Bæjarstjórn

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
579. fundur 19. nóvember 2026 kl. 17:00 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Gylfi Ólafsson bæjarstjóri
  • Kristján Þór Kristjánsson aðalmaður
  • Elísabet Samúelsdóttir forseti
  • Svanfríður G Bergvinsdóttir aðalmaður
  • Helgi Karl Guðmundsson aðalmaður
  • Jónas Þór Birgisson aðalmaður
  • Martha Kristín Pálmadóttir varamaður
    Aðalmaður: Þóra Marý Arnórsdóttir
  • Tinna Rún Snorradóttir aðalmaður
  • Hannibal Hafberg aðalmaður
Starfsmenn
  • Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Dagskrá
Forseti óskar eftir að taka inn 3 fundarliði á dagskrá með afbrigðum, með heimild í 16. gr. bæjarmálasamþykktar, mál sem verður nr. 11 á dagskrá - svæðisbundin farsældaráætlun Vestfjarða 2026-2030, auk tveggja fundargerða, þar sem málið var tekið fyrir, 52. fundur skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar og 509. fundur velferðarnefndar, en fundargerðir verða númer 18 og 19 á dagskrá.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Samþykkt 9-0.

1.Fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2027 - 2026030243

Bæjarstjóri leggur fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2027, og næstu þriggja ára, fram til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Samhliða lagt fram minnisblað Eddu Maríu Hagalín, fjármálastjóra, dags. 15. nóvember 2026, með yfirliti yfir breytingar milli umræðna.
Til máls tóku: Elísabet Samúelsdóttir, forseti, Gylfi Ólafsson, Jónas Þór Birgisson, Svanfríður G. Bergvinsdóttir, Kristján Þór Kristjánsson og Hannibal Hafberg.

Fulltrúar B-lista Framsóknar og óháðra og C-lista Viðreisnar lagði fram eftirfarandi bókun:
"Fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar fyrir árið 2027 einkennist af skynsemi, jákvæðri rekstrarniðurstöðu, bættri þjónustu og lækkun skulda.

Gert er ráð fyrir að afgangur verði 404 m.kr. fyrir A-hluta og 684 m.kr. A og B. Markmið fjármálastefnu sem bæjarstjórn setti sér samhljóða í haust nást flest, meðal annars veltufé frá rekstri sem er vel yfir markmiðum, rekstrarjöfnuður, skuldahlutfall og handbært fé.

Gjaldskrár hækka hóflega, og er það framlag Ísafjarðarbæjar til baráttunnar við verðbólgu. Gjaldskrár í leikskólum hækka ekki sem nýtist barnafjölskyldum beint.

Þjónusta er efld á ýmsum sviðum. Unglingarnir okkar fá enn betri félagsmiðstöð, þríhliðasamningur verður gerður um stóreflingu menningar í Edinborgarhúsi, stoðþjónusta grunnskóla eykst, opnunartími í sundlaugum lengist og umhverfis- og eignasvið verður styrkt verulega. Skíðasvæðið verður enn betra og sjást munu merki umhverfisátaks strax næsta sumar.

Samanlagt sýnir áætlunin metnaðarfulla og ábyrga framtíðarsýn þar sem þjónusta, uppbygging og traust fjármál haldast í hendur. Framsókn og óháðir og Viðreisn þakkar gott samstarf við starfsfólk bæjarins og bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins. Við getum verið stolt af fjárhagsáætlun bæjarins fyrir 2027."

Fulltrúar S-lista Samfylkingarinnar lögðu fram eftirfarandi bókun:
"Við í Samfylkingunni þökkum gott og uppbyggilegt samstarf við vinnslu fjárhagsáætlunar 2027, í nefndum og á meðal fulltrúanna hér, við vonumst til að það haldi áfram á kjörtímabilinu.

Við fögnum sérstaklega áherslu á velferð og þjónustu við börn og ungmenni. Þá ber sérstaklega að nefna bætt aðgengi að skólasálfræðingum og nýtt starf forstöðumanns félagsmiðstöðvarinnar Djúpsins, sem mætir brýnni þörf. Fyrirhugaðar umbætur í almenningssamgöngum og lengri opnunartími sundlauga á Þingeyri, Flateyri og Suðureyri eru einnig dæmi um góð verk, og fleiri má telja til. Ný verkefni á áætlun falla mörg hver vel að áherslum Samfylkingarinnar og því að samfélagið allt þurfi að njóta góðs aðgengis að þjónustu.

