Umhverfis- og framkvæmdanefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
172. fundur 08. september 2026 kl. 08:30 - 10:40 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Hannibal Hafberg formaður
  • Dýrleif Arna Ómarsdóttir aðalmaður
  • Halldóra Björk Norðdahl varaformaður
  • Þorvaldur Óli Ragnarsson aðalmaður
  • Hrafnhildur Hrönn Óðinsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Axel Rodriguez Överby sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs
  • Helga Þuríður Magnúsdóttir verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Axel Rodriguez Överby Sviðsstjóri Umhverfis- og eignasviðs
Dagskrá
Gunnar Páll Eydal og Erla Bryndís hjá Verkís mættu til fundar kl. 08:30.

1.Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2025-2050 - 2025060065

Ráðgjafar Ísafjarðarbæjar hjá Verkís ehf., þau Gunnar Páll Eydal og Erla Bryndís Kristjánsdóttir, mæta til fundar til að fara yfir kafla Aðalskipulags Ísafjarðarbæjar 2025-2050.

Kafli 4: Náttúruvá og öryggi
Kafli 5: Lífríki og landslag
Kafli 7: Óbyggð svæði og strandsvæði
Kaflar 8.2 og 8.5: Íbúðarbyggð, byggð í dreifbýli, frístundabyggð og miðsvæði
Kafli 11: Útivist og opin svæði
Kafli 12: Veitur og fjarskipti
Kafli 13: Samgöngur
Kafli 9.8: Úrgangur
Kafli 15: Landnotkun með hliðsjón af náttúruvá, aðgengi, vegakerfi, fráveitu, vatnsöflun, útivist, landslagi og umhverfisáhrifum landnotkunar.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd þakkar góða kynningu.
Gestir véku af fundi kl. 09:00.

Gestir

  • Erla Bryndís Kristjánsdóttir - mæting: 08:30
  • Gunnar Páll Eydal - mæting: 08:30
Edda María Hagalín og Védís Geirsdóttir mættu til fundar kl. 09:10.

2.Gjaldskrár 2027 - 2026030239

Lagt fram minnisblað fjármálastjóra, Eddu Maríu Hagalín, dags. 19. ágúst þar sem farið er yfir vísitöluhækkanir, ásamt gjaldskrár sem heyra undir umhverfis- og framkvæmdanefnd.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd hefur farið yfir gjaldskrár, nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytingar á gjaldskrám sem heyra undir nefndina, að undanskildu áhaldahúsi.
Nefndin mun boða til aukafundar þriðjudaginn 15. september, næstkomandi og fara betur yfir gjaldskrá áhaldahúss, nefndin óskar eftir minnisblaði um rekstrargreiningu hússins sem rökstyður gjaldskrárbreytingar.

Védís Geirsdóttir vék af fundi kl. 09:40.

Gestir

  • Edda María Hagalín - mæting: 09:10
  • Védís Geirsdóttir - mæting