Skipulags- og mannvirkjanefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
679. fundur 29. september 2026 kl. 13:33 - 14:45 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Anton Helgi Guðjónsson varaformaður
  • Kristján Þór Kristjánsson varamaður
    Aðalmaður: Tinna Rún Snorradóttir
  • Þóra Marý Arnórsdóttir aðalmaður
  • Helgi Karl Guðmundsson aðalmaður
  • Jóhann Bæring Gunnarsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Helga Þuríður Magnúsdóttir verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Helga Þuríður Magnúsdóttir verkefnastjóri
Dagskrá
Edda María Hagalín og Bryndís Ósk Jónsdóttir, mættu til fundar kl. 13:33.

1.Framkvæmdaáætlun 2027 til 2037 - 2026030241

Lögð fram til umræðu og samþykktar framkvæmdaáætlun Ísafjarðarbæjar 2027-2037.
Skipulags- og mannvirkjanefnd felur starfsmanni nefndar að leggja málið fyrir að nýju, til síðari umræðu, 20. október 2026.

Gestir

  • Edda María Hagalín, fjármálastjóri - mæting: 13:33
  • Bryndís Ósk Jónsdóttir, sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs - mæting: 13:33

2.Viðhaldsáætlun 2027 - 2026030242

Kynnt viðhaldsáætlun Eignasjóðs, Fasteigna Ísafjarðarbæjar, Fráveitu, Vatnsveitu, Funa og Aðalsjóðs.
Skipulags- og mannvirkjanefnd felur starfsmanni nefndar að leggja málið fyrir að nýju, til síðari umræðu, 20. október 2026.

Skipulags- og mannvirkjanefnd ítrekar bókun nefndarinnar frá 21. október 2025, þar sem Skipulags- og mannvirkjanefnd lagði áherslu á að fyrir næstu fjárhagsáætlun, myndi liggja fyrir 10 ára viðhaldsáætlun sem myndi auðvelda yfirsýn vegna ákvarðanatöku og forgangsröðun verkefna.
Gestir yfirgáfu fund kl. 14:16.

3.Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2008-2020 - breyting - Eyrarkláfur - 2025100173

Lögð fram uppfærð gögn, uppdráttur og greinargerð unnin af EFLU, dags. 10. september 2026, með tillögu að auglýsingu breytinga á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2010, undir afþreyingar- og ferðamannasvæði, ásamt verslunar- og þjónustusvæði á Eyrarfjalli, vegna Eyrarkláfs. HMS hefur farið yfir framlögð gögn og gerir ekki athugasemd við að skipulagstillagan verði auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga þegar brugðist hefur verið athugasemdum stofnunarinnar, með afgreiðslubréfi stofnunarinnar dags. 30. júlí 2026.
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að heimila auglýsingu á breytingum á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2025, vegna Eyrarkláfs undir afþreyingar og ferðamannasvæði, þar sem að auki muni falli úr gildi reitur aðveitustöðvar, í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem nefndin telur að brugðist hafi verið við athugasemdum HMS fyrir auglýsingu.

Nýtt deiliskipulag Eyrarkláfs og breytingar á deiliskipulagi Gleiðarhjalla verða auglýst samhliða breytingum á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2025.

4.Deiliskipulag Eyrarkláfur nýtt - 2025100175

Lögð fram tillaga að nýju deiliskipulagi Eyrarkláfs, í greinargerð, dags. 19. mars 2026, og á uppdrætti, dags. 19. mars 2026, unnin af ráðgjöfum EFLU fyrir Eyrarkláf ehf. Skipulagssvæðið er staðsett í Eyrarfjalli í Skutulsfirði, sem er 700 metra hátt beint fyrir ofan Ísafjarðarbæ. Það afmarkast af byrjunarstöð kláfsins við hlíðarfót Eyrarfjalls, upp að Gleiðarhjalla þar sem reistur verður millistaur fyrir kláfinn og svo áfram á topp Eyrarfjalls þar sem endastöð kláfsins er staðsett.
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að heimila auglýsingu á nýju deiliskipulagi Eyrarkláfs, í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Nýtt deiliskipulag Eyrarkláfs og breytingar á deiliskipulagi Gleiðarhjalla verða afgreidd samhliða.

