Menningarmálanefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
183. fundur 22. október 2026 kl. 10:10 - 11:15 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Arnheiður Steinþórsdóttir formaður
  • Andrea Gylfadóttir varaformaður
  • Snorri Karl Birgisson aðalmaður
Starfsmenn
  • Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
  • Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir upplýsingafulltrúi
  • Rannveig Jónsdóttir
Fundargerð ritaði: Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Aðgerðaáætlun menningarstefnu Ísafjarðarbæjar 2026-2030 - 2026060188

Á 182. fundi menningarmálanefndar, þann 14. september 2026, var lagt fram til kynningar minnisblað Bryndísar Óskar Jónsdóttur, sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs, dags. 9. september 2026, varðandi vinnu við nýja aðgerðaáætlun með Menningarstefnu fyrir komandi ár.

Nefndin samþykkti tillögu samkvæmt minnisblaði og fól starfsmanni að vinna málið áfram með Vestfjarðarstofu.

Eru nú mætt til fundarins Sigríður Kristjánsdóttir til að kynna hugmyndir að ferlinu og verkáætlun.
Nefndin samþykkir að Vestfjarðastofa sjái um verkefnastjórn nýrrar aðgerðaáætlunar og felur starfsmönnum að vinna að málinu og upplýsa nefndina reglulega.

Nefndin felur starfsmönnum jafnframt að taka saman yfirlit yfir niðurstöðu aðgerða samkvæmt aðgerðaáætlun 2022-2026.

Gestir

  • Anna Sigríður Ólafsdóttir - mæting: 10:10
  • Sigríður Ó. Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Vestfjarðastofu - mæting: 10:10

2.Menningarráðstefna 2026 - 2026100130

Lögð fram til kynningar drög að dagskrá fyrirhugaðrar menningarmálaráðstefnu í Edinborgarhúsi, en menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneytið, ásamt Ísafjarðarbæ og Vestfjarðastofu, stendur fyrir ráðstefnu um menningu, listir og skapandi greinar á Vestfjörðum fimmtudaginn 26. nóvember í Edinborgarhúsinu, Ísafirði.
Dagskrá lögð fram til kynningar. Nefndin ræddi ýmiss kynningartengd atriði og þátttöku sveitarfélagsins í aðdraganda og á ráðstefnunni sjálfri, og felur starfsmönnum að vinna efni fyrir ráðstefnuna.
Sigríður Ólöf og Anna Sigríður yfirgáfu fund kl. 10.40.

3.Bæjarlistamaður 2026 - 2026090085

Lagt fram til kynningar minnisblað Ólafar Dómhildar Jóhannsdóttur, dags. 6. október 2026, varðandi framkvæmd við útnefningu bæjarlistamanns Ísafjarðarbæjar.
Lagt fram til kynningar.

4.Tendrun jólaljósa í Ísafjarðarbæ - 2018110044

Lagt fram til samþykktar minnisblað Ólafar Dómhildar Jóhannsdóttur, upplýsingafulltrúa, dags. 13. október 2026, þar sem dagsetningar og fyrirkomulag tendrunar jólaljósa á jólatrjám í Ísafjarðarbæ árið 2026 er lagt fyrir nefndina.

Tillögur að dagsetningum eru:

Laugardagur 21. nóvember: Flateyri
Sunnudagur 22. nóvember: Suðureyri
Laugardagur 28. nóvember: Ísafjörður
Sunnudagur 29. nóvember: Þingeyri

Lagt er til við menningarmálanefnd að samþykkja dagsetningar tendrana árið 2026.
Nefndin samþykkir dagsetningar og fyrirkomulag tendrana 2026.

5.Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2025-2050 - 2025060065

Á 182. fundi menningarmálanefndar, þann 14. september 2026, var tekið fyrir mál varðandi aðalskipulag Ísafjarðarbæjar, og þá kafla sem tilheyra menningarmálanefnd.

Nefndin frestaði afgreiðslu málsins til næsta fundar.

Eru nú lagðir aftur fram til umræðu eftirfarandi kaflar:
kafli 2 - Leiðarljós og meginmarkmið,
kafli 7 - Óbyggð svæði og strandsvæði (menningarminjar),
kafli 8.1 - Menningar- og búsetuminjar,
kafli 8.6 - Gæði byggðar (heildstæðar götumyndir og byggðarmynstur),
kafli 9.4 Ferðaþjónusta,
kafli 10.2 - Menning,
kafli 15 - Landnotkun m.t.t. menningarstaða og safnasvæða,
kafli 16.2 - Minjavernd (MV).
Nefndin felur starfsmanni að taka saman þær athugasemdir sem ræddar voru á fundinum og skila til skipulagsfulltrúa.

Samhliða var starfsmanni falið að bæta upplýsingar á heimasíðu sveitarfélagsins um hverfisvernd og breytingar á friðuðum húsum.

6.Styrkir til menningarmála 2026 - 2026020216

Lagðar fram til kynningar greinargerðir menningarstyrkja 2026 frá Diego Ragnari Angemi, venga Spólað til baka kvikmyndaklúbbs, Halldóru Jónasdóttur vegna leiksýninga, frumsaminna verka, ávaxtakörfunnar og Shrek, Júlíusi Þorfinnssyni vegna ListaVestursins, Steingrími Rúnari Guðmundssyni vegna Piff, alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar og Tinnu Ottesen vegna Bíóteks á Þingeyri.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 11:15.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?