Skipulags- og mannvirkjanefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
681. fundur 21. október 2026 kl. 08:15 - 09:25 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Anton Helgi Guðjónsson varaformaður
  • Arnheiður Steinþórsdóttir varamaður
    Aðalmaður: Tinna Rún Snorradóttir
  • Þóra Marý Arnórsdóttir aðalmaður
  • Helgi Karl Guðmundsson aðalmaður
  • Jóhann Bæring Gunnarsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Helga Þuríður Magnúsdóttir verkefnastjóri
  • Eyþór Guðmundsson deildarstjóri
Fundargerð ritaði: Helga Þuríður Magnúsdóttir verkefnastjóri
Dagskrá
Edda María Hagalín, fjármálastjóri og Smári Karlsson verkefnastjóri á umhverfis og eignasviði, mæta til fundar kl. 8:15.

1.Viðhaldsáætlun 2027 - 2026030242

Viðhaldsáætlun Ísafjarðarbæjar 2027 - 2037 er lögð fram til síðari umræðu í skipulags- og mannvirkjanefnd. Að lokinni umfjöllun nefndarinnar er lagt til að viðhaldsáætluninni verði vísað til bæjarráðs til fyrri umræðu.
Skipulags- og mannvirkjanefnd vísar viðhaldsáætlun Ísafjarðarbæjar 2027 - 2037 til bæjarráðs.

Gestir

  • Smári Karlsson - mæting: 08:15
  • Edda María Hagalín - mæting: 08:15

2.Framkvæmdaáætlun - 2026030241

Framkvæmdaáætlun Ísafjarðarbæjar 2027-2037 er lögð fram til síðari umræðu í skipulags- og mannvirkjanefnd. Að lokinni umfjöllun nefndarinnar er lagt til að framkvæmdaáætluninni verði vísað til bæjarráðs til fyrri umræðu.
Skipulags- og mannvirkjanefnd vísar framkvæmdaáætlun Ísafjarðarbæjar, A og B hluta 2027-2037, til bæjarráðs.
Nefndin ítrekar þó mikilvægi þess að tryggja nægt lóðarframboð til íbúðaruppbyggingar á næstu árum.
Edda María Hagalín og Smári Karlsson yfirgáfu fund kl. 8:52.
Þóra Marý Arnórsdóttir yfirgefur fund kl. 8:59.

3.Uppbygging akstursíþróttasvæðis á Seljalandsdal - 2026060030

Á 174. fundi umhverfis- og framkvæmdanefndar, þann 19. október 2026, var tekið fyrir erindi frá Páli Janusi Þórðarsyni fyrir hönd Akstursíþróttadeildar Vestra dagsett 3. júní 2026, varðandi uppbyggingu akstursíþróttasvæðis á Seljalandsdal. Á 45. fundi skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar var erindinu vísað til umhverfis- og framkvæmdanefndar til umsagnar.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd benti á að svæðið er utan vatnsverndarsvæðis en það er á innan svæðis náttúruminjaskrár og það ber að taka tillit til þess við framkvæmdir á svæðinu. Málinu er nú vísað til frekari afgreiðslu í skipulags- og mannvirkjanefnd.
Skipulags- og mannvirkjanefnd tekur vel í erindið og vísar erindinu til skipulagsfulltrúa til áframhaldandi vinnu.
Þóra Marý mætir aftur til fundar kl. 9:04.

4.Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2025-2050 - 2025060065

Á 679. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, þann 29. september 2026, óskaði nefndin eftir afstöðu íbúasamtakanna Átaks vegna landnotkunar á Þingeyri vegna erindis frá Katli Berg Magnússyni, dags. 21. september 2026 þar sem óskað er eftir því að endurskoða landnotkun í vinnslutillögu Aðalskipulags Ísafjarðarbæjar 2025-2050 á Þingeyri.

