Skipulags- og mannvirkjanefnd
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
Védís Geirsdóttir mætti til fundar kl. 13:30.
1.Gjaldskrár 2027 - 2026030239
Lagt fram minnisblað fjármálastjóra, Eddu Maríu Hagalín, dags. 19. ágúst þar sem farið er yfir vísitöluhækkanir, ásamt gjaldskrám sem heyra undir skipulags- og mannvirkjanefnd.
Skipulags- og mannvirkjanefnd hefur farið yfir gjaldskrár sem heyra undir nefndina og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi tillögur:
Gjaldskrá slökkvitækjaþjónustu taki mið af launavísitölu.
Gjaldskrá öryggisþjónustu verði óbreytt.
Gjaldskrá slökkviliðs taki mið af launavísitölu og verðlagsþróun.
Gjaldskrá skipulagsbreytinga og framkvæmdaleyfa taki ekki öðrum breytingum en spá um launavísitölu.
Gjaldskrá byggingarleyfa taki ekki öðrum breytingum en spá um launa- og byggingarvísitölu.
Gatnagerðargjöld verði óbreytt.

Védís Geirsdóttir yfirgaf fund kl. 13:56.
Gestir
- Védís Geirsdóttir - mæting: 13:30
2.Tunguskeið, Skutulsfirði. Nýtt deiliskipulag á svæði í2 - 2024090115
Lagðar fram umsagnir og ábendingar við vinnslutillögu að nýju deiliskipulagi á íbúðarsvæði Í2 við Tunguskeið, Ísafirði. Kynningartíminn var frá 1. júlí 2026 til og með 25. ágúst 2026. Opið hús var haldið í sal bæjarstjórnar 19. ágúst 2026.
Jafnframt er lagt fram minnisblað Verkís, dags. 4. september 2026 með viðbrögðum við athugasemdum.
Jafnframt er lagt fram minnisblað Verkís, dags. 4. september 2026 með viðbrögðum við athugasemdum.
Skipulags- og mannvirkjanefnd þakkar fyrir umsagnir og ábendingar við vinnslutillöguna.
Nefndin hefur farið yfir athugasemdir og tekur undir þau sjónarmið og svör sem Verkís ehf. hefur sett fram í minnisblaði dags. 4. september 2026.
Skipulags- og mannvirkjanefnd áréttar að tekið verður samtal við hagaðila, í samræmi við innsendar athugasemdir.

3.Deiliskipulagsbreyting Eyrarinnar, fyrir Eyrarskjól - 2026060070
Tillaga að deiliskipulagsbreytingu Eyrarinnar, fyrir færanlega stofu við Eyrarskjól við Eyrargötu á Ísafirði, unnið af ráðgjafa Verkís ehf. fyrir Ísafjarðarbæ, dags. 3. júní 2026, var auglýst 1. júlí 2026 til og með 18. ágúst 2026. Tíu umsagnir bárust, teknar eru saman athugasemdir ásamt viðbrögðum við þeim í minnisblaði Verkís ehf. dags. 7. september 2026.
Skipulags- og mannvirkjanefnd þakkar fyrir umsagnir og athugasemdir við auglýsta tillögu.
Nefndin hefur farið yfir athugasemdir og tekur undir þau sjónarmið og svör sem Verkís ehf. hefur sett fram í minnisblaði dags. 7. september 2026.
Skipulags- og mannvirkjanefnd áréttar að tekið verður samtal við Minjastofnun, í samræmi við innsenda athugasemd stofnunarinnar.
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytingu á deiliskipulagi Eyrarinnar, fyrir færanlega stofu við Eyrarskjól við Eyrargötu á Ísafirði, unnið af ráðgjafa Verkís ehf. fyrir Ísafjarðarbæ, dags. 3. júní 2026

