Menningarmálanefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
182. fundur 14. september 2026 kl. 08:30 - 09:50 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Arnheiður Steinþórsdóttir formaður
  • Andrea Gylfadóttir varaformaður
  • Snorri Karl Birgisson aðalmaður
Starfsmenn
  • Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
  • Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði: Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2025-2050 - 2025060065

Skipulags- og mannvirkjanefnd fól starfsmanni nefndar, á fundi 675, þann 7. júlí 2026, að vísa þeim köflum aðalskipulagsins sem falla undir verksvið annarra nefnda til viðkomandi nefnda til umfjöllunar.

Nú eru lagðir fram til umræðu, kafli 2 - Leiðarljós og meginmarkmið, kafli 7. - Óbyggð svæði og strandsvæði (menningarminjar), kafli 8.1 - Menningar- og búsetuminjar, kafli 8.6 - Gæði byggðar (heildstæðar götumyndir og byggðarmynstur), kafli - 9.4 Ferðaþjónusta, kafli 10.2 - Menning, kafli 15 - Landnotkun m.t.t. menningarstaða og safnasvæða , kafli 16.2 - Minjavernd (MV).
Nefndin frestar afgreiðslu máls til næsta fundar.



Axel R. Överby yfirgefur fund kl. 08:40

Gestir

  • Axel R. Överby, sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs - mæting: 08:30

2.Aðgerðaáætlun menningarstefnu Ísafjarðarbæjar 2026-2030 - 2026060188

Lagt fram til kynningar minnisblað Bryndísar Óskar Jónsdóttur, sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs, dags. 9. september 2026, varðandi vinnu við nýja aðgerðaáætlun með Menningarstefnu fyrir komandi ár.
Nefndin samþykkir tillögu samkvæmt minnisblaði og felur starfsmanni að vinna málið áfram með Vestfjarðarstofu.

3.Gjaldskrár 2027 - 2026030239

Lögð fram til samþykktar tillögur að breytingum á gjaldskrá safna Ísafjarðarbæjar 2027.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja framlagða gjaldskrá fyrir söfn.

4.Framkvæmdaáætlun 2027 til 2037 - 2026030241

Lögð fram til umræðu og samþykktar framkvæmdaáætlun Ísafjarðarbæjar vegna menningarmála 2027-2037.
Nefndin samþykkir framlagða framkvæmdaáætlun vegna menningarmála og vísar henni til samþykktar í skipulags- og mannvirkjanefnd.

5.Bæjarlistamaður 2026 - 2026090085

Lögð fram vinnugögn vegna útnefningar bæjarlistamanns Ísafjarðarbæjar 2026, en 44 tilnefningar bárust um 23 mismunandi listamenn.

https://www.isafjardarbaer.is/static/files/ReglurOgSamthykktir/Annad/reglur-um-baejarlistamann-isafjardarbaejar.pdf
Menningarmálanefnd tók ákvörðun um útnefningu bæjarlistamanns Ísafjarðarbæjar 2026. Stefnt er að því að útnefning fari fram á Veturnóttum 2026.

6.Act Alone - samningur 2027-2029 - 2026090083

Lagður fram til samþykktar endurnýjun samnings við Act Alone um hátíðina árin 2027-2029. Samningurinn er óbreyttur frá fyrri samning sem gilti 2024-2026, utan hækkun styrksfjárhæðar sem nemur breytingum á verðlagi.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja endurnýjum samnings við Act Alone fyrir 2027-2029.

7.Reglur Ísafjarðarbæjar um úthlutun styrkja til menningarmála - endurskoðun 2026 - 2026090084

Lagðar fram til umræðu endurskoðaðar reglur um úthlutun styrkja til menningarmála.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja endurskoðaðar reglur um úthlutun styrkja til menningarmála þar sem hámarksstyrkfjárhæð er hækkuð í kr. 300.000.

8.Menningarsamningar Ísafjarðarbæjar - yfirlit - 2026090096

Lagt fram til kynningar minnisblað Bryndísar Óskar Jónsdóttur, sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs, dags. 9. september 2026, varðandi þá menningarsamninga og -styrki sem eru í gildi hjá sveitarfélaginu.
Nefndin leggur til að menningarverkefni og styrkir verði endurskoðaðir til að bæta fyrirsjáanleika í vinnu við nýja aðgerðaráætlun með menningarstefnu.

9.Veturnætur 2026 - 2026090086

Lagt fram til kynningar minnisblað Ólafar Dómhildar Jóhannsdóttur, upplýsingafulltrúa, dags. 9. september 2026, varðandi hátíðina Veturnætur 2026, sem er haldin 22.- 24. október 2026.
Lagt fram til kynningar.

10.30 ára afmæli Ísafjarðarbæjar - 2026040281

Lagt fram til kynningar minnisblað Rannveigar Jónsdóttur, menningarfulltrúa, dags. 6. júlí 2026, vegna 30 ára afmælis Ísafjarðarbæjar þann 1. júní 2026.
Nefndin þakkar góða kynningu og telur hátíðina hafa verið vel heppnaða, fjölbreytta og sýnilega.

11.17. júní hátíðahöld - 2019060003

Lagt fram til kynningar minnisblað Rannveigar Jónsdóttur, menningarfulltrúa, dags. 6. júlí 2026, um 17. júní hátíðahöldin í Ísafjarðarbæ.
Lagt fram til kynningar.

12.Styrkir til menningarmála 2026 - greinargerðir - 2026020216

Lagðar fram til kynningar greinargerðir Ástu Kristínar Pjetursdóttur vegna sumartónleikaraðar Ástu í kirkjum, og Greips Gíslasonar vegna Við Djúpið, tónlistarhátíðar.
Lagt fram til kynningar.

13.Morrinn - 2026090097

Mál sett á dagskrá að beiðni formanns varðandi möguleikann á að koma af stað skapandi sumarstörfum í Ísafjarðarbæ á nýjan leik, mögulega í anda Morrans.
Nefndin felur starfsmanni að halda áfram að afla gagna vegna fyrra fyrirkomulags og leggja aftur fyrir nefndina. Starfsmanni falið að setja kostnað vegna mögulegs sumarverkefnis inn í drög á fjárhagsáætlun 2027 sem verður lagt fyrir bæjarstjórn.

Fundi slitið - kl. 09:50.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?