Umhverfis- og framkvæmdanefnd
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Almenningssamgöngur 2026 - 2026070027
Lögð eru fram gögn vegna undirbúnings útboðs á almenningssamgöngum og skólaakstri í Ísafjarðarbæ. Meðal framlagðra gagna eru eldri samningur og eldri leiðaráætlun, sem legið hafa til grundvallar rekstri þjónustunnar, ásamt drögum að nýrri leiðaráætlun og útboðsgögnum. Jafnframt eru lögð fram önnur fylgigögn sem liggja til grundvallar endurskoðun þjónustunnar og gerð útboðsgagna, þar á meðal nýtingargögn, og aðrar greiningar á fyrirkomulagi almenningssamgangna og skólaaksturs.
Gögnin eru lögð fram til kynningar og umræðu. Eyþór Guðmundsson, deildarstjóri umhverfis- og eignarsviðs, mætir til fundarins og fer yfir gögnin og næstu skref.
Gögnin eru lögð fram til kynningar og umræðu. Eyþór Guðmundsson, deildarstjóri umhverfis- og eignarsviðs, mætir til fundarins og fer yfir gögnin og næstu skref.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd felur starfsmanni nefndar að halda áfram vinnu við endurskoðun leiðakerfis almenningssamgangna í Ísafjarðarbæ. Við áframhaldandi vinnu verði rýnd þau gögn og tillögur sem fyrir liggja, með sérstaka áherslu á bættar samgöngur fyrir kjarnana. Með því að metnar verði þær breytingar sem orðið hafa á forsendum frá því gögnin voru unnin. Starfsmanni nefndar falið að vinna áfram að málinu í samráði við Bolungarvíkurkaupstað, m.t.t. frístundarrútu og gögn uppfærð með hliðsjón af niðurstöðum þeirra viðræðna. Uppfærðar tillögur verði lagðar fyrir nefndina til frekari umfjöllunar og ákvörðunar.
Eyþór yfirgaf fund kl. 9.10.
Gestir
- Eyþór Guðmundsson, deildarstjóri - mæting: 08:30
2.Gjaldskrár 2027 - 2026030239
Lagðar fram til umræðu gjaldskrár sem tilheyra málaflokkum nefndarinnar, ásamt meðfylgjandi minnisblaði Eddu Maríu Hagalín, fjármálastjóra, dags. 21. ágúst 2026.
Edda María Hagalín, fjármálastjóri, og Védís Geirsdóttir, aðalbókari, mæta til fundarins undir þessum dagskrárlið.
Edda María Hagalín, fjármálastjóri, og Védís Geirsdóttir, aðalbókari, mæta til fundarins undir þessum dagskrárlið.
Nefndin óskar eftir minnisblaði um tillögur að breytingum, ásamt upplýsingum um verðbólgumarkmið sem kunna verða sett.
Védís og Edda yfirgáfu fund kl. 9.40.
Gestir
- Edda María Hagalín - mæting: 09:10
- Védís Geirsdóttir - mæting: 09:10
3.Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2025-2050 - 2025060065
Skipulags- og mannvirkjanefnd fól starfsmanni nefndarinnar á 675. fundi sínum, þann 7. júlí 2026, að senda þá kafla aðalskipulags Ísafjarðarbæjar sem falla undir verksvið annarra nefnda til umfjöllunar hjá viðkomandi nefndum.
Lögð eru fram til kynningar eftirtalin efnisatriði úr drögum að aðalskipulagi:
Kafli 4: Náttúruvá og öryggi
Kafli 5: Lífríki og landslag
Kafli 7: Óbyggð svæði og strandsvæði
Kaflar 8.2 og 8.5: Íbúðarbyggð, byggð í dreifbýli, frístundabyggð og miðsvæði
Kafli 11: Útivist og opin svæði
Kafli 12: Veitur og fjarskipti
Kafli 13: Samgöngur
Kafli 9.8: Úrgangur
Kafli 15: Landnotkun með hliðsjón af náttúruvá, aðgengi, vegakerfi, fráveitu, vatnsöflun, útivist, landslagi og umhverfisáhrifum landnotkunar.
Lögð eru fram til kynningar eftirtalin efnisatriði úr drögum að aðalskipulagi:
Kafli 4: Náttúruvá og öryggi
Kafli 5: Lífríki og landslag
Kafli 7: Óbyggð svæði og strandsvæði
Kaflar 8.2 og 8.5: Íbúðarbyggð, byggð í dreifbýli, frístundabyggð og miðsvæði
Kafli 11: Útivist og opin svæði
Kafli 12: Veitur og fjarskipti
Kafli 13: Samgöngur
Kafli 9.8: Úrgangur
Kafli 15: Landnotkun með hliðsjón af náttúruvá, aðgengi, vegakerfi, fráveitu, vatnsöflun, útivist, landslagi og umhverfisáhrifum landnotkunar.
Nefndin óskar eftir að fá ráðgjafa í skipulagsvinnu inná næsta fund nefndar.
4.Dýpkun Sundahafnar og uppdæling efnis. - 2019060026
Lagt fram til kynningar minnisblað Hlyns Kristinssonar, f.h. Eflu ehf., dags. 29. júlí 2026, um mat á móttökugetu uppdælingarefnis á Suðurtanga, þ.m.t. hæðarkóta og efnisþörf.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 10:30.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?