Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Verkefnalisti Skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 2026-2030 - 2026090278
Kynnt staða verkefnalista skóla- íþrótta- og tómstundanefndar.
Lagt fram til kynningar.
2.Staða skólaþjónustu í leik- og grunnskólum Ísafjarðarbæjar 2026 - 2026100274
Lagt fram til kynningar minnisblað Guðrúnar Birgis skóla- og sérkennslufulltrúa dagsett 30. október 2026 er varðar skólaþjónustu leik- og grunnskóla Ísafjarðarbæjar skipulag, þjónustuframboð og helstu áskoranir varðandi mönnun, aðgengi og álag.
Lagt fram til kynningar.
3.Reglur um síma og snjalltæki á skólatíma 2026 - 2026110118
Lagt fram til kynningar drög að nýjum símareglum Grunnskólans á Ísafirði sem eru unnar eftir reglugerð um notkun síma og snjalltækja í grunnskóla og frístundaheimilum nr. 945/2026. Jafnframt eru lögð fram drög að umsóknareyðublaði fyrir geymslu síma í skólanum.
Lagt fram til kynningar.
4.Svæðisbundin farsældaráætlun Vestfjarða 2026-2030 - 2026110051
Lögð fyrir svæðisbundin aðgerðaráætlun farsældarráðs vegna farsældar á Vestfjörðum 2026-2030 frá Ernu Leu Bergsteinsdóttur, dags. 29. september 2026 ásamt minnisblaði og kynningarskjali.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd tekur jákvætt í markmið Svæðisbundinnar forgangsröðunar aðgerða vegna farsældar á Vestfjörðum 2026-2030 og fagnar auknu samstarfi sveitarfélaga og stofnana í þágu barna og fjölskyldna á Vestfjörðum.
Nefndin bendir þó á að nokkrar þeirra aðgerða sem áætlunin felur í sér kunna að hafa í för með sér ný verkefni og aukinn kostnað fyrir sveitarfélagið. Mikilvægt er að áður en ráðist verður í framkvæmd einstakra aðgerða liggi fyrir nánara mat á áhrifum þeirra á rekstur, mannaflaþörf og fjárhagsáætlanir viðkomandi stofnana og málaflokka.
Nefndin leggur því áherslu á að áður en ráðist verður í framkvæmd þeirra aðgerða sem snúa að Ísafjarðarbæ liggi fyrir sérstakt mat á fjárþörf, kostnaðarskiptingu, mannaflaþörf og framkvæmd þeirra, svo unnt sé að taka upplýsta ákvörðun um forgangsröðun og fjármögnun verkefnanna.
Að öðru leyti vísar nefndin málinu til bæjarstjórnar til frekari afgreiðslu.
Nefndin bendir þó á að nokkrar þeirra aðgerða sem áætlunin felur í sér kunna að hafa í för með sér ný verkefni og aukinn kostnað fyrir sveitarfélagið. Mikilvægt er að áður en ráðist verður í framkvæmd einstakra aðgerða liggi fyrir nánara mat á áhrifum þeirra á rekstur, mannaflaþörf og fjárhagsáætlanir viðkomandi stofnana og málaflokka.
Nefndin leggur því áherslu á að áður en ráðist verður í framkvæmd þeirra aðgerða sem snúa að Ísafjarðarbæ liggi fyrir sérstakt mat á fjárþörf, kostnaðarskiptingu, mannaflaþörf og framkvæmd þeirra, svo unnt sé að taka upplýsta ákvörðun um forgangsröðun og fjármögnun verkefnanna.
Að öðru leyti vísar nefndin málinu til bæjarstjórnar til frekari afgreiðslu.
5.Notkun sundlauga Ísafjarðarbæjar 2026 - 2026070023
Lagt fyrir erindi frá Tinnu Ottesen, íbúa á Þingeyri, dags. 5. október 2026 varðandi notkun, opnunartíma og aðgengi að íþróttamiðstöðinni á Þingeyri.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd felur starfsmanni nefndarinnar að svara bréfritara út frá umræðum á fundinum.
6.Beiðni um endurnýjun á samningi við Ísafjarðarbæ - 2026080087
Lagt fyrir erindi Hebu Þrastardóttur og Andreu Gylfadóttur, eigenda Ísófit ehf. sem rekur líkamsræktina Stöðina á Ísafirði, dags. 13. ágúst 2026 þar sem óskað er eftir endurnýjun á samstarfssamningi við Ísafjarðarbæ. Jafnframt er lagt fyrir minnisblað Hafdísar Gunnarsdóttur, sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs, dags. 11. nóvember 2026 þar sem farið er yfir núgildandi samstarfssamning.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd felur starfsmanni að vinna drög að nýjum samningi við Ísófit ehf. með tilliti til þess að framlag sveitarfélagsins verði skilgreint sem samstarfsframlag til lýðheilsueflingar, tengt markmiðum forvarna- og lýðheilsustefnu Ísafjarðarbæjar 2026-2031 með mælanlegum árangursviðmiðum og áherslu á gagnsæi. Drögin verði lögð fyrir nefndina að nýju.
Ásgerður Þorleifsdóttir vék af fundi undir þessum lið, kl.09:10.
7.Uppbyggingasamningar 2027 - 2026090134
Lagðar fyrir umsóknir frá aðildarfélögum HSV um uppbyggingarsamninga árið 2027 ásamt minnisblaði Dagnýjar Finnbjörnsdóttur, íþrótta- og æskulýðsfulltrúa, dags. 20. október 2026.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd frestar málinu til næsta fundar.
Sigríður yfirgaf fund kl.09:45.
Gestir
- Sigríður Gísladóttir, formaður HSV - mæting: 09:10
Fundi slitið - kl. 10:05.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?