5.Deiliskipulag Gleiðarhjalli - breyting - Eyrarkláfur - 2025100174

Lögð fram tillaga að breytingum á deiliskipulagi Gleiðarhjalla, í greinargerð dags. 19. mars 2026, og á uppdrætti dags. 19. mars 2026, unnin af ráðgjöfum EFLU fyrir Eyrarkláf ehf. Skipulagssvæðið er staðsett í Eyrarfjalli í Skutulsfirði, sem er 700 metra hátt beint fyrir ofan Ísafjarðarbæ. Það afmarkast af byrjunarstöð kláfsins við hlíðarfót Eyrarfjalls, upp að Gleiðarhjalla þar sem reistur verður millistaur fyrir kláfinn og svo áfram á topp Eyrarfjalls þar sem endastöð kláfsins er staðsett.
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að heimila auglýsingu á breytingu á deiliskipulagi Gleiðarhjalla vegna Eyrarkláfs, í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Nýtt deiliskipulag Eyrarkláfs og breytingar á deiliskipulagi Gleiðarhjalla verða afgreidd samhliða.

6.Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2025-2050 - 2025060065

Lagt fram erindi frá Katli Berg Magnússyni, dags. 21. september 2026 þar sem óskað er eftir því að endurskoða landnotkun í vinnslutillögu Aðalskipulags Ísafjarðarbæjar 2025-2050 á Þingeyri.

Óskað er formlega eftir því að strandsvæðið frá Tanknum við Sjávargötu út fyrir Skjólvík verði merkt opið svæði (OP) í vinnslutillögunni áður en hún fer til afgreiðslu í skipulags- og mannvirkjanefnd, með mörk miðsvæðis við Tankinn og Fjarðargötu 42 sem VÞ. Þessi afmörkun er í samræmi við niðurstöðu íbúafundar um aðalskipulag 10. október 2020 sem kynnt var Ísafjarðarbæ, liðurinn „Græn Skjólvík" undir Náttúra/umhverfi og svæði nr. 14 á tillögukorti, „Grænt svæði - varðveita náttúrulega fjöru“.
Skipulags- og mannvirkjanefnd óskar eftir afstöðu íbúasamtakanna Átaks vegna landnotkunar á Þingeyri.

7.Fjarðargata 35, Þingeyri. Áframhaldandi svæði í fóstur sjávarmegin - 2026090323

Lagt fram erindi frá Katli Berg Magnússyni, dags. 21. september 2026 þar sem óskað er staðfestingu/endurnýjun á samningi um land í fóstur sjávarmegin við Fjarðargötu 35, Þingeyri

Undirritaður hefur haft landsvæði Ísafjarðarbæjar sjávarmegin við Fjarðargötu 35 (merkt 35B, 6.241,6 m², sbr. uppdrátt dags. 27. ágúst 2014) í fóstri samkvæmt afnotasamningi dags. 27. ágúst 2014, sbr. bókun skipulags- og mannvirkjanefndar 20. ágúst 2014. Samkvæmt 4. gr. samningsins framlengist hann um 5 ár í senn nema honum sé sagt upp með þriggja mánaða fyrirvara.

Óskað er eftir að nefndin staðfesti að samningurinn sé í gildi, eða eftir atvikum endurnýi hann til 5 ára á sömu forsendum. Meðfylgjandi er upphafleg umsókn, samningur og skissa af svæðinu.
Skipulags- og mannvirkjanefnd staðfestir að samningur um lóð í fóstri við Sjávargötu 35 á Þingeyri er enn í gildi.

