Hafnarstjórn

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
274. fundur 08. september 2026 kl. 12:00 - 13:15 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Guðni Páll Viktorsson formaður
  • Halla Signý Kristjánsdóttir varaformaður
  • Magnús Einar Magnússon aðalmaður
  • Martha Kristín Pálmadóttir aðalmaður
  • Sigurður Jón Hreinsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Hilmar Kristjánsson Lyngmo hafnarstjóri
  • Eyþór Guðmundsson
Fundargerð ritaði: Hilmar K Lyngmo Hafnarstjóri
Dagskrá
Gunnar Páll Eydal mæti á fund kl. 12:01

1.Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2025-2050 - 2025060065

Ráðgjafar Ísafjarðarbæjar hjá Verkís ehf., þau Gunnar Páll Eydal og Áslaug Katrín Aðalsteinsdóttir, mæta til fundar til að fara yfir kafla Aðalskipulags Ísafjarðarbæjar 2025-2050.

kafli 9 - Atvinna, (kaflar 9.2 til og með 9.8),
kafli 13 - Samgöngur, kaflar
kafli 15.6 (Hafnir) 15.16 (Sérstök not haf- og vatnssvæða)
kafli 13 - Samgöngur.

Hafnarstjórn þakkar góða kynningu og fulltrúar gefa sér tíma til að skoða málin nánar.

Gestir

  • Gunnar Páll Eydal - mæting: 12:01
Áslaug Katrín Aðalsteinsdóttir mætir á fund kl. 12:24.

2.Kristjánsgata 21 - Umsókn um byggingarheimild - þjónustuhús við skútuhöfn á Ísafirði - 2025010225

Gunnar Páll hjá Verkís kynnir hugmyndir um svæðið við skútuhöfn.

Áslaug Katrín Aðalsteinsdóttir mætir á fund kl. 12:24.

Gunnar Páll Eydal og Áslaug Katrín Aðalsteinsdóttir yfirgefa fund kl. 12.57.
Hafnarstjórn þakkar fyrir kynninguna og málið verður tekið áfram til rýnis hjá nefndinni.
Gunnar Páll Eydal og Áslaug Katrín Aðalsteinsdóttir yfirgefa fund kl. 12.57.

Gestir

  • Gunnar Páll Eydal - mæting: 12:30

3.Framkvæmdaáætlun 2027 til 2037 - 2026030241

Lögð fram til umræðu og samþykktar framkvæmdaáætlun Hafnarsjóðs 2027-2037.
Hafnarstjórn samþykkir samhljóða framkvæmdaráætlun Hafnarsjóðs og vísar henni til umfjöllunar í Skipulags- og mannvirkjanefnd.

Fundi slitið - kl. 13:15.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?