Fundargerð – Aðalfundur Hverfi sráðs Þingeyrar 2. nóvember 2026
Fundargerð – Aðalfundur Hverfi sráðs Þingeyrar
Dagsetning: 2. nóvember 2026 Fundur settur: kl. 17:00 Fundarstaður: Blábankinn, Þingeyri
Mættir
Frá Ísafjarðarbæ: Gylfi Ólafsson bæjarstjóri, Kristján Þór Kristjánsson formaður bæjarráðs og Guðni Páll Viktorsson, fulltrúi í hafnarstjórn Frá Verkís: Gunnar Páll Eydal Frá Hverfisráði: Óðinn Hauksson, Sólveig Snorradóttir, Tinna Ottesen, Guðrún Steinþórsdóttir, Jóvína Sveinbjörnsdóttir, Marsibil Kristjánsdóttir
Fundarstjóri: Þórir Örn Guðmundsson Fundarritari: Tinna Ottesen
1. Fundarsetning og kjör embættismanna fundarins
Guðrún Steinþórsdóttir setti fundinn. Hún lagði til að Þórir Örn Guðmundsson yrði fundarstjóri og Tinna Ottesen fundarritari og var það samþykkt.
2. Skýrsla stjórnar
Guðrún Steinþórsdóttir las upp skýrslu stjórnar um liðið starfsár.Fundarstjóri opnaði fyrir umræður um skýrsluna, en enginn kvaddi sér hljóðs.
3. Kynning á vinnslutillögu að aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2025–2050
Gunnar Páll Eydal frá Verkís kynnti drög að vinnslutillögu að aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2025–2050.
● Skjólvíkursvæðið: Spurt var hvaða munur væri á því að skilgreina svæðið sem miðsvæði eða útivistarsvæði. Gunnar Páll útskýrði að miðsvæði væri opnari skilgreining sem leyfði fjölbreyttari nýtingu, meðal annars uppbyggingu. Fram kom að ekki ríkir einhugur á Þingeyri um svæðið. Sumir vilja létt iðnaðarsvæði með iðnaðarbilum en aðrir útivistarsvæði.
● Frístundabyggð: Spurt var um lög sem gilda um frístundabyggð. Einnig var rætt um húsnæðisskort sem tengist frístundahúsum.
● Tímaáætlun: Vinnslutillagan verður kynnt í desember 2026. Stefnt er að samþykkt í bæjarstjórn vorið 2027 og gert er ráð fyrir að skipulagið taki gildi í lok árs 2027.
Vinnslutillagan er aðgengileg á vef Ísafjarðarbæjar og hverfisráðið fær hana til umsagnar. Ábendingar má senda á skipulag@isafjordur.is.
Lóðir fyrir iðnaðarhúsnæði
Rætt var um skort á lóðum fyrir iðnaðarhúsnæði. Fram kom hugmynd um að kanna hvort sandasvæðið við sorphaugana eða svæðið við hesthúsin gætu hentað til uppbyggingar iðnaðarhúsnæðis.
Einnig kom fram hugmynd um að staðsetja iðnaðarsvæði ofan við veginn, áður en ekið er inn til Þingeyrar. Sú hugmynd mætti þó andstöðu þar sem talið var óæskilegt að hafa iðnaðarsvæði á svo áberandi stað við aðkomuna að þorpinu.
4. Erindi bæjarstjóra
Gylfi Ólafsson bæjarstjóri rifjaði upp heimsókn sína til Þingeyrar 22. október og fór yfir stöðu helstu verkefna:
● Lagnavinna vegna skólps og ofanvatns.
● Steypuvinna í bænum.
● Aparóla hefur verið sett upp.
● Sótt hefur verið um styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða til hönnunar göngustígs um Sandafell.
● Unnið hefur verið að endurbótum á félagsheimilinu.
● Víkingasvæðið: Skoða þarf betur afnotasamning og tryggja að ábyrgð á svæðinu sé skýr.
● Stefnt er að lengri opnunartíma sundlaugar, viðgerðum á íþróttahúsi og kaupum á fleiri tækjum í líkamsrækt.
● Almenningssamgöngur og möguleiki á að stofna þjóðgarð í Vatnsdal.
● Viðhald á veginum upp á Sandafell - vegunum hefur ekki verið sinnt af Ísafjarðarbæ, en skoða átti hvort ekki væri hægt að bæta úr því.
Bæjarstjóri hvatti til aukinna og beinni samskipta milli hverfisráðs og bæjarstjórnar.
