Skipulags- og mannvirkjanefnd
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Tímabundinn samningur um skipulagsmál 11. nóvember 2026 - 2026110041
Lagður fram tímabundinn samningur við Ólöfu Guðnýju Valdimarsdóttur, skipulagsráðgjafa. Ólöf mætir til fundar og mun styðja við starf sviðsins í skipulagsmálum á meðan fyrirhugaðar skipulagsbreytingar taka gildi.
Lagt fram til kynningar.
Gestir
- Ólöf Guðný Valdimarsdóttir - mæting: 13:30
2.Lagnaleið ljósleiðara í Tungudal, Skutulsfirði - 2026100174
Lögð fram viðbótargögn vegna fyrirhugaðrar lagnaleiðar ljósleiðara í Tungudal, Skutulsfirði, í samræmi við bókun skipulags- og mannvirkjanefndar frá 21. október 2026, þar sem skipulagsfulltrúa var falið að kalla eftir nauðsynlegum gögnum vegna málsins.
Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkir framkvæmdina, þar sem hún telur að um óverulega framkvæmd að ræða, miðað við fyrirliggjandi gögn.
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að heimila lagningu heimtauga í Tungudal í samræmi við framlögð gögn.
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að heimila lagningu heimtauga í Tungudal í samræmi við framlögð gögn.
3.Ytri Veðrará í Önundarfirði. Umsókn um skipulag - 2025090035
Lagt fram erindi frá Vesturós ehf. varðandi græna iðngarða í Breiðadal, dags. 27. október 2026.
Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkir ósk um endurskoðun á breytingu á landnotkun vegna grænna iðngarða í Breiðadal í aðalskipulagi skv. erindinu og vísar því inn í vinnu við Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2025-2050.
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að heimila landeiganda að hefja vinnu við gerð deiliskipulagslýsingar skv. 38.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að heimila landeiganda að hefja vinnu við gerð deiliskipulagslýsingar skv. 38.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
4.Fjarðarstræti 11 - Umfangsflokkur 1 - 2026030221
Á 669. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar þann 31. mars 2026, var lögð fram fyrirspurn Jóhanns Birkis Helgasonar vegna fyrirhugaðra framkvæmda á húsinu en óskað er eftir því að fá að hækka húsið um eina hæð. Jafnframt eru lögð fram drög að aðaluppdrætti sem fullkláraður verður ef vel verður tekið í málið. Óskað var eftir afstöðu skipulags- og mannvirkjanefndar vegna málsins. Skipulags- og mannvirkjanefnd bókaði að umsækjanda bæri að óska eftir því að grenndarkynna áformin, skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags- og mannvirkjanefnd bókaði á fundi nr. 673, þann 18. júní 2026:
Húsið við Fjarðarstræti 11 á Ísafirði er byggt árið 1934 í fúnkísstíl og fellur því beint undir lög um menningarminjar. Þar sem það er reist fyrir 1940 er skylt að leita umsagnar Minjastofnunar Íslands áður en ráðist er í hvers kyns breytingar á ytra útliti þess. Einnig er í gildi á umræddu svæði, Verndarsvæði í byggð, á Eyrinni. Skipulags- og mannvirkjanefnd óskar eftir umsögn Minjastofnunar.
Nú er lögð fram til kynningar, umsögn Minjastofnunar, með tölvupósti, dags. 21. október 2026.

Skipulags- og mannvirkjanefnd felst ekki á fyrirliggjandi hugmyndir að breytingu hússins við Fjarðarstræti 11, með vísan í umsögn Minjastofnunar.
5.Samráðshópur um umferðarmál vegna kláfs á Eyrarfjall - 2026100156
Á 1385. fundi bæjarráðs, þann 22. október 2026, var lagt fram erindi Gissurar Skarphéðinssonar, framkvæmdastjóra Eyrarkláfs ehf., dags. 18. október 2026, þar sem lagt er til að settur verði á fótur samráðshóðpur um umferðarmál, en í honum sætu fulltrúar Ísafjarðarbæjar, íbúar í hlíðinni og fulltrúar Eyrarkláfs ehf. Hlutverk hópsins yrði meðal annars að móta lausnir í tengslum við rútuumferð, skoða leiðir til að koma gestum að kláfnum og fylgjast með áhrifum á framkvæmdatíma og eftir opnun og leggja til breytingar eftir þörfum.
