Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
48. fundur 07. september 2026 kl. 08:10 - 10:00 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Sif Huld Albertsdóttir formaður
  • Guðni Páll Viktorsson aðalmaður
  • Stefán Hannibal Hafberg varaformaður
  • Ásgerður Þorleifsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Hafdís Gunnarsdóttir sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs
Fundargerð ritaði: Hafdís Gunnarsdóttir sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs
Dagskrá
Formaður gerir tillögu um að mál 2026070023, notkun sundlauga Ísafjarðarbæjar 2026, verði tekið inn með afbrigðum inn á dagskrá fundarins. Tillaga samþykkt.

1.Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2025-2050 - 2025060065

Á 47. fundi skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar þann 27. ágúst 2026 óskaði nefndin eftir að fá kynningu á vinnu við aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2025-2050 á næsta fundi.

Lagðir eru fram til umræðu kafli 8.6 - Gæði byggðar, kafli 10.1 - Skólar og menntastofnanir, kafli 11 - Útivist, opin svæði og íþróttir, kafli 13.1 - Göngu-, hjóla- og reiðleiðir og kafli 13.4 - Almenningssamgöngur.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd þakkar Erlu Bryndísi og Gunnari Páli fyrir góða kynningu. Nefndin leggur til að íþróttasvæði á Seljalandsdal verði stækkað í aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2025-2050 þannig að það rúmi þá fjölbreyttu íþróttaiðkun sem þar fer fram.
Erla Bryndís og Gunnar Páll yfirgáfu fundinn kl.09:25.

Gestir

  • Erla Bryndís Kristjánsdóttir - mæting: 08:10
  • Gunnar Páll Eydal - mæting: 08:10

2.Starfsáætlanir og skýrslur leikskóla í Ísafjarðarbæ skólaárið 2025-2026 - 2025100047

Lagðar fram ársskýrslur leikskóla í Ísafjarðarbæ fyrir skólaárið 2025-2026.
Lagt fram til kynningar.

3.Starfsáætlanir og skýrslur grunnskóla í Ísafjarðarbæ skólaárið 2025-2026 - 2025100050

Lagðar fram ársskýrslur grunnskóla Ísafjarðarbæjar fyrir skólaárið 2025-2026.
Lagt fram til kynningar.

4.Staða mála í leikskólum Ísafjarðarbæjar skólaárið 2026-2027 - 2026060123

Lögð fram til kynningar kostnaðargreining vegna stöðugilda í leikskólum Ísafjarðarbæjar fyrir haustönn 2026 og árið 2027. Á 47. fundi skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar sem haldinn var 27. ágúst 2026 óskaði nefndin eftir kostnaðargreiningu á auknum stöðugildum vegna álags sem skapast af styttingu vinnuvikunnar og námsleyfum starfsmanna. Einnig óskaði nefndin eftir að fá útreikninga varðandi leikskólagjöld.
Máli frestað til næsta fundar þar sem enn vantar umbeðin gögn.

5.Ósk um gerð samstarfssamnings við Golfklúbb Ísafjarðar - 2026080149

Á 1378. fundi bæjarráðs þann 27. ágúst 2026 var lagt fram erindi Guðjóns Helga Ólafssonar, formanns Golfklúbbs Ísafjarðar, mótt. 20. ágúst 2028, varðandi beiðni um gerð samstarfssamnings Ísafjarðarbæjar við Golfklúbb Ísafjarðar.

Bæjarráð vísaði erindinu til afgreiðslu í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd og telur jafnframt mikilvægt að við afgreiðslu málsins verði aflað umsagnar skipulags- og mannvirkjanefndar.

Er málið nú lagt fram í nefndinni til afgreiðslu.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd tekur vel í erindið og vísar því til skipulags- og mannvirkjanefndar til afgreiðslu.

6.Nýting húsnæðis í kjallara Tónlistarskóla Ísafjarðar - 2026080136

Lagt fram minnisblað Hafdísar Gunnarsdóttur, sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs, dagsett 4. september 2026 varðandi notkun á húsnæði í kjallara Tónlistarskóla Ísafjarðar.
Máli frestað til næsta fundar.

7.Íþróttavika Evrópu 2026 - 2026020090

Lagt fram minnisblað Dagnýjar Finnbjörnsdóttur, íþrótta- og æskulýðsfulltrúa, dags. 3. september 2026 varðandi íþróttaviku Evrópu 2026.
Lagt fram til kynningar.

Nefndin þakkar fyrir minnisblaðið og hvetur alla íbúa til að skoða dagskránna og finna eitthvað við sitt hæfi.

8.Notkun sundlauga Ísafjarðarbæjar 2026 - 2026070023

Mál tekið inn á dagskrá með afbrigðum.

Lagt fram minnisblað Hafdísar Gunnarsdóttur, sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs dags. 2. júlí 2026 varðandi notkun sundlauga í Ísafjarðarbæ mánuðina janúar til júní 2026.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 10:00.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?