Sameinuð almannavarnanefnd Ísafjarðarbæjar og Súðavíkurhrepps
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Skipan formanns og varaformanns 2026-2030 - 2026100132
Skipan formanns og varaformanns nefndarinnar, í samræmi við skipan nefndarinnar.
Nefndin samþykkir að Gylfi Ólafsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, verði formaður nefndarinnar, og að Elísabet Margrét Jónasdóttir, sveitarstjóri Súðavíkurhrepps, verði varaformaður.
2.Tillaga að sameiningu almannavarnarnefndar norðanverðra Vestfjarða - 2019020091
Á 42. fundi nefndarinnar, sem haldinn var 9. apríl 2025, bókaði nefndin að hún vildi halda áfram samtali um sameiningu almannavarnarnefndar við Bolungarvíkurkaupstað og vill hefja samtal við aðrar almannavarnarnefndir á Vestfjörðum.
Málið er sett aftur á dagskrá, og bæjarstjóra Bolungarvíkurkaupstaðar Jóhönnu Ósk Halldórsdóttur, boðið til fundarins.
Málið er sett aftur á dagskrá, og bæjarstjóra Bolungarvíkurkaupstaðar Jóhönnu Ósk Halldórsdóttur, boðið til fundarins.
Bæjarstjóri Bolungarvíkur mætir til fundarins og er jákvæð fyrir sameiningu almannavarnanefnda Bolungarvíkur, og Ísafjarðarbæjar og Súðavíkurhrepps.
Formanni falið að gera drög að nýrri skipan sameiginlegrar almannavarnarnefndar við norðanverða Vestfirði, og að boðað verði til aukafundar nefndarinnar, þegar bæjarstjórn Bolungarvíkur hefur tekið málið fyrir.

Jóhanna yfirgaf fund kl. 13.15.
Gestir
- Jóhanna Ósk Halldórsdóttir, bæjarstjóri Bolungarvíkur - mæting: 13:05
3.Sólmyrkvi 2026 - 2025100057
Sigurður Arnar Jónsson, slökkviliðsstjóri, og Hlynur Snorrason, yfirlögregluþjónn Lögreglunnar á Vestfjörðum, fara yfir framkvæmd aðgerða við sólmyrkva 12. ágúst 2026.
Lagt fram til kynningar.
4.Hættuástand við Vestfjarðagöng vegna elds - 2024090068
Á 43. fundi nefndarinnar, þann 21. nóvember 2025, var lagt fram til kynningar erindi Pálma Þórs Sævarssonar, f.h. Vegagerðarinnar, dags. 4. nóvember 2025, vegna öryggismála í Breiðadals- og Botnsheiðargöngum.
Málið var jafnframt tekið fyrir á 41. fundi nefndarinnar, þann 29. október 2024, þar sem málsatvik rútubruna, sem varð fyrir neðan Vestfjarðagöngin Skutulsfjarðarmegin þann 13. september 2024, voru rædd. Sigurður A. Jónsson, slökkviliðsstjóri, fór yfir málavöxtu, viðbúnað slökkviliðs og verkefni.
Nefndin bókaði þá eftirfarandi: "Sameinuð almannavarnanefnd Ísafjarðarbæjar og Súðavíkurhrepps lýsa yfir áhyggjum af öryggi vegfarenda í Breiðadals- og Botnsheiðargöngum ef hættuástand skapast og til björgunaraðgerða kemur. Nefndin skorar á Vegagerðina og ríkisstjórn að bæta öryggi í göngunum án tafar, s.s. með ljósastýringu, útvarps- og símasambandi, betri lýsingu og breikkun ganganna. Nefndin bendir á að ekki er um aðra leið að ræða á svæðinu vegna aflagningar vega yfir heiðarnar. Stórbruni í langferðabíl rétt við gangnamunna í Tungudal í september 2024 endurspeglar áhyggjur nefndarmanna frá opnun ganganna árið 1996."
Málið var jafnframt tekið fyrir á 42. fundi nefndarinnar, þann 9. apríl 2025, þar sem nefndin bókaði að bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar væri falið að taka upp samtal við Vegagerðina í samræmi við umræður á fundinum.
Á 43. fundi ítrekaði nefndin fyrri afstöðu sína um að nauðsynlegt sé að koma upp varaleið til öryggis fyrir vegfarendur og viðbragðsaðila. Þá ítrekaði nefndin fyrri afstöðu sína um að koma upp ljósastýringu og síma- og útvarpssambandi sem fyrst í göngunum, auk breikkunar gangnamunna. Nefndin fól starfsmanni að fylgja málinu eftir.
Er málið nú aftur lagt fyrir nefndina.