Með nýju starfi á sviði skipulagsmála gefst einnig tækifæri til að efla þjónustu við íbúa. Við vonum að aukin mönnun skili sér í betri þjónustu og greiðum framgangi uppbyggingar í sveitarfélaginu.

Forseti bar fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2027, og næstu þriggja ára á eftir upp til síðari umræðu og samþykktar.

Tillagan samþykkt 9-0.

2.Framkvæmdaáætlun 2027 til 2037 - 2026030241

Bæjarstjóri leggur framkvæmdaáætlun Ísafjarðarbæjar 2027-2032 fram til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Til máls tók: Elísabet Samúelsdóttir, forseti.

Forseti bar framkvæmdaáætlun Ísafjarðarbæjar 2027-2032 upp til síðari umræðu og samþykktar.

Tillagan samþykkt 9-0.

3.Þjónustustefna 2027-2030 - 2026090268

Bæjarstjóri leggur Þjónustustefnu Ísafjarðarbæjar 2027-2030 fram til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Til máls tók: Elísabet Samúelsdóttir, forseti.

Forseti bar Þjónustustefnu Ísafjarðarbæjar 2027-2030 upp til síðari umræðu og samþykktar.

Tillagan samþykkt 9-0.

4.Reglur Ísafjarðarbæjar um gerð viðauka við fjárhagsáætlun - 2026110023

Á 1387. fundi bæjarráðs, þann 5. nóvember 2026 voru lagðar fram til samþykktar nýjar reglur Ísafjarðarbæjar um gerð viðauka. Jafnframt lagt fram minnisblað Bryndísar Óskar Jónsdóttur, sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs, dags. 3. nóvember 2026, til skýringar.

Bæjarráð lagði til við bæjarstjórn að samþykkja reglur Ísafjarðarbæjar um gerð viðauka við fjárhagsáætlun.
Til máls tók: Elísabet Samúelsdóttir, forseti, Gylfi Ólafsson, Jónas Þór Birgisson og Kristján Þór Kristjánsson.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

5.Skipulagsbreytingar umhverfis- og eignasvið - nýtt skipurit 2026 - 2026100131

Tillaga frá 1388. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 12. nóvember 2026, um að bæjarstjórn samþykki fyrirhugaðar skipulagsbreytingar á umhverfis- og eignasviði Ísafjarðarbæjar, með nýrri stöðu deildarstjóra og uppskiptingu sviðsins í tvær megindeildir, skipulag og mannvirki, annars vegar, og umhverfi og framkvæmdir, hins vegar, sem hvor um sig heyrir undir deildarstjóra, og með sviðsstjóra efstan í skipuriti.
Til máls tók: Elísabet Samúelsdóttir, forseti, Gylfi Ólafsson.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

6.Skipurit Ísafjarðarbæjar 2026 - 2026060031

Tillaga frá 1388. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 12. nóvember 2026, um að bæjarstjórn samþykki nýtt skipurit Ísafjarðarbæjar, með innfelldum breytingum á skipulagi umhverfis- og eignasviðs, og öðrum þeim breytingum frá núgildandi skipuriti.
Til máls tók: Elísabet Samúelsdóttir, forseti, og Gylfi Ólafsson.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

7.Þríhliða samningur um Menningarmiðstöðina Edinborgarhúsið - 2026110096

Tillaga frá 1388. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 12. nóvember 2026, um að bæjarstjórn samþykki þríhliða samning um Menningarmiðstöðina Edinborgarhúsið, sem er gerður á milli menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins, Ísafjarðarbæjar og Edinborgarhússins ehf., um styrk árlega styrk að fjárhæð kr. 30.000.000 til næstu þriggja ára.
Til máls tók: Elísabet Samúelsdóttir, forseti, Gylfi Ólafsson og Kristján Þór Kristjánsson.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

8.Lagnaleið ljósleiðara í Tungudal, Skutulsfirði - 2026100174

Tillaga frá 682. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 10. nóvember 2026, um að bæjarstjórn samþykki að heimila lagningu heimtauga í Tungudal í samræmi við framlögð gögn.
Til máls tók: Elísabet Samúelsdóttir, forseti.

Forseti óskar eftir leyfi fundarins til að upplýsa að bókað var á 683. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, þann 18. nóvember 2026, að lagt var fram erindi Jóhanns Egilssonar f.h. Snerpu ehf. dags. 12. nóvember 2026, vegna breyttrar lagnaleiðar ljósleiðara í Tungudal, ásamt uppfærðum teikningum sem sýna fyrirhugaða legu lagnarinnar. Breytingin er tilkomin þar sem aðstæður á vettvangi gera upphaflega lagnaleið óhentuga. Samkvæmt breyttri tillögu er gert ráð fyrir að lögnin fylgi að mestu þegar röskuðu landi við göngustíg og veg.

Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkti breytingu á framkvæmd sem lögð var fyrir á 683. fundi nefndarinnar, þann 10. nóvember 2026, þar sem hún telur að um óverulega framkvæmd að ræða, miðað við fyrirliggjandi gögn, og fól starfsmanni nefndar að koma uppfærðum gögnum til bæjarstjórnar."

Er uppfærð gögn með tillögu til bæjarstjórnar um að heimila lagningu heimtauga í Tungudal í samræmi við gögnin".

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

9.Ytri Veðrará í Önundarfirði. Umsókn um skipulag - 2025090035

Tillaga frá 682. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 10. nóvember 2026, um að bæjarstjórn samþykki að heimila landeiganda að hefja vinnu við gerð deiliskipulagslýsingar skv. 38.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Til máls tók: Elísabet Samúelsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

10.Stjórn Framkvæmdasjóðs Skrúðs 2026-2030 - 2026050238

Tillaga forseta um að Smári Karlsson verði skipaður í stjórn Framkvæmdastjórnar Skrúðs, í stað Tinnu Ólafsdóttur.
Til máls tók: Elísabet Samúelsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.
Fundarliður tekinn á dagskrá með afbrigðum.

11.Svæðisbundin farsældaráætlun Vestfjarða 2026-2030 - 2026110051

Tillaga forseta, með hliðsjón af bókun skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, frá fundi 16. nóvember 2026, og velferðarnefndar, frá fundi 18. nóvember 2026, um að samþykkja að undirrita viljayfirlýsingu á farsældarþingi Vestfjarða þann 1. desember 2026, um fimm forgangsaðgerðir svæðisbundinnar farsældaráætlunar Vestfjarða, þ.e. um sameiginlegt verklag, samræmdra fræðsluáætlun, sameiginlegt yfirlit yfir úrræði og þjónustu, samþættan stuðning frá fyrstu stundu og eflingu félagsmiðstöðvastarfs. Ekki verði gert ráð fyrir sérstöku fjárframlagi til verkefnanna á árinu 2027.
Til máls tók: Elísabet Samúelsdóttir, forseti, og Gylfi Ólafsson.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

12.Bæjarráð - 1386 - 2610026F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1386. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 29. október 2026.

Fundargerðin er í 9 liðum.
Til máls tók: Elísabet Samúelsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

13.Bæjarráð - 1387 - 2611001F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1387. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 5. nóvember 2026.

Fundargerðin er í 9 liðum.
Til máls tók: Elísabet Samúelsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

14.Bæjarráð - 1388 - 2611006F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1388. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 12. nóvember 2026.

Fundargerðin er í 9 liðum.
Til máls tók: Elísabet Samúelsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

15.Sameinuð almannavarnanefnd Ísafjarðarbæjar og Súðavíkurhrepps - 45 - 2610015F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1386. fundar sameinaðrar almannavarnanefndar Ísafjarðarbæjar og Súðavíkurhrepps, en fundur var haldinn 29. október 2026.

Fundargerðin er í 8 liðum.
Til máls tók: Elísabet Samúelsdóttir, forseti, og Gylfi Ólafsson.

Lagt fram til kynningar.

16.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 682 - 2610022F

Lögð fram til kynningar fundargerð 682. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 10. nóvember 2026.

Fundargerðin er í 10 liðum.
Til máls tók: Elísabet Samúelsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

17.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 175 - 2610021F

Lögð fram til kynningar fundargerð 175. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar, en fundur var haldinn 10. nóvember 2026.

Fundargerðin er í 10 liðum.
Til máls tók: Elísabet Samúelsdóttir, forseti, og Hannibal Hafberg.

Lagt fram til kynningar.
Fundarliður tekinn inn með afbrigðum.

18.Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd - 52 - 2610023F

Lögð fram til kynningar fundargerð 52. fundar skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar en fundur var haldinn 16. nóvember 2026.

Fundargerðin er í 7 liðum.
Til máls tók: Elísabet Samúelsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.
Fundarliður tekinn inn með afbrigðum.

19.Velferðarnefnd - 509 - 2611008F

Lögð fram til kynningar fundargerð 509. fundar velferðarnefndar en fundur var haldinn 17. nóvember 2026.

Fundargerðin er í 6 liðum.
Til máls tók: Elísabet Samúelsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?