Fjallskilanefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
22. fundur 10. ágúst 2026 kl. 13:00 - 14:00 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Jóhann Ingi Þorsteinsson formaður
  • Jónína Eyja Þórðardóttir varaformaður
  • Hákon Sturla Unnsteinsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Smári Karlsson
Fundargerð ritaði: Smári Karlsson verkefnastjóri á umhverfis- og eignasviði
Dagskrá

1.Búfjárbeit og ágangur búfjár - 2026060191

Á 1373. fundi bæjarráðs, þann 2. júlí 2026, var lagt fram til kynningar erindi Rebekku Hilmarsdóttur, lögfræðings, f.h. Atvinnuvegaráðuneytisins dags. 24. júní 2026 varðandi búfjárbeit og ágang búfjár. Jafnframt eru lögð fram bréfin Búfjárbeit og ágangur búfjár og regluverk um búfjárbeit - sjónarmið matvælaráðuneytis. Bæjarráð vísaði erindinu til kynningar í fjallskilanefnd.

Er málið nú lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.

2.Fjallskil 2026 - 2026040132

Útgáfa fjallskilaseðils 2026.

Samkvæmt fjallskilasamþykkt fyrir Barðastrandar- og Ísafjarðarsýslur skal hlutaðeigandi sveitarstjórn eða fjallskilanefnd árlega fyrir 20. ágúst, semja fjallskilaseðil þar sem mælt er fyrir um hvernig fjallskilum skuli hagað. Fjallskilaseðill skal berast eigi síðar en 15 dögum áður en fjallskil byrja þar sem kemur fram hvað hver landeigandi á að leggja til fjallskila á því hausti. Skal tilnefna leitarstjóra einn eða fleiri sem stjórni göngum leitarmanna og annist að leitir fari vel og skipulega fram.

Er nú lögð fram tillaga að leitarstjórum í Ísafjarðarbæ.
Tillaga formanns að fjallskilaseðli 2026 samþykkt.

3.Smölun Fjallaskaga - 2026080022

Lögð fram drög að aðgerðaráætlun vegna fjallskila á Fjallaskaga.
Fjallskilanefnd samþykkir framlagða aðgerðaráætlun með áorðnum breytingum. Fjallskilanefnd vísar áætluninni til bæjarráðs þar sem nefndin hefur ekki fjárheimildir skv. fjárhagsáætlun.

Fundi slitið - kl. 14:00.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?