Stjórnarfundur 5. október 2026

Fundargerð Íbúasamtakanna Átaks
Fundardagur: 5. október 2026 Fundartími: Kl. 16:00 Mætt: Guðrún, Sólveig, Eydís, Tinna, Jovina og Óðinn
1. Boðun aðalfundar
Ákveðið var að aðalfundur Íbúasamtakanna Átaks verði haldinn mánudaginn 26. október 2026 kl. 20:00 í Blábankanum.
Guðrún mun hafa samband við bæjarskrifstofu Ísafjarðarbæjar og óska eftir að fulltrúi sveitarfélagsins mæti á fundinn.
Ákveðið var að dreifa auglýsingu um aðalfundinn í hús og á helstu samkomustaði á Þingeyri og á samfélagsmiðlum s.s Á döfinni Towntalk by Blábankinn. Verkaskipting fyrir dreifingu verður eftirfarandi:
● Sólveig: Vallargata, Aðalstræti og Hafnargata.
● Tinna: Brekkugata, Hlíðargata og Hrunastígur.
● Óðinn: Fjarðargata.
● Guðrún: Bryggjustöðin, Íþróttamiðstöðin, Tjörn og Blábankinn.
● Eydís: Útbýr auglýsingu fyrir aðalfundinn og hengir hana upp í G.Þ. og á Laufási.
Rætt var um mönnun stjórnar og þörf er á að finna formann og 2–4 nefndarmenn auk varamanna í stjórn.
2. Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2025–2050
Rætt var um kynningu á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2025–2050. Gylfi Ólafs hefur sent fyrirspurn til Verkís um möguleika á að halda kynningu fyrir íbúa í Dýrafirði í kjölfar tölvupóstsamskipta við Guðrúnu, formann samtakanna.
Tekin var fyrir beiðni skipulags- og mannvirkjanefndar um afstöðu Íbúasamtakanna Átaks vegna landnotkunar á tilteknu svæði á Þingeyri, mál nr. 2025060065.
Bókun: Íbúasamtökin Átak styðja að svæðið frá Tankinum og inn fyrir Skjólvík verði skilgreint sem grænt svæði í aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar.
3. Bekkur og staðsetning hans
Rætt var um nýja bekkinn sem útbúinn var í kjölfar uppástungu frá Íbúasamtökunum. Bekkurinn var síðan settur upp núna nýlega án samráðs við samtökin um staðsetningu hans.
Teljum við að staðsetning bekksins hefði átt að vera ákveðin í samráði við íbúasamtökin og leggjum áherslu á mikilvægi góðra samskipta og samráðs þegar unnið er að verkefnum sem þessum.
Íbúasamtökin óska eftir að staðsetning bekksins verði endurskoðuð og að hann verði færður áður en frost hefjast. Óskað er eftir að ný staðsetning verði valin með það að leiðarljósi að náttúrufegurð og kennileiti Dýrafjarðar fái að njóta sín í baksýn og að ákvörðun um staðsetninguna verði tekin í samráði við stjórn íbúasamtakanna.
4. Svæðið í kringum Tankinn
Rætt var almennt um svæðið í kringum Tankinn í kjölfar umræðunnar um aðalskipulagið og þá möguleika sem þar felast til framtíðar. Fundarmenn telja svæðið búa yfir miklum möguleikum, meðal annars vegna staðsetningar þess, útsýnis og nálægðar við náttúru og fjöru.
Við teljum ástæðu til að draga fram sérstöðu Tanksins, þannig að svæðið geti orðið enn meira aðdráttarafl og notalegt útivistarsvæði fyrir bæði íbúa og gesti. Með markvissri umhirðu og einföldum úrbótum mætti gera svæðinu hærra undir höfði og nýta betur þá möguleika sem þar eru til framtíðar.
5. Akkeri úr Dýrafirði
Rætt var um gamalt akkeri sem talið er vera frá tímum lúðuveiða við Dýrafjörð. Akkerið er nú í vörslu eldri manns á Norðurlandi sem hafði samband við formann samtakanna með það í huga að koma því „heim“ í Dýrafjörð.
Guðrún tekur að sér að koma á tengslum milli eiganda akkerisins og forstöðumanns Byggðasafns Vestfjarða og kanna möguleika á varðveislu þess.
6. Almenningssalerni og ferðaþjónusta
Rætt var um skort á aðgengi að almenningssalernum fyrir ferðamenn á Þingeyri á haustin. Sérstaklega var rætt um hvert beina eigi rútum sem koma með ferðamenn til Þingeyrar, meðal annars úr skemmtiferðaskipum, þegar aðgengi að salernisaðstöðu er takmarkað.
Sólveig tekur að sér að senda fyrirspurn til Ísafjarðarbæjar um málið.
7. Strætóskýli á Þingeyri
Ákveðið var að kanna stöðu máls varðandi strætóskýli á Þingeyri. Málið hafði komið fyrir í samtali síðastliðinn vetur við fyrrverandi bæjarstjóra, sem upplýsti í samtali við stjórn Átaks að það stæði til að koma slíku skýli fyrir og hefði þegar verið komið á áætlun sveitarfélagsins.
Íbúasamtökin óska eftir upplýsingum um stöðu málsins og hvort og þá hvenær fyrirhugað sé að ráðast í framkvæmdina.
Sólveig tekur að sér að senda fyrirspurn til Ísafjarðarbæjar og óska eftir upplýsingum um stöðu málsins.
