Hafnarstjórn
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Gjaldskrár 2027 - 2026030239
Lögð fram til samþykktar gjaldskrá hafna Ísafjarðarbæjar fyrir árið 2027.
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar frestaði samþykktum gjaldskrár á bæjarstjórnarfundi 1.október síðastliðnum. Ástæðan er samþykkt Samband íslenskra sveitarfélaga um hvatningu að takmarka hækkanir almennra gjaldskráa sveitarfélaga um 2,5%. Hafnarstjórn frestar málinu og felur Hafnarstjóra að vinna málið áfram í samráð við bæjarstjóra um hvort og hvaða gjaldskrárliðir Ísafjarðarhafna flokkast sem almennir gjaldskrárliðir.
Védís Geirsdóttir yfirgaf fund kl. 12:23.
Gestir
- Védís Geirsdóttir, aðalbókari - mæting: 12:00
2.Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2025-2050 - 2025060065
Skipulags- og mannvirkjanefnd fól starfsmanni nefndar, á fundi 675, þann 7. júlí 2026, að vísa þeim köflum aðalskipulagsins sem falla undir verksvið annarra nefnda til viðkomandi nefnda til umfjöllunar.
Nú eru lagðir fram til umræðu, kafli 9 - Atvinna, (kaflar 9.2 til og með 9.8), kafli 13 - Samgöngur, kaflar 15.6 - Hafnir og 15.16 - Sérstök not haf- og vatnssvæða.
Nú eru lagðir fram til umræðu, kafli 9 - Atvinna, (kaflar 9.2 til og með 9.8), kafli 13 - Samgöngur, kaflar 15.6 - Hafnir og 15.16 - Sérstök not haf- og vatnssvæða.
Hafnarstjórn gerir engar athugasemdir við Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2025-2050 og samþykkir þá liði sem snúa að athafnasvæði hafna Ísafjarðarbæjar.
3.Farþegagjöld 2026 - 2026080144
Lagt fram minnisblað Hilmars K. Lyngmo, hafnarstjóra, dags. 28. ágúst 2026 vegna erindis Sjóferða ehf. og Skútusiglinga ehf.
Hafnarstjórn hafnar beiðninni með vísan í minnisblað hafnarstjóra og felur hafnarstjóra að svara erindi Sjóferða ehf. og Skútusiglinga ehf..
4.Staða og horfur í skemmtiferðaskipageiranum á Íslandi 2026 - 2026090070
Á 1380. fundi bæjarráðs, þann 10. september 2026, var lagt fram til kynningar erindi Sigurðar Jökuls Ólafssonar, framkvæmdastjóra Cruise Iceland, dags. 1. september 2026, varðandi stöðu og horfur skemmtiferðaskipageirans á Íslandi. Bæjarráð vísaði erindinu til kynningar í hafnarstjórn og fól bæjarstjóra að taka saman minnisblað um bókunarstöðu skemmtiferðaskipa í Ísafjarðarbæ næstu árin.
Á 1382. fundi bæjarráðs, þann 23. september 2026, var minnisblað Gylfa Ólafssonar, bæjarstjóra, dags. 18. september 2026, um bókunarstöðu skemmtiferðaskipa í höfnum Ísafjarðarbæjar næstu ár lagt fram til kynningar. Bæjarráð vísaði málinu til kynningar í hafnarstjórn.
Málið er nú lagt fram til kynningar.
Á 1382. fundi bæjarráðs, þann 23. september 2026, var minnisblað Gylfa Ólafssonar, bæjarstjóra, dags. 18. september 2026, um bókunarstöðu skemmtiferðaskipa í höfnum Ísafjarðarbæjar næstu ár lagt fram til kynningar. Bæjarráð vísaði málinu til kynningar í hafnarstjórn.
Málið er nú lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 12:45.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?