Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
Formaður leggur til að mál nr. 2026100215 Óháð heildarúttekt á leikskólamálum verði tekið inn með afbrigðum. Tillaga samþykkt.
1.Verkefnalisti Skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 2026-2030 - 2026090278
Verkefnalisti skóla- íþrótta- og tómstundanefndar lagður fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
2.Notkun sundlauga Ísafjarðarbæjar 2026 - 2026070023
Lagt fram minnisblað Hafdísar Gunnarsdóttur, sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs, dags. 1. október 2026 um nýtingu sundlauga Ísafjarðarbæjar og kostnaðarmat vegna mögulegrar lengingar opnunartíma.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd leggur til við bæjarstjórn að gert verði ráð fyrir, í fjárhagsáætlun ársins 2027, aukinni opnun sundlauga á Suðureyri, Flateyri og Þingeyri sem nemur 4 klst. á föstudögum á vetraropnunartíma.
3.Afnot rafíþróttardeildar af gamla barnaskólanum í Hnífsdal - 2026100111
Lagður fram tölvupóstur frá Höllu Sigrúnu Sveinbjörnsdóttur, dags. 13. október 2026, fyrir hönd Rafíþróttadeildar Vestra, þar sem óskað er eftir afnotum af gamla barnaskólanum í Hnífsdal fyrir starfsemi deildarinnar.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd felur starfsmönnum að útbúa drög að samstarfssamningi Ísafjarðarbæjar og Rafíþróttadeild Vestra og leggja fyrir næsta fund nefndarinnar.
4.Lýðheilsuvísar 2026 og 2025 greindir fyrir Ísafjarðarbæ - 2026100167
Lagðir fram Lýðheilsuvísar fyrir árin 2025 og 2026 sem unnir eru af Embætti landlæknis dags. 13. október 2026.
Lagt fram til kynningar.
5.Efling félagsmiðstöðvarstarfs í Ísafjarðarbæ - 2026100084
Lagt fram minnisblað Dagnýjar Finnbjörnsdóttur, íþrótta- og æskulýðsfulltrúa, dags. 9. október 2026 um eflingu félagsmiðstöðvarstarfs í Ísafjarðarbæ.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd leggur til við bæjarstjórn að bætt verði við 100% stöðugildi forstöðumanns félagsmiðstöðvarinnar Djúpsins, sem er með starfsemi í öllum kjörnum sveitarfélagsins, við gerð næstu fjárhagsáætlunar.
Nefndin telur brýnt að efla félagsmiðstöðvastarf í ljósi aukinna áskorana sem snúa að geðheilsu ungmenna, forvarnarstarfi og þátttöku ungmenna. Öflugt og aðgengilegt félagsstarf er ein mikilvægasta forvörn sveitarfélagsins og skapar ungmennum öruggan vettvang og jákvæð tengsl utan skólatíma.
Tillagan er í samræmi við markmið Forvarnar- og lýðheilsustefnu Ísafjarðarbæjar 2026-2031, þar sem lögð er sérstök áhersla á forvarnir, vellíðan og virka þátttöku barna og ungmenna á aldrinum 11-18 ára. Nefndin telur að sveitarfélagið verði að bregðast við breyttum þörfum ungmenna með markvissri uppbyggingu félagsmiðstöðvastarfs og eflingu faglegs stuðnings við starfsemina.

6.Starfsáætlanir og skýrslur leikskóla í Ísafjarðarbæ skólaárið 2026-2027 - 2026100205
Lagðar fram til kynningar starfsáætlanir leikskóla fyrir skólaárið 2026- 2027
Nefndin þakkar leikskólastjórum fyrir gott samtal um leikskólamál.
Gestir yfirgáfu fundinn kl.10:10.
Gestir
- Svava Rán Valgeirsdóttir - mæting: 09:30
- Inga Jóna Sigurðardóttir - mæting: 09:30
- Kristjana Dröfn Valgeirsdóttir - mæting: 09:30
- Marta Sif Ólafsdóttir - mæting: 09:30
- Hildur Sólmundsdóttir - mæting: 09:30
7.Endurskoðun verkefnasamninga 2025 - 2025040086
Lagt fram minnisblað Dagnýjar Finnbjörnsdóttur, íþrótta- og æskulýðsfulltrúa dags. 22. október 2026 um endurskoðun verkefnasamninga, samantekt.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir form að verkefnasamning og felur starfsmanni að vinna málið áfram.
8.Óháð heildarúttekt á leikskólamálum - 2026100215
Mál tekið inn með afbrigðum inn á dagskrá fundarins.
Lagt fram erindi Svanfríðar Bergvinsdóttur, bæjarfulltrúa Samfylkingar, dags. 23. október 2026 þar sem lagt er til að gerð verði óháð heildarúttekt á leikskólamálum í Ísafjarðarbæ.
Lagt fram erindi Svanfríðar Bergvinsdóttur, bæjarfulltrúa Samfylkingar, dags. 23. október 2026 þar sem lagt er til að gerð verði óháð heildarúttekt á leikskólamálum í Ísafjarðarbæ.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd felur starfsmanni að gera verðkönnun á framkvæmd úttektar af þessari stærðargráðu og leggja niðurstöður fyrir nefndina.
Sigurrós Elddís Huldudóttir, fulltrúi Samfylkingar í nefndinni, leggur fram eftirfarandi bókun:
"Fulltrúi Samfylkingarinnar fagnar því að nefndin samþykki að kostnaðarmeta óháða tölfræðilega upplýsingasöfnun um leikskólamál í Ísafjarðarbæ. Gögnin sem mögulega fást með úttektinni koma til með að styrkja grundvöll framtíðar ákvarðana kjörinna fulltrúa. Henni er ætlað að meta aðgerðir sem innleiddar voru í kjölfar vinnu starfshóps um leikskólamál árið 2024. Markmiðið með könnuninni, ef af henni verður, er að fá fram ólíka reynslu foreldra og starfsfólks af áorðnum breytingum, þar sem tekið er tillit til aðstæðna foreldra, en við teljum að núverandi gögn um breytingarnar séu ekki fullnægjandi."

Fundi slitið - kl. 10:15.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?