Skipulags- og mannvirkjanefnd
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
Eyþór Guðmundsson, deildarstjóri umhverfis- og eignasviðs, mætti til fundar kl. 13:35.
1.Brimnesvegur 18, Flateyri. Nýr lóðarleigusamningur - 2026090005
Lögð fram ósk um endurnýjun á lóðarleigusamningi við Brimnesveg 18 á Flateyri, dags. 1. september 2026.
Jafnframt er lagt fram mæliblað tæknideildar, dags. 21. september 2026.
Jafnframt er lagt fram mæliblað tæknideildar, dags. 21. september 2026.
Skipulags- og mannvirkjanefnd felur starfsmanni nefndar að ganga frá merkjalýsingu vegna lóðar við Brimnesveg 18 á Flateyri í samræmi við mæliblað tæknideildar, dags. 21. september 2026.
Gestir
- Eyþór Guðmundsson - mæting: 13:35
2.Umsókn um stækkun á lóð við Æðartanga 6, Ísafirði - 2026090331
Lagt fram erindi frá einum af þinglýstum eigendum við Æðartanga 6 á Ísafirði, þar sem óskað er eftir stækkun á lóð yfir byggingarlóð við Æðartanga 4, skv. gildandi deiliskipulagi Suðurtanga. Á lóðinni er ekki nægilegt rými fyrir nauðsynlega aðkomu, bílastæði starfsmanna og viðskiptavina, vörumóttöku, snjómokstur og aðra daglega starfsemi fyrirtækisins.
Jafnframt er lögð fram skissa með tillögu að stækkun lóðar í norðurátt.
Jafnframt er lögð fram skissa með tillögu að stækkun lóðar í norðurátt.
Skipulags- og mannvirkjanefnd hafnar erindinu þar sem það samræmist ekki gildandi deiliskipulagi Suðurtanga.
3.Fjörugusa_Umsókn um stöðuleyfi - 2026090326
Á 94. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þann 24. september 2026 var lögð fram umsókn Halldórs Karls Valssonar um stöðuleyfi vegna gufubaðs sem kallast Fjörugusan. Um er að ræða framlengingu á áður útgefnu stöðuleyfi vegna gusunnar. Jafnframt er lögð fram ljósmynd er sýnir staðsetningu og útlit.
Þar sem stöðuleyfi eru veitt til hámark 12 mánaða og eru ekki hugsuð sem varanleg úrræði er málinu vísað til skipulags- og mannvirkjanefndar til umfjöllunar.
Þar sem stöðuleyfi eru veitt til hámark 12 mánaða og eru ekki hugsuð sem varanleg úrræði er málinu vísað til skipulags- og mannvirkjanefndar til umfjöllunar.
Skipulags- og mannvirkjanefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi veiti stöðuleyfi til eins árs, vegna Fjörugusu við Suðurtanga.
Nefndin bendir á að stöðuleyfi sé ekki hugsað sem varanleg lausn og að félagið geti ekki reiknað með endurnýjun að ári liðnu.
Nefndin hvetur umsækjanda til þess að leita varanlegra lausna.
Nefndin bendir á að stöðuleyfi sé ekki hugsað sem varanleg lausn og að félagið geti ekki reiknað með endurnýjun að ári liðnu.
Nefndin hvetur umsækjanda til þess að leita varanlegra lausna.
4.Sundstræti 20, Ísafirði. Fyrirspurn til byggingarfulltrúa - 2026090300
Lögð fram fyrirspurn frá þinglýstum eiganda fasteignar við Sundstræti 20 á Ísafirði, dags. 14. september 2026.
Óskað er eftir áliti skipulags- og mannvirkjanefndar á uppbyggingu einbýlishúss á lóðinni. Í dag er lóðin skilgreind sem iðnaðar- og athafnalóð
Geymsluskúr er án lóðarréttinda en í deiliskipulagi svæðis er gert ráð fyrir að á lóð verði áfram nýtt undir geymsluhúsnæði.

Skipulags- og mannvirkjanefnd setur sig ekki upp á móti erindinu og felur starfsmanni nefndarinnar að svara því.
5.Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 94 - 2609007F
Lögð fram til kynningar, 94. fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa en fundur var haldinn 24. september 2026.
Lagt fram til kynningar.
Eyþór Guðmundsson, deildarstjóri umhverfis- og eignasviðs, yfirgaf fund kl. 14:25.
Fundi slitið - kl. 14:25.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?