Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
49. fundur 21. september 2026 kl. 08:10 - 10:45 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Sif Huld Albertsdóttir formaður
  • Guðni Páll Viktorsson aðalmaður
  • Ásgerður Þorleifsdóttir aðalmaður
  • Jónína Eyja Þórðardóttir aðalmaður
  • Hannibal Hafberg varaformaður
Starfsmenn
  • Hafdís Gunnarsdóttir sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs
  • Dagný Finnbjörnsdóttir íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
  • Guðrún Birgis skóla- og sérkennslufulltrúi
Fundargerð ritaði: Hafdís Gunnarsdóttir sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs
Dagskrá
Formaður leggur til að mál nr. 9 á dagskrá fundarins Ungmennaráð sveitarfélaga 2025100070 verði fært svo það verði 3. mál á dagskrá. Nefndarmenn samþykkja tillöguna.

1.Verkefnalisti Skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 2026-2030 - 2026090278

Lagður fram til kynningar verkefnalisti skóla- íþrótta og tómstundanefndar.
Lagt fram til kynningar.

2.Kostnaðargreining vegna stöðugilda í leikskólum Ísafjarðarbæjar fyrir haustönn 2026 og árið 2027 - 2026090127

Lagt fram til kynningar minnisblöð Eddu Maríu Hagalín, fjármálastjóra, dagsett 16. september 2027. Á 47. fundi skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar sem haldinn var 27. ágúst 2026 óskaði nefndin eftir kostnaðargreiningu á auknum stöðugildum vegna álags sem skapast af styttingu vinnuvikunnar og námsleyfum starfsmanna. Einnig óskaði nefndin eftir að fá útreikninga varðandi leikskólagjöld.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd felur starfsmönnum að senda foreldrum leikskólabarna í Ísafjarðarbæ könnun þar sem leitað verður eftir afstöðu þeirra til mismunandi valkosta varðandi gjaldskrá og fyrirkomulag vistunar.
Edda María yfirgaf fundinn kl. 09:47.

Gestir

  • Edda María Hagalín, fjármálastjóri - mæting: 08:15

3.Ungmennaráð sveitarfélaga - 2025100070

Lagt fram minnisblað Bryndísar Óskar Jónsdóttur, sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs, dags. 17. september 2026 varðandi nýjar samþykktir um ungmennaráð. Jafnframt lögð fram ný drög að samþykktunum.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd ræddi drög að samþykktum um ungmennaráð þar á meðal aldur fulltrúa, fundartíma, staðsetningu funda og fyrirkomulag ráðsins. Nefndin vísar drögunum, með þeim breytingum sem ræddar voru á fundinum, til bæjarstjórnar til samþykktar.
Bryndís yfirgaf fundinn kl. 09:25.

Gestir

  • Bryndís Ósk Jónsdóttir, sviðsstjóri - mæting: 08:48

4.Opnunartímar sundlauga í Ísafjarðarbæ - 2026090272

Lagt fram minnisblað Hafdísar Gunnarsdóttur, sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs, dags. 16. september 2027 um opnunartíma sundlauga í Ísafjarðarbæ.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd felur starfsmönnum að taka saman kostnaðarmat á mismunandi útfærslum á lengingu opnunartíma sundlauga.

5.Gjaldfrjáls og holl hressing fyrir nemendur í grunnskólum Ísafjarðarbæjar - 2026090091

Lagt fram minnisblað Hafdísar Gunnarsdóttur, sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs, dags. 9. september 2026 varðandi gjaldfrjálsa og holla hressingu fyrir nemendur í grunnskólum Ísafjarðarbæjar.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd tekur jákvætt í erindið og vísar því til bæjarstjórnar til samþykktar.

6.Framkvæmdaáætlun 2027 til 2037 - 2026030241

Lögð fram til umræðu og samþykktar framkvæmdaáætlun skóla-, íþrótta- og tómstundamála 2027-2037.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd leggur til við bæjarstjórn að komið verði á fót sérstökum fjárveitingapotti til kaupa á leiktækjum fyrir leikvelli í sveitarfélaginu.

Nefndin felur starfsmönnum að taka saman framkvæmdalista hjá stofnunum skóla- og tómstundasviðs til skipulags- og mannvirkjanefndar til frekari forgangsröðunar.

7.Viðhaldsáætlun 2027 - 2026030242

Lögð fram til umræðu viðhaldsáætlun skóla-, íþrótta- og tómstundamála 2027.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd felur starfsmönnum að taka saman lista yfir viðhaldsverkefni hjá stofnunum skóla- og tómstundasviðs og senda til skipulags- og mannvirkjanefndar til frekari forgangsröðunar.

8.Farsæld - innleiðing - 2026080041

Á 1376. fundi bæjarráðs, þann 13. ágúst 2026, var lagt fram til kynningar erindi Ernu Leu Bergsteinsdóttur, dags. 10. ágúst 2026, um stöðu innleiðingar farsældarlaga á Vestfjörðum.

Bæjarráð vísaði málinu til kynningar í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd og velferðarnefnd.
Máli frestað til næsta fundar.

9.Menntaþing Vestfjarða 2026_samantekt á niðurstöðum - 2026090282

Erindi lagt fyrir að beiðni Sifjar Huldar Albertsdóttur formanns skóla- íþrótta og tómstundanefndar, niðurstöður vinnustofu um skólaþjónustu sem fram fór á Menntaþingi Vestfjarða 8. júní 2026.
Máli frestað til næsta fundar.

Fundi slitið - kl. 10:45.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?