8. Opnunartími íþróttamiðstöðvar og aðgengi
Rætt var um opnunartíma íþróttamiðstöðvar og sundlaugar á Þingeyri. Barnafjölskyldur hafa lýst yfir áhuga á að boðið verði upp á opnun frá kl. 16:00 einhverja virka daga vikunnar. Mikill og vaxandi áhugi er á íþróttaiðkun barna á svæðinu og vilja Íbúasamtökin styðja við þá jákvæðu þróun með því að skapa börnum og fjölskyldum þeirra betri möguleika á að nýta íþróttaaðstöðuna saman, meðal annars beint að loknum almennum vinnu- og leikskólatíma.
Einnig var rætt um aðgengi að búnings- og baðaðstöðu fyrir einstaklinga sem af ólíkum ástæðum geta ekki eða treysta sér ekki til að nýta almenna búningsklefa. Þar má meðal annars nefna einstaklinga með fötlun og einstaklinga sem þurfa aukið næði eða kynhlutlausa aðstöðu.
Við teljum mikilvægt að skoðaður verði möguleiki á fjölskylduklefa eða kynhlutlausum einstaklingsklefa sem gæti jafnframt verið aðgengilegur fyrir fólk með skerta hreyfigetu.
Jafnframt var rætt um aðgengi að sundlauginni sjálfri, meðal annars fyrir einstaklinga sem nota hjólastól eða þurfa aðra aðstoð við að komast ofan í og upp úr lauginni.
Íbúasamtökin óska eftir upplýsingum frá Ísafjarðarbæ um hvernig sveitarfélagið hyggst bæta aðgengi að íþróttamiðstöðinni og sundlauginni þannig að sem flestir geti nýtt aðstöðuna, óháð fötlun, hreyfigetu, kyni eða þörf fyrir aukið næði.
Fyrirspurn varðandi þessi mál voru send til Ísafjarðarbæjar fyrir sumarið en engin svör hafa enn borist. Tinna tekur að sér að fylgja málinu eftir. .
9. Frágangur eftir framkvæmdir
Rætt var um frágang framkvæmda meðfram Blábankanum og leikskólanum sem unnið hefur verið að nú á haustmánuðum. Íbúasamtökin óska eftir upplýsingum um hvernig sveitarfélagið hyggst ganga frá svæðinu upp brekkuna milli leikskólans og Brekkugötu 1, sem og svæðinu við hlið Brekkugötu 2 sem grafið var upp. Jafnframt er óskað eftir upplýsingum um hvenær fyrirhugað sé að malbika að nýju þá hluta götunnar þar sem malbik var skorið upp vegna framkvæmdanna.
Jafnframt var rætt almennt um ástand gangstétta á Þingeyri, sem víða er þegar í slöku ásigkomulagi. Það ástand er síst ábætandi þegar skorið er í gangstéttar vegna framkvæmda, til dæmis vegna endurnýjunar eða lagningar vatnsinntaka í hús, án þess að yfirborðið sé lagfært með fullnægjandi hætti að framkvæmdum loknum.
Dæmi eru um að slíkur frágangur hafi nú þegar dregist árum saman. Við teljum ólíðandi að slíkt fái að viðgangast og leggjum áherslu á að þegar nauðsynlegt er að rjúfa gangstéttir vegna framkvæmda verði gengið frá þeim aftur eins fljótt og kostur er.
Íbúar hafa sjálfir tekið saman upplýsingar og sent sveitarfélaginu ljósmyndir af stöðum þar sem úrbóta er þörf, en þrátt fyrir það hefur engin sjáanleg hreyfing orðið á málinu.
Íbúasamtökin óska eftir að sveitarfélagið fari yfir þessa staði, upplýsi um fyrirhugaðan frágang og tímasetningar úrbóta og tryggi að sambærilegar framkvæmdir verði framvegis kláraðar með viðunandi frágangi.
Eydís tekur að sér að hafa samband við Ísafjarðarbæ og óska eftir upplýsingum um hvenær frágangi verði lokið á framkvæmdasvæðinu ásamt stöðu mála vegna gangstétta viðhalds og frágangi á þeim.
10. Lýsing og ljósastaurar
Sólveig hefur haft samband við Orkubú Vestfjarða vegna bilana í götulýsingu. Ekki hefur tekist að finna orsök bilunarinnar og stendur til að setja upp bráðabirgða taug.
Fundarmenn lýsa yfir áhyggjum af því hversu slæm lýsing er víða innanbæjar og leggja áherslu á að úr því verði bætt sem fyrst, sérstaklega nú þegar dimmasti tími ársins fer í hönd.
11. Almenningssamgöngur milli byggðarkjarna
Íbúasamtökin Átak hvetja Ísafjarðarbæ til að bæta almenningssamgöngur milli byggðakjarna sveitarfélagsins.
Samtökin lýsa yfir óánægju með að þrátt fyrir mikla umræðu um bættar almenningssamgöngur hjá framboðum í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga í vor hafi íbúar enn ekki orðið varir við úrbætur.
Íbúasamtökin telja mikilvægt að raunhæfar og reglulegar almenningssamgöngur milli byggðakjarna verði teknar til skoðunar og óska eftir upplýsingum frá Ísafjarðarbæ um hvort og þá hvaða vinna sé í gangi varðandi úrbætur á þessu sviði.
Tinna tekur að sér að senda inn bókun vegna málsins til Ísafjarðabæjar.
Fundi slitið 17:45
Eydís ritaði fundargerð

Er hægt að bæta efnið á síðunni?