Ofanflóðavarnir: Spurt var um viðhald ofanflóðavarna. Fram kom að hreinsa þarf vatnsvarnaskurði, sem safna ofanvatni og leiða það til sjávar, og að framrásin frá þeim er ónýt og þarfnast viðgerðar.
Umgengni: Íbúar geta sent bæjarstjórn ábendingar um drasl og slæma umgengni. Best er auðvitað ef að fólk getur rætt þetta sín á milli svo að skattpeningar fari ekki í að fjarlægja td. bílhræ fólks.
5. Fyrirspurnir til bæjarins
● Tankur á bryggju: Þórir Örn Guðmundsson spurði Guðna Pál Viktorsson hvenær tankurinn yrði fjarlægður af bryggjunni. Engin svör fengust við því.
● Bensínstöð: Tilboð í niðurrif gömlu bensínstöðvarinnar liggur fyrir og beðið er eftir undirskrift Pálmars Kristmundssonar arkitekts. Bærinn greiðir niðurrif húss og sökkuls en Pálmar gengur frá lóðinni.
● Erindi formanns bæjarráðs: Kristján Þór Kristjánsson fór yfir það sem gert hefur verið og helstu áherslur bæjarstjórnar.
● Ágengar plöntur: Rætt var um hvernig eigi að bregðast við lúpínu og kerfli. Einnig var rætt að skipulegga eigi hvar eigi að uppræta plönturnar og hvar megi sætta sig við þær.
6. Hafnarmál
● Skipta á um stálþil á höfninni og dekk á gömlu timburbryggjunni. Til skoðunar er að endurnýja stálbryggju, setja upp básabryggju og jafnvel breyta staðsetningu hennar.
● Arctic Fish: Spurt var hvort Arctic Fish greiddi fyrir afnot af höfninni og geymslusvæði. Óánægja ríkir um það pláss sem Artic Fish tekur í almenningsrými á Þingeyri, og um umgengni fyrirtækisins.
● Smábátar: Með nýrri gjaldskrá verður ódýrara að geyma báta á landi en við höfn
● Guðni Páll Viktorsson svaraði fyrirspurnum um gjöld við höfnina, meðal annars mælagjald og tengigjald. Verið er að kaupa nýja mæla fyrir höfnina.
7. Sundlaug
Opnunartími: Hverfisráð hafði óskað eftir því að sundlaugin yrði opin einhverja virka daga frá kl. 16:00, en Ísafjarðarbær bauð þess í stað aukaopnun á föstudögum. Spurt var hvort hægt væri að koma betur til móts við óskir hverfisráðs með því að dreifa föstudagstímunum á virka daga, þannig að við bættist aukaklukkustund frá kl. 16:00 til 17:00. Svarið var að umsjónarmenn íþróttamiðstöðvarinnar og yfirmaður sundlauga Ísafjarðarbæjar þyrftu að samþykkja slíka breytingu.
Búningsklefar: Talið var of dýrt og flókið að koma upp fjölskylduklefa eða kynhlutlausum klefa.
Aðgengi: Rætt var um að ráðast í að gera sundlaugina aðgengilega fötluðu fólki.
8. Sumarnámskeið fyrir börn
Rætt var um að bjóða börnum á Þingeyri upp á sumarnámskeið til jafns við það sem í boði er á Ísafirði. Kristján Þór Kristjánsson og Sigmundur Þórðarson munu halda áfram samtali um námskeiðin. Meðal annars þarf að ákveða hvort betra sé að Sigmundur eða Ísafjarðarbær auglýsi eftir starfsfólki. Einnig var rætt hvort hestamannafélagið Stormur gæti komið að námskeiðahaldi.
Kristján Þór sagði að ef Sigmundur fyndi starfsfólk myndi Ísafjarðarbær greiða laun þess. Lögð var áhersla á að auglýsa störfin nógu snemma, áður en ungt fólk ræður sig til starfa annars staðar.
Gestir yfirgáfu fundinn kl. 18:47.
9. Kosning stjórnar
Tillaga kom fram um Valdísi Evu Hjaltadóttur sem formann. Hún var kjörin með lófataki. Aðrir í stjórn voru kjörnir sem hér segir:
● Aðalmenn: Sólveig Snorradóttir, Tinna Ottesen, Óðinn Hauksson og Guðmundur Ólafsson
● Varamenn: Jóvína Sveinbjörnsdóttir, Radek Pernica
● Til taks: Guðrún Steinþórsdóttir er til taks sem aukavaramaður ef þörf krefur
10. Fundarslit
Fleira var ekki rætt og fundi slitið kl. 18:57.
Fundargerð ritaði Tinna Ottesen.