Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
50. fundur 05. október 2026 kl. 08:10 - 09:30 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Júlía Ósk Bjarnadóttir
    Aðalmaður: Sif Huld Albertsdóttir
  • Guðni Páll Viktorsson aðalmaður
  • Þorvaldur Óli Ragnarsson
    Aðalmaður: Ásgerður Þorleifsdóttir
  • Jónína Eyja Þórðardóttir aðalmaður
  • Hannibal Hafberg varaformaður
Starfsmenn
  • Hafdís Gunnarsdóttir sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs
  • Dagný Finnbjörnsdóttir íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
  • Guðrún Birgis skóla- og sérkennslufulltrúi
Fundargerð ritaði: Hafdís Gunnarsdóttir sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs
Dagskrá

1.Verkefnalisti Skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 2026-2030 - 2026090278

Lagður fram til kynningar verkefnalisti skóla- íþrótta og tómstundanefndar.
Lagt fram til kynningar.

2.Farsæld - innleiðing - 2026080041

Á 1376. fundi bæjarráðs, þann 13. ágúst 2026, var lagt fram til kynningar erindi Ernu Leu Bergsteinsdóttur, dags. 10. ágúst 2026, um stöðu innleiðingar farsældarlaga á Vestfjörðum.

Bæjarráð vísaði málinu til kynningar í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd og velferðarnefnd.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd þakkar Ernu Leu fyrir góða kynningu. Nefndin óskar eftir að fá verkefnastjóra Ísafjarðarbæjar í innleiðingu á lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna inn á næsta fund nefndarinnar til að fara yfir stöðu Ísafjarðarbæjar gagnvart aðgerðaráætlun farsældarráðs Vestfjarða.
Erna Lea yfirgaf fundinn kl. 08:35.

Gestir

  • Erna Lea Bergsteinsdóttir - mæting: 08:20

3.Menntaþing Vestfjarða 2026_samantekt á niðurstöðum - 2026090282

Erindi lagt fyrir að beiðni Sifjar Huldar Albertsdóttur formanns skóla- íþrótta og tómstundanefndar, niðurstöður vinnustofu um skólaþjónustu sem fram fór á Menntaþingi Vestfjarða 8. júní 2026.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd felur starfsmönnum að taka saman gögn um skólaþjónustu í sveitarfélaginu m.a. um fjölda sérfræðinga sem veita þjónustuna og hvaða þjónusta er í boði í Ísafjarðarbæ.

4.Reglur Ísafjarðarbæjar um notkun upplýsinga- og auglýsingaskjáa í íþróttamannvirkjum Ísafjarðarbæjar - 2026090320

Lagðar fram til samþykktar reglur Ísafjarðarbæjar um notkun upplýsinga- og auglýsingaskjáa í íþróttamannvirkjum Ísafjarðarbæjar, auk minnisblaðs Bryndísar Óskar Jónsdóttur, sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs, dags. 23. september 2026, þar sem skýrðar eru tillögur að breytingum frá drögum sem lögð voru fyrir nefndina á 47. fundi hennar.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd vísar reglum um notkun upplýsinga- og auglýsingaskjáa í íþróttamannvirkjum Ísafjarðarbæjar til bæjarstjórnar til samþykktar.

5.Staða mála í leikskólum Ísafjarðarbæjar skólaárið 2026-2027 - 2026060123

Kynnt staða mála í leikskólum Ísafjarðarbæjar.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd óskar eftir að leikskólastjórum Ísafjarðarbæjar verði boðið til samráðs á næsta fundi nefndarinnar.

6.Leikskólanum Sólborg ósk um að færa til daga innan skóladagatals - 2026100018

Lagt fram erindi frá Kristjönu Dröfn Valgeirsdóttur leikskólastjóra leikskólans Sólborgar, er varðar beiðni um heimild til að færa fyrirhugaða starfsdaga leikskólans Sólborgar frá 5. og 7. maí til 21. og 23. apríl nk.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir beiðni leikskólastjóra Sólborgar um að færa umrædda starfsdaga, enda er fyrirvarinn nægjanlega langur.

7.Notkun sundlauga Ísafjarðarbæjar 2026 - 2026070023

Lagt fram minnisblað Hafdísar Gunnarsdóttur, sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs, dags. 1. október 2026 um nýtingu sundlauga Ísafjarðarbæjar og kostnaðarmat vegna mögulegrar lengingar opnunartíma.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd felur starfsmönnum að taka saman kostnað og útfæra mögulegar leiðir til að lengja opnunartíma sundlauga og leggja fram tillögur fyrir nefndina.

Fundi slitið - kl. 09:30.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?