Hafnarstjórn
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Farþegagjöld 2026 - 2026080144
Borist hefur erindi frá Stíg Berg Sophussyni og Nanný Örnu Guðmundsdóttur fyrir hönd Sjóferða ehf og Skútusiglinga ehf dags. 23. ágúst 2026.
Óskað er eftir niðurfellingu farþegagjalda farþegabáta sem gerðir eru út frá Ísafirði sumarið 2026.
Óskað er eftir niðurfellingu farþegagjalda farþegabáta sem gerðir eru út frá Ísafirði sumarið 2026.
Hafnarstjórn tekur jákvætt í erindið en telur nauðsynlegt að meta nánar fjárhagsleg áhrif og fordæmisgildi slíkrar ákvörðunar. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að vinna málið áfram og leggja fyrir stjórnina tillögu að afgreiðslu.
2.Endurnýjun stálþils - 2026080155
Lagt fram minnisblað hafnarstjóra dags. 26. ágúst 2026.
Óskað eftir heimild til að taka þátt í efniskaupum vegna endurnýjunar á stálþilum á Þingeyri og Ísafirði.
Óskað eftir heimild til að taka þátt í efniskaupum vegna endurnýjunar á stálþilum á Þingeyri og Ísafirði.
Hafnarstjórn samþykkir samhljóða að veita hafnarstjóra heimild til þátttöku í efniskaupunum.
3.Malbikun 2026 - Ísafjarðarbær - 2026030111
Lagt fram til samþykktar viðauki (15) við Framkvæmdaráætlun 2026 vegna aukaverka við malbikunarframkvæmdir. Viðaukinn felur í sér tilfærslu fjárheimilda innan Hafnarsjóðs vegna lagfæringar vegarins í Dagverðardal. Jafnframt eru lögð fram minnisblöð hafnarstjóra og sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs ásamt uppfærðri framkvæmdaáætlun. Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar eru engin.
Hafnarstjórn samþykkir viðauka 15 við framkvæmdaáætlun ársins 2026 vegna aukaverka við klæðningu og vísar málinu til bæjarsjórnar til afgreiðslu.
4.Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2025-2050 - 2025060065
Skipulags- og mannvirkjanefnd fól starfsmanni nefndar, á fundi 675, þann 7. júlí 2026, að vísa þeim köflum aðalskipulagsins sem falla undir verksvið annarra nefnda til viðkomandi nefnda til umfjöllunar. Nú eru lagðir fram til umræðu, kafli 9 - Atvinna, (kaflar 9.2 til og með 9.8), kafli 13 - Samgöngur, kaflar 15.6 (Hafnir) og 15.16 (Sérstök not haf- og vatnssvæða) og kafli 13 - Samgöngur.
Lagt fram til kynningar, Skipulags og mannvirkjanefnd óskar eftir að hafnarstjórn yfirfari sína kafla og rýni til gagns.
Lagt fram til kynningar, Skipulags og mannvirkjanefnd óskar eftir að hafnarstjórn yfirfari sína kafla og rýni til gagns.
Nefndin óskar eftir að fá ráðgjafa í skipulagsvinnu inná næsta fund nefndar.
Fundi slitið - kl. 10:45.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?