8.Breyting á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020. Frístundahús við Núpsveg - 2026090275

Lagt fram erindi frá eigendum skika við Núpsveg í Dýrafirði, L140979, greinargerð unnin af ráðgjöfum M11 arkitekta hf., skipulagslýsing breytinga á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 vegna fyrirhugaðrar frístundabyggðar við Núp í Dýrafirði, dags. 22. september 2026.

Áformin gera ráð fyrir allt að 15 frístundahúsum, þar af níu til almennra frístundanota og sex til gististarfsemi, ásamt aðkomu, veitum og sameiginlegum svæðum.
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að heimila auglýsingu á skipulagslýsingu breytingar á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 vegna fyrirhugaðrar frístundabyggðar við Núp í Dýrafirði, dags. 22. september 2026, í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

9.Deiliskipulag frístundahúsasvæðis við Núpsveg, Núpi í Dýrafirði. - 2026090276

Lagt fram erindi frá eigendum skika við Núpsveg í Dýrafirði, L140979, greinargerð unnin af ráðgjöfum M11 arkitekta hf., skipulagslýsing á nýju deiliskipulagi vegna fyrirhugaðrar frístundabyggðar við Núp í Dýrafirði, sunnan Ingjaldssandsvegar.

Áformin gera ráð fyrir allt að 15 frístundahúsum, þar af níu til almennra frístundanota og sex til gististarfsemi, ásamt aðkomu, veitum og sameiginlegum svæðum.
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að heimila auglýsingu skipulagslýsingar á nýju deiliskipulagi að Núpi í Dýrafirði sunnan Ingjaldssandsvegar, greinargerð, dags. 22. september 2026, í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

10.Strandgata 7 í Hnífsdal. Lóðarmál - 2025110183

Á 664. fundi nefndar þann 11. desember 2025 var sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs er falið að kanna þríhliða samtal milli aðila varðandi lóðamál við Strandgötu 7 og 3b í Hnífsdal. Fasteignir við Strandgötu 7 og áður Strandgötu 5b hafa verið sameinaðar. Lóðin við Strandgötu 3b var stækkuð skv. ósk eiganda árið 2022.
Nú er lagt fram minnisblað tæknideildar, dags. 21. september 2026 með tillögu að nýjum lóðarmörkum.
Frestað til næsta fundar.

11.Umsókn um lóð 11 L236900 í Reykjanesi undir framleiðsluhús - 2026090301

Lagt fram erindi frá Saltverki ehf. dags. 1. september þar sem fyrirtækið sækir um úthlutun lóðar við Reykjanes 11 í Ísafjarðardjúpi skv. deiliskipulagi. Jafnframt er óskað eftir því að gerður verði lóðarleigusamningur um hana.

Fyrirhugað er að reisa nýtt framleiðsluhúsnæði á lóðinni. Stefnt er að því að hefja framkvæmdir í september 2026 og að fyrsta áfanga ljúki vorið 2027.
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja lóðarúthlutun Saltverks ehf. við Reykjanes 11 innan jarðarinnar Reykjanes L141585.

12.Umsagnarbeiðni HMS. Skipting Eyrarhlíðar í Dýrafirði í tvö eldissvæði, 856. mál - 2026070100

Lögð fram til kynningar, niðurstaða HMS á skiptingu eldissvæðisins Eyrarhlíðar í Dýrafirði í tvö eldissvæði Arctic Sea farm.
Fyrirhuguð framkvæmd er ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif, sbr. þau viðmið sem tilgreind eru í 2. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana.
Því skal framkvæmdin ekki háð mati á umhverfisáhrifum.

Samkvæmt 30. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana má kæra ákvörðunina til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er til 26. október 2026.
Skipulags- og mannvirkjanefnd gerir ekki athugasemd um skiptingu eldissvæðisins Eyrarhlíðar í Dýrafirði í tvö eldissvæði Arctic Sea farm.

Fundi slitið - kl. 14:45.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?