Bæjarstjórn

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
575. fundur 17. september 2026 kl. 17:00 - 17:31 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Gylfi Ólafsson bæjarstjóri
  • Kristján Þór Kristjánsson aðalmaður
  • Elísabet Samúelsdóttir forseti
  • Svanfríður G Bergvinsdóttir aðalmaður
  • Helgi Karl Guðmundsson aðalmaður
  • Jónas Þór Birgisson aðalmaður
  • Þóra Marý Arnórsdóttir aðalmaður
  • Guðni Páll Viktorsson varamaður
    Aðalmaður: Tinna Rún Snorradóttir
  • Hannibal Hafberg aðalmaður
Starfsmenn
  • Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
  • Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði: Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir upplýsingafulltrúi
Dagskrá

1.Nefndarmenn 2026-2030 - lausn frá störfum - 2026050217

Lögð fram beiðni Sigurðar Jóns Hreinssonar um lausn frá störfum sínum sem bæjarfulltrúi S-lista Samfylkingarinnar.

Forseti leggur fram tillögu um að bæjarstjórn samþykki að veita Sigurði Jóni Hreinssyni, bæjarfulltrúa, lausn frá störfum í bæjarstjórn og nefndum á vegum sveitarfélagsins frá og með 17. september 2026.

Bæjarstjórn þakkar Sigurði Jóni Hreinssyni fyrir vel unnin störf í þágu Ísafjarðarbæjar. Samhliða verður Hrafnhildur Hrönn Óðinsdóttir, annar varafulltrúi S-lista Samfylkingarinnar.
Til máls tóku: Elísabet Samúelsdóttir, forseti og Svanfríður G. Bergvinsdóttir.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

2.Nefndarmenn 2026-2030 - Hafnarstjórn - 2026050217

Tillaga forseta um að Finney Rakel Árnadóttir verði kosin aðalfulltrúi S-lista Samfylkingarinnar í Hafnarstjórn, í stað Sigurðar Jóns Hreinssonar.
Til máls tóku: Elísabet Samúelsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

3.Tilboð um þjónustu Bergsins headspace við ungmenni Ísafjarðarbæjar - 2026080103

Tillaga frá 506. fundi velferðarnefndar, en fundur var haldinn 27. ágúst 2026, um að bæjarstjórn samþykki tilboð Bergsins headspace um þjónustu við ungmenni Ísafjarðarbæjar.
Til máls tóku: Elísabet Samúelsdóttir, forseti og Svanfríður G. Bergvinsdóttir.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

4.Reglur Ísafjarðarbæjar um úthlutun styrkja til menningarmála - endurskoðun 2026 - 2026090084

Tillaga frá 182. fundi menningarmálanefndar, en fundur var haldinn 14. september 2026, um að bæjarstjórn samþykki endurskoðaðar reglur um úthlutun styrkja til menningarmála þar sem hámarksstyrkfjárhæð er hækkuð í kr. 300.000.
Til máls tóku: Elísabet Samúelsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

5.Act Alone - samningur 2027-2029 - 2026090083

Tillaga frá 182. fundi menningarmálanefndar, en fundur var haldinn 14. september 2026, um að bæjarstjórn samþykki endurnýjum samnings við Act Alone fyrir 2027-2029.
Til máls tóku: Elísabet Samúelsdóttir, forseti og Gylfi Ólafsson.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

6.Deiliskipulagsbreyting Eyrarinnar, fyrir Eyrarskjól - 2026060070

Tillaga frá 678. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 8. september 2026, um að bæjarstjórn samþykki breytingu á deiliskipulagi Eyrarinnar, fyrir færanlega stofu við Eyrarskjól við Eyrargötu á Ísafirði, unnið af ráðgjafa Verkís ehf. fyrir Ísafjarðarbæ, dags. 3. júní 2026.
Til máls tóku: Elísabet Samúelsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

7.Breiðadalslína 1 um Dýrafjarðargöng. Ósk um aðalskipulagsbreytingu - 2026020060

Tillaga frá 677. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 25. ágúst 2026, um að bæjarstjórn samþykki að heimila breytingu á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020, með hliðsjón af auknu afhendingaröryggi á norðanverðum Vestfjörðum.
Til máls tóku: Elísabet Samúelsdóttir, forseti, Helgi Karl Guðmundsson, Gylfi Ólafsson og Jónas Þór Birgisson.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

8.Tunguskeið, aðalskipulag. Breytt landnotkun - 2025010079

Tillaga frá 677. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 25. ágúst 2026, um að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi drög, að núverandi landnotkunarflokkar verði áfram verslun og þjónusta annars vegar og athafnasvæði hins vegar í nýju aðalskipulagi.
Til máls tóku: Elísabet Samúelsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

9.Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2025-2050 - 2025060065

Tillaga frá 677. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 25. ágúst 2026, um að bæjarstjórn samþykki ákvæði hverfisverndar í þéttbýli á svæðum HV-20 og Hv-8, í Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2025-2050.
Til máls tóku: Elísabet Samúelsdóttir, forseti og Gylfi Ólafsson.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

10.Stjórn Minjasjóðs Önundarfjarðar 2026-2030 - 2026050229

Tillaga forseta um að Gylfi Ólafsson verði kosinn í stjórn Minjasjóðs Önundarfjarðar.
Til máls tóku: Elísabet Samúelsdóttir, forseti og Gylfi Ólafsson.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

11.Kosning í öldungaráð 2026-2030 - 2026050221

Tillaga forseta um kosningu fulltrúa í öldungaráð 2026-2030.
Til máls tóku: Elísabet Samúelsdóttir, forseti, Gylfi Ólafsson, Jónas Þór Birgisson.