Óskin sneri að því að strandsvæðið frá Tanknum við Sjávargötu út fyrir Skjólvík verði merkt opið svæði (OP) í vinnslutillögunni áður en hún fer til afgreiðslu í skipulags- og mannvirkjanefnd, með mörk miðsvæðis við Tankinn og Fjarðargötu 42 sem VÞ.

Nú er lögð fram umsögn íbúasamtakanna Átaks/hverfisráðs Þingeyrar, dags. 5. október 2026.
Skipulags- og mannvirkjanefnd þakkar umsögn íbúasamtakanna Átaks og samþykkir erindið um að strandsvæðið frá Tanknum við Sjávargötu út fyrir Skjólvík verði merkt opið svæði (OP) í Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2025-2050.

5.Nýtt deiliskipulag vegna frístundahúss, á landi Neðsta-Hvamms 3B í Dýrafirði - 2026090328

Lagt fram erindi frá einum af þinglýstum eigendum við Neðsta-Hvamm 3b í Dýrafirði, þar sem óskað er eftir heimild Ísafjarðarbæjar til að hefja vinnu við nýtt deiliskipulag í landi Hvamms, fyrir eitt frístundahús og tvö gestahús, ásamt aðkomu og veitum.
Jafnframt er lögð fram skipulagslýsing unnin af M11 arkitektum, vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á parti 3 Neðsta-Hvamms 3B í Dýrafirði, dags. 22. september 2026.
Skipulags- og mannvirkjanefnd felur skipulagsfulltrúa að yfirfara forsendur erindisins með tilliti til eignarheimilda.

6.Skipulagsdagurinn 2026 - 2026100089

Lögð fram tilkynning frá HMS, með kynningu á Skipulagsdeginum 2026 sem fer fram þann 5. nóvember, kl 9-16 í Háteig á Grandhótel og í beinu streymi.

Dagskrá dagsins skiptist niður í fjóra hluta:
Samþætting skipulagsmála og húsnæðisáætlana
Staða og þróun skipulagsmála og landnýtingar
Aðlögun byggðar að loftslagsbreytingum
Menningarlandslag, ásýnd byggðar í dreifbýli og þéttbýli

Í lok hvers hluta verða pallborðsumræður og tekið við spurningum úr sal. Fjölbreyttur hópur frummælenda og sérfræðinga mun koma að pallborðsumræðum.
Fagfólk, kjörnir fulltrúar og allt áhugafólk um skipulag er hvatt til að taka daginn frá.
Skipulags- og mannvirkjanefnd hvetur kjörna fulltrúa og almenning að fylgjast með skipulagsdeginum í beinu streymi.

7.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - 2026010014

Lagt fram erindi frá innviðaráðuneytinu, dags. 8. október 2026, þar sem kynnt er til samráðs mál nr. 205/2026 „Drög að reglugerð um þjónustustöðvar björgunarfleka“.

Umsagnarfrestur er til og með 28. október 2026.
Lagt fram til kynningar.
Mál tekið inn með afbrigðum að beiðni formanns.

8.Lagnaleið ljósleiðara í Tungudal, Skutulsfirði - 2026100174

Lagt fram til kynningar, erindi frá Jóhanni Egilssyni hjá Snerpu ehf. dags. 6. október 2026, með ósk um leyfi frá Ísafjarðarbæ sem eiganda að jörðinni Tungu í Skutulsfirði til lagningar ljósleiðara að Tungudalsvirkjun annars vegar og hins vegar að barnalyftu á skíðasvæðinu í Tungudal.
Skipulags- og mannvirkjanefnd felur skipulagsfulltrúa að kalla eftir nauðsynlegum gögnum og leggja mat á hvort fyrirhuguð lagnagerð sé framkvæmdaleyfisskyld samkvæmt reglugerð nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi eða teljist óveruleg framkvæmd. Verði framkvæmdin metin framkvæmdaleyfisskyld verði málið lagt fyrir nefndina að nýju til afgreiðslu.

Fundi slitið - kl. 09:25.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?