lagt fram minnisblað Eyþórs Guðmundssonar, setts sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, og Eddu Maríu Hagalín, fjármálastjóra, dags. 15. nóvember 2026, þar sem óskað er afstöðu bæjarráðs til þess að Eignasjóður selji Fasteignum Ísafjarðarbæjar fasteignina að Sindragötu 4 á Ísafirði.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að selja Fasteignum Ísafjarðarbæjar fasteignina að Sindragötu 4 á Ísafirði, í samræmi við minnisblað. Áréttað er að þjónusta við skjólstæðinga breytist ekkert, heldur aðeins eignarhaldið í fjárhagsbókhaldi sveitarfélagsins.
Eyþór yfigaf fund kl. 8.50.

5.Staða niðurfellingar gatnagerðargjalda 2026 - 2026090013

Lagt fram til kynningar minnisblað Kristjáns Svans Kristjánssonar, byggingafulltrúa, dags. 9. nóvember 2026, varðandi niðurfellingu gatnagerðargjalda og stöðu framkvæmda í sveitarfélaginu, auk minnisblaðs Bryndísar Óskar Jónsdóttur, sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs, dags. 15. nóvember 2026, varðandi mögulegu framlengingu á fresti til niðurfellingar gatnagerðargjalda, þar sem lagt er til við bæjarráð að taka afstöðu til þess hvort samþykkja eigi almenna framlengingu á fresti allra viðkomandi lóða og til hvaða dags sú framlenging eigi að gilda.

Verði ákveðið að framengja frest til lokaúttektar til að öðlast niðurfellingu gatnagerðargjalda er lagt til að bæjarstjóra verði falið að útbúa breytingu á samþykkt um gatnagerðargjöld til samþykktar í bæjarstjórn og birta í B-deild Stjórnartíðinda, auk þess sem öllum lóðarhöfum á núgildandi frestákvæði verði tilkynnt um breytingarnar skriflega með skýrum skilmálum.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja, með vísan til 1. og 3. mgr. 6. gr. laga um gatnagerðargjald nr. 153/2006, að framlengja frest til niðurfellingar gatnagerðargjalda vegna byggingar íbúðarhúsnæðis á þeim lóðum sem úthlutað var á árunum 2022 og 2023, þannig að nýr lokafrestur til lokaúttektar verði 31. október 2027.

Skilyrði framlengingarinnar er að framkvæmdir séu hafnar á grundvelli gildandi byggingarleyfis og að lokaúttekt fari fram innan hins nýja frests. Fari lokaúttekt ekki fram fyrir 31. október 2027 fellur gjaldið í gjalddaga 30 dögum síðar og verður innheimt að fullu.

Jafnframt lagt til við bæjarstjórn að samþykkja framlagða auglýsingu um breytingu á samþykkt um gatnagerðargjald, stofngjald vatnsveitu og stofngjald holræsa í Ísafjarðarbæ nr. 1246/2024 og felur bæjarstjóra að senda hana til birtingar í B-deild Stjórnartíðinda.

Þá er bæjarstjóra falið að senda öllum hlutaðeigandi lóðarhöfum skriflegt tilkynningabréf um hinn nýja lokafrest og skilmála hans.




6.Fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2027 - 2026030243

Lögð fram til samþykktar lokaútgáfa fjárhagsáætlunar 2027, og áranna 2028-2030, auk greinargerðar með áætluninni. Jafnframt lögð fram til kynningar sundurliðuð fjárhagsáætlun 2027 niður á deildir og lykla til samanburðar við fjárhagsáætlun 2026 og ársreikning áranna 2025 og 2025.

Samhliða lagt fram minnisblað Eddu Maríu Hagalín, fjármálastjóra, dags. 15. nóvember 2026, með yfirliti yfir breytingar milli umræðna.
Bæjarráð samþykkir lokaútgáfa fjárhagsáætlunar 2027, og áranna 2028-2030, auk greinargerðar með áætluninni, og vísar til síðari umræðu bæjarstjórnar.
Edda yfirgaf fund kl. 9:20.

7.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - 2026010014

Lagt fram erindi frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 12. nóvember 2026, þar sem kynnt er til samráðs mál nr. 313, "Stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2027-2041". Umsagnarfrestur er til og með 26. nóvember 2026.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að leggja fram umsögn á næsta fundi bæjarráðs.

8.Fundargerðir Byggðasafns Vestfjarða 2022-2026 - 2026040202

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Byggðasafns Vestfjarða, en fundur var haldinn 26. september 2026.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 09:37.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?