Nefndin felur formanni að kalla eftir viðbragðsáætlun um Vestfjarðagöng frá Vegagerðinni, og leggja fyrir næsta fund nefndarinnar.
5.Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2025-2050 - 2025060065
Skipulags- og mannvirkjanefnd fól starfsmanni nefndarinnar á 675. fundi sínum, þann 7. júlí 2026, að senda þá kafla aðalskipulags Ísafjarðarbæjar sem falla undir verksvið annarra nefnda til umfjöllunar hjá viðkomandi nefndum.
Lögð eru fram eftirtalin efnisatriði úr drögum að aðalskipulagi:
1. Kafli 4- Náttúruvá og öryggi, 2. Kafli 12 - Veitur og fjarskipti og 3. Kafli 13 - Samgöngur.
Jafnframt verði óskað eftir því að nefndin bendi á atriði sem hún telur þurfa að bæta við, breyta eða útfæra nánar í aðalskipulaginu með hliðsjón af sameiginlegu almannavarnasvæði Ísafjarðarbæjar og Súðavíkurhrepps.
Óskað er umsagnar nefndarinnar til þessara kafla.

Nefndin frestar málinu til næsta fundar.
6.Súðavíkurhreppur - aðstæður vegna vegalokana - 2024040110
Á 40. fundi nefndarinnar 23. apríl 2024 kynnti Bragi Þór Thoroddsen, sveitarstjóri Súðavíkurhrepps, aðgerðir í Súðavík þegar vegurinn um Súðavíkurhlíð lokast ítrekað vegna snjóflóðahættu.
Á 42. fundi nefndarinnar 9. apríl 2026 var málið aftur tekið á dagskrá og fór Anna Lind Ragnarsdóttir yfir þær aðgerðir sem Súðavíkurhreppur leggst í við ítrekaðar vegalokanir um Súðavíkurhlíð. Almannavarnarnefnd bað Braga Þór Thoroddsen, sveitarstjóra Súðavíkurhrepps, að taka saman kostnað við aðstoð við innlyksa ferðamanna vegna lokanna. Kostnaðarupplýsingar yrðu svo lagðar fyrir á næsta fundi almannavarnarnefndar.
Er málið nú lagt fyrir að nýju að beiðni Hlyns Snorrasonar, yfirlögregluþjóns.

Nefndin leggur til að sveitarstjóri Súðavíkurhrepps, lögreglan á Vestfjörðum og fulltrúi Rauða krossins í nefndinni, eigi samtal við Rauða kross Íslands um lausn á málinu, og málið verði lagt aftur fyrir nefndina á næsta fundi.
7.Neyðarvarnarkerra Ísafirði - 2026100263
Lagt fram erindi Rauða krossins við Djúp, móttekið 25. október 2026, þar sem óskað er aðstoðar almannavarnarnefndarinnar við að finna neyðarvarnarkerru, sem þjónar norðanverðum Vestfjörðum og Ísafjarðardjúpi, nýjan stað, en á núverandi stað liggur búnaður kerrunnar undir skemmdum.
Formanni og slökkviliðsstjóra falið að leita að nýrri staðsetningu fyrir neyðarvarnarkerru og setja sig í samband við Rauða Kross Íslands.
8.Sjóstangveiðihús Flateyri - 2026100270
Mál sett á dagskrá að beiðni Hlyns Snorrasonar yfirlögregluþjóns, varðandi vetrargistingu og rekstrarleyfi vegna gistingar í húsum við Melagötu á Flateyri, en hluti húsanna eru innan snjóflóðalína.
Nefndin lýsir yfir áhyggjum af veru fólks í húsunum yfir vetrartímann þar sem húsin eru innan snjóflóðalína og felur formanni að vera í sambandi við Veðurstofu Íslands varðandi nýtt hættumat á svæðinu og rýmingaráætlanir og vöktun.
Fundi slitið.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?