Forseti bar upp viðaukatillögu um að Auður Helga Ólafsdóttir, Gunnlaugur Einarsson og Sævar Gestsson, verði kosin aðalfulltrúar í öldungaráð Ísafjarðarbæjar, og að Guðríður Sigurðardóttir, Finnur Magnússon og Karítas Maggý Pálsdóttir verði kosin varafulltrúar.

Þá leggur forseti til að bæjarstjórn að staðfesta skipan félaga eldri borgara í Ísafjarðarbæ, aðalfulltrúar verði Kristjana Sigurðardóttir, Hrafnhildur Samúelsdóttir, og Þorbjörg A. Sigþórsdóttir og að varafulltrúar verði Ernir Ingason, Birgir Jónsson og Helga Dóra Kristjánsdóttir, og fyrir hönd Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða verði skipaðar Heiða Björk Ólafsdóttir aðalfulltrúi og Hildur Elísabet Pétursdóttir varafulltrúi.

Þá leggur forseti til við bæjarstjórn að Auður Helga Ólafsdóttir verði kosin formaður öldungaráðsins úr hópi aðalfulltrúa.

Forseti bar upp tillögu að kosning fari fram fyrir alla fulltrúa í einu lagi.

Tillagan samþykkt 9-0.

Forseti bar upp viðaukatillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

12.Kosning í samráðshóp um málefni fatlaðs fólks - 2026050224

Tillaga forseta um kosningu fulltrúa í samráðshóp um málefni fatlaðs fólks.
Til máls tóku: Elísabet Samúelsdóttir, forseti.

Forseti bar upp viðaukatillögu um að bæjarstjórn kjósi Hrafnhildi Hrönn Óðinsdóttur sem aðalfulltrúa, og Gerður Ágústa Sigmundsdóttir sem varafulltrúa ísamráðshóp um málefni fatlaðs fólks.

Forseti bar viðaukatillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

13.Hafnarstjórn - 273 - 2608016F

Lögð fram til kynningar fundargerð 273. fundar hafnarstjórnar sem haldin var 27. ágúst 2026.

Fundargerðin er í 4 liðum.
Til máls tóku: Elísabet Samúelsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

14.Hafnarstjórn - 274 - 2609002F

Lögð fram til kynningar fundargerð 274. fundar hafnarstjórnar sem haldin var 8. september 2026.

Fundargerðin er í 3 liðum.
Til máls tóku: Elísabet Samúelsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

15.Menningarmálanefnd - 182 - 2609011F

Lögð fram til kynningar fundargerð 182. fundar menningarmálanefndar, en fundur var haldinn 14. september 2026.

Fundargerðin er í 13 liðum.
Til máls tóku: Elísabet Samúelsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

16.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 677 - 2608011F

Lögð fram til kynningar fundargerð 677. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 25. ágúst 2026.

Fundargerðin er í 11 liðum.
Til máls tóku: Elísabet Samúelsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

17.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 678 - 2609006F

Lögð fram til kynningar fundargerð 678. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 8. september 2026.

Fundargerðin er í 12 liðum.
Til máls tóku: Elísabet Samúelsdóttir, forseti og Kristján Þór Kristjánsson.

Lagt fram til kynningar.

18.Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd - 48 - 2608019F

Lögð fram til kynningar fundargerð 48. fundar skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn 7. september 2026.

Fundargerðin er í 8 liðum.
Til máls tóku: Elísabet Samúelsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

19.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 172 - 2609005F

Lögð fram til kynningar fundargerð 172. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar, en fundur var haldinn 8. september 2026.

Fundargerðin er í 9 liðum.
Til máls tóku: Elísabet Samúelsdóttir, forseti og Hannibal Hafberg.

Lagt fram til kynningar.

20.Velferðarnefnd - 506 - 2607003F

Lögð fram til kynningar fundargerð 506. fundar velferðarnefndar, en fundur var haldinn 27. ágúst 2026.

Fundargerðin er í 11 liðum.
Til máls tóku: Elísabet Samúelsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

21.Velferðarnefnd - 507 - 2609010F

Lögð fram til kynningar fundargerð 507. fundar velferðarnefndar, en fundur var haldinn 10. september 2026.

Fundargerðin er í 8 liðum.
Til máls tóku: Elísabet Samúelsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 17:31.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?