4.Kálfeyri, Önundarfirði. Leyfisumsókn vegna fornminjarannsókna - 2026080130
Lagður fram tölvupóstur til kynningar, dags. 18. ágúst 2026 frá Lilju Björk Br. Pálsdóttur þar sem óskað er leyfis Ísafjarðarbæjar fyrir jarðraski á Kálfeyri í Önundarfirði vegna fornminjarannsókna. Í því skyni verða ýmist hreinsuð rofsár eða snið gerð í minjarnar. Umsókn um uppgraftarleyfi hefur einnig verið sent Minjastofnun Íslands.
Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkir erindið með fyrirvara um heimild Minjastofnunar.
5.Mastur og tækjahús Þingeyrarhöfn - 2026040263
Lagt fram mæliblað tæknideildar nýrrar lóðar, dags. 4. ágúst 2026, ætlað undir tækjahús og mastur MÍLU ehf. við Sjávargötu, Þingeyrarhöfn.
Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkir óverulega breytingu á deiliskipulagi fyrir Þingeyri, miðbæjar- og hafnarsvæði. Starfsmanni er falið að ganga frá merkjalýsingu til samræmis við mæliblað, dags. 4. ágúst 2026.
6.Ósk um stækkun lóðar við Vertshús, Fjarðargötu 4a, Þingeyri - 2026090031
Lagður fram tölvupóstur frá þinglýstum eigendum við Fjarðargötu 4a á Þingeyri, dags. 21. júlí 2026, þar sem óskað er eftir stækkun á lóð að Fjarðargötu til að tryggja örugga aðkomu að húsinu. Núverandi aðgengi að húsinu á sér langa sögu sem göngustígur íbúa milli Brekkugötu og Fjarðargötu, og ekki talið heppilegt að nota göngustíg sem aðkomu. Jafnframt er lagt fram mæliblað tæknideildar, dags. 4. september 2026.
Skipulags- og mannvirkjanefnd gerir ekki athugasemdir og felur starfandi skipulagsfulltrúa að ganga frá merkjalýsingu ásamt lóðarblaði.
7.Flugskýli, Suðureyri. Fyrirspurn til byggingarfulltrúa - 2026070111
Lögð fram ósk um skráningu á lóð og mannvirkis, frá eiganda flugskýlisins á Suðureyrarflugvelli, dags. 17. júlí 2026. Jafnframt er lagt fram mæliblað tæknideildar, dags. 4. september 2026.
Skipulags- og mannvirkjanefnd gerir ekki athugasemdir og felur starfandi skipulagsfulltrúa að ganga frá merkjalýsingu ásamt lóðarblaði.
8.Hjallavegur 31 á Suðureyri. Ósk um lóðarleigusamning - 2026090033
Lagður fram tölvupóstur frá þinglýstum eiganda við Hjallaveg 31 á Suðureyri, dags. 14. ágúst 2026, með ósk um nýjan lóðarleigusamning. Jafnframt er lagt fram mæliblað tæknideildar dags. 4. september 2026.
Skipulags- og mannvirkjanefnd gerir ekki athugasemdir og felur starfandi skipulagsfulltrúa að ganga frá merkjalýsingu ásamt lóðablaði.
9.Engjavegur 26, Ísafirði. Nýr lóðarleigusamningur - 2026090037
Lögð fram umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi frá þinglýstum eigendum við Engjaveg 26 á Ísafirði, dags. 15. ágúst 2026. Jafnframt er lagt fram mæliblað tæknideildar, dags. 4. september 2026.
Skipulags- og mannvirkjanefnd gerir ekki athugasemdir og felur starfandi skipulagsfulltrúa að ganga frá merkjalýsingu ásamt lóðablaði.
Anton Helgi Guðjónsson vék af fundi kl. 14:47.
10.Ósk um gerð samstarfssamnings við Golfklúbb Ísafjarðar - 2026080149
Lagt fram erindi Guðjóns Helga Ólafssonar, formanns Golfklúbbs Ísafjarðar, mótt. 20. ágúst 2028, varðandi beiðni um gerð samstarfssamnings Ísafjarðarbæjar við Golfklúbb Ísafjarðar.
Erindið var tekið fyrir á fundi bæjarráðs 27. ágúst 2026 og erindinu var til afgreiðslu í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd, og telur jafnframt mikilvægt að við afgreiðslu málsins verði aflað umsagnar skipulags- og mannvirkjanefndar.

Skipulags- og mannvirkjanefnd vísar erindi Golfklúbbs Ísafjarðar, til bæjarráðs.
Nefndin áréttar að það svæði sem skipulagið tekur til hefur verið skilgreint sem íbúðarsvæði í aðalskipulagi til langs tíma.
Í gildandi aðalskipulagi, sem tók gildi 2010, er gert ráð fyrir íbúðarsvæði á því svæði sem 1. áfangi hverfisins í kynntri vinnslutillögu tekur til. Svæðið hentar vel fyrir íbúðarbyggð, bæði vegna tengsla við aðra byggð í Firðinum og að svæðið er utan hættusvæða vegna ofanflóða. Enginn samningur er í gildi um nýtingu svæðisins fyrir golfvöll. Nefndin leggur til að haft verði samráð við Golfklúbb Ísafjarðar vegna frekari uppbyggingar.

Anton Helgi Guðjónsson mætti aftur til fundar kl. 14:54.
11.Náttúruhamfaratrygging - bótaábyrgð vegna uppbyggingar á hættulegum svæðum - 2025090065
Á 1339. fundi bæjarráðs var lagt fram erindi Náttúruhamfaratrygginga Íslands dags. 10. september 2025 um áhrif 16. gr. laga nr. 55/1992 ef byggingar eru reistar á svæðum sem fyrir fram er vitað að séu sérlega næm fyrir náttúruhamförum sem eru bótaskyldar hjá NTÍ. Erindinu var vísað til umfjöllunar í skipulags- og mannvirkjanefnd.
Á 1379. fundi bæjarráðs, þann 3. september 2026, var lögð fram til áminning um skipulag byggða á þekktum hættusvæðum dags. 27. ágúst 2026 frá Huldu Ragnheiði Árnadóttir, forstjóra, f.h. Náttúruhamfaratryggingar Íslands.
Bæjarráð vísaði erindinu til kynningar í skipulags- og mannvirkjanefnd.

Lagt fram til kynningar.
12.Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 1 - 2608018F
Lögð fram til kynningar, 1. fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa, sem var haldinn 27. ágúst 2026.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 15:05.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?