Ísafjarðarbær fól bæjarstjóra að sitja fyrir sína hönd í samráðshópi Eyrarkláfs ehf.
Bæjarráð vísaði erindinu til kynningar í skipulags- og mannvirkjanefnd og umhverfis- og framkvæmdanefnd.
Ísafjarðarbær fól bæjarstjóra að sitja fyrir sína hönd í samráðshópi Eyrarkláfs ehf.
Bæjarráð vísaði erindinu til kynningar í skipulags- og mannvirkjanefnd og umhverfis- og framkvæmdanefnd.
Lagt fram til kynningar.
6.Skipulagsbreytingar umhverfis- og eignasvið - nýtt skipurit 2026 - 2026100131
Á 1385. fundi bæjarráðs, þann 22. október 2026, var lagt fram minnisblað Gylfa Ólafssonar, bæjarstjóra, dags. 19. október 2026, varðandi skipulagsbreytingar á umhverfis- og eignasviði. Lagt er til að uppfært skipurit verði fellt inn í skipurit sveitarfélagsins í heild og lagt fyrir bæjarstjórn til samþykktar.
Bæjarráð vísar málinu til skipulags- og mannvirkjanefndar og umhverfis- og framkvæmdanefndar til umsagnar.
Bæjarráð vísar málinu til skipulags- og mannvirkjanefndar og umhverfis- og framkvæmdanefndar til umsagnar.
Skipulags- og mannvirkjanefnd gerir ekki athugasemd við skipulagsbreytingar á umhverfis- og eignasviði.
Gestir
- Gylfi Ólafsson, bæjarstjóri - mæting: 14:20
7.Hauganes - Beiðni um lóðaúthlutun - 2026040101
Á 1386. fundi bæjarráðs, þann 29. október 2026, var lögð fram drög að samningi milli Ísafjarðarbæjar og Fjallabóls ehf. vegna lóðaúthlutunar vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar lauga, hótels og heilsuræktarstöðvar við Hauganes, ásamt verk og hönnunaráætlun.
Jafnframt lagt fram minnisblað Gylfa Ólafssonar, bæjarstjóra, dags. 28. október 2026, þar sem óskað er eftir heimild til að ganga frá samningi við Hauganes ehf. og leggja fullunninn samning fyrir bæjarstjórn til samþykktar.
Bæjarráð fól bæjarstjóra að fullvinna samning í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir skipulags- og mannvirkjanefnd til samþykktar.
Er nú samningur lagður fram til samþykktar í skipulags- og mannvirkjanefnd.

Málinu frestað til næsta fundar.
Gylfi Ólafsson yfirgaf fund kl. 14:35.
8.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - 2026010014
Lagt fram til kynningar erindi félags- og húsnæðismálaráðuneytis dags. 20. október 2026, þar sem kynnt er til samráðs mál nr. 214/2026, „Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um mannvirki nr. 160/2010 (einföldun byggingarreglugerðar og breytt byggingareftirlit)“.
Umsagnarfrestur er til og með 3. nóvember 2026.
Umsagnarfrestur er til og með 3. nóvember 2026.
Lagt fram til kynningar.
9.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - 2026010014
Lagt fram erindi frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, dags. 28. október 2026 þar sem kynnt er til samráðs mál nr. 220/2026, „Drög að breytingu á reglugerð nr. 717/2011 um löggildingu rafiðnfræðinga“.
Umsagnarfrestur er til og með 18. nóvember 2026.
Umsagnarfrestur er til og með 18. nóvember 2026.
Lagt fram til kynningar.
10.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - 2026010014
Lagt fram erindi frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, dags. 23. október 2026, þar sem kynnt er til samráðs mál nr. 218/2026, „Gænbók um landgræðslu og skógrækt“.
Umsagnarfrestur er til og með 4. desember 2026.
Umsagnarfrestur er til og með 4. desember 2026.
Lagt fram til kynningar.
Ólöf Guðný Valdimarsdóttir yfirgaf kl. 14:41
Fundi slitið - kl. 14:41.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?