Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Fræðsla fyrir kjörna fulltrúa 2026 - 2026060025
Fræðsla fyrir kjörna fulltrúa frá bæjarritara.
Lagt fram til kynningar.
Bryndís yfirgaf fundinn kl.11:20.
Gestir
- Bryndís Ósk Jónsdóttir, sviðsstjóri - mæting: 11:01
2.Uppbygging akstursíþróttasvæðis á Seljalandsdal - 2026060030
Formaður akstursíþróttadeildar Vestra kynnir starfsemi deildarinnar og áform um uppbyggingu nýs akstursíþróttasvæðis.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd þakkar Tuma Þór fyrir góða kynningu og tekur jákvætt í þau áform sem kynnt voru.
Nefndin felur starfsmönnum að kalla eftir umsögnum frá þeim íþróttafélögum sem nýta skíðasvæðið á Ísafirði. Starfsmönnum jafnframt falið að fara og skoða skíðasvæðið með fulltrúum akstursíþróttadeildar Vestra.
Málinu vísað til umhverfis- og framkvæmdanefndar til umsagnar.

Tumi yfirgaf fundinn kl.11:38.
Gestir
- Tumi Þór Jóhannsson - mæting: 11:20
3.Endurskoðun á skólastefnu Ísafjarðarbæjar 2025 - 2025010085
Lögð fram lokadrög að endurskoðaðri menntastefnu Ísafjarðarbæjar ásamt minnisblöðum Hafdísar Gunnarsdóttur, sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs, dags. 24. ágúst 2026, og Sverris Óskarssonar, verkefnastjóra, dags. 17. ágúst 2026. Drögin eru afrakstur víðtæks samráðsferlis og eru lögð fram til umfjöllunar áður en þau verða lögð fyrir bæjarstjórn og stefnan sett í endanlegt útlit.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd þakkar fyrir afar vandaða og
faglega vinnu við endurskoðun menntastefnu Ísafjarðarbæjar. Nefndin
telur að vel hafi tekist að vinna úr því umfangsmikla samráði sem fram
fór, þar sem sjónarmið úr viðtölum, opnum fundum og könnun voru tekin
saman og nýtt við mótun fyrirliggjandi draga.
Nefndin tekur jákvætt í fyrirliggjandi drög og samþykkir að vísa þeim
til bæjarstjórnar til umsagnar og frekari umfjöllunar. Að þeirri
umfjöllun lokinni verði stefnan sett í endanlegt útlit og lögð að nýju
fyrir nefndina til endanlegrar afgreiðslu.

4.Nýting húsnæðis í kjallara Tónlistarskóla Ísafjarðar - 2026080136
Lagt fram minnisblað Hafdísar Gunnarsdóttur, sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs, dags. 24. ágúst 2026, varðandi framtíðarnýtingu húsnæðis fyrrum leikskólans Tanga í kjallara Tónlistarskóla Ísafjarðarbæjar sem sveitarfélagið hefur á leigu.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd felur starfsmönnum að taka saman framkvæmdaráætlun og kostnaðaráætlun varðandi tillögu 1 og leggja fyrir næsta fund nefndarinnar.
5.Staða mála í leikskólum Ísafjarðarbæjar skólaárið 2026-2027 - 2026060123
Lagt fram minnisblað Guðrúnar Birgis skóla- og sérkennslufulltrúa dagsett 21. ágúst 2026 varðandi stöðu mála í leikskólum Ísafjarðarbæjar við upphaf skólaárs 2026-2027.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd þakkar fyrir minnisblaðið og lýsir ánægju með að tekist hafi að ráða í flest stöðugildi á leikskólunum. Nefndin hefur áhyggjur af álagi á starfsfólki leikskólanna sem skapast af styttingu vinnuvikunnar og námsleyfum og óskar eftir kostnaðargreiningu á auknum stöðugildum vegna þess.
6.Niðurstöður grunnskólakönnunar Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar (ÍÆ) vorið 2026 - 2026080068
Lagðar fram niðurstöður grunnskólakönnunnar í Ísafjarðarbæ í íslensku æskulýðsrannsókninni vorið 2026.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd þakkar fyrir kynningu á niðurstöðum
grunnskólakönnunar Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar vorið 2026.
Nefndin telur niðurstöðurnar mikilvægt verkfæri til að fylgjast með
líðan, velferð og aðstæðum barna og ungmenna og mikilvægt að þær verði
nýttar áfram í aðgerðaráætlun og þróun skóla- og frístundastarfs í
sveitarfélaginu.

7.Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2025-2050 - 2025060065
Skipulags- og mannvirkjanefnd fól starfsmanni nefndar, á fundi 675, þann 7. júlí 2026, að vísa þeim köflum aðalskipulagsins sem falla undir verksvið annarra nefnda til viðkomandi nefnda til umfjöllunar.
Nú eru lagðir fram til umræðu, kafli 8.6 - Gæði byggðar, kafli 10.1 - Skólar og menntastofnanir, kafli 11. - Útivist opin svæði og íþróttir, kafli 13.1 - Göngu- hjóla og reiðleiðir og kafli 13.4 - Almenningssamgöngur.

Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd óskar eftir að fá ráðgjafa í skipulagsvinnu inn á næsta fund nefndarinnar.
8.Auglýsingaskjáir í íþróttamannvirki, skjálausnir - 2026020222
Lagðar fram til samþykktar reglur um notkun auglýsingaskjái í íþróttamannvirkjum Ísafjarðarbæjar að beiðni Gylfa Ólafssonar, bæjarstjóra.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd felur starfsmönnum að gera breytingar á reglunum í samræmi við umræður á fundinum og leggja þær svo fyrir bæjarstjórn til samþykktar.
9.Frístundakista - 2026060132
Kynnt staða verkefnisins Frístundakistan og framvinda þess frá síðustu umfjöllun.
Lagt fram til kynningar.
10.Ungmennaráð sveitarfélaga - 2025100070
Lögð fram drög að erindisbréfi fyrir ungmennaráð Ísafjarðarbæjar.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd felur starfsmönnum að gera minniháttar breytingar í samræmi við umræður á fundinum og vísar því í framhaldinu til bæjarstjórnar til samþykktar.
Fundi slitið - kl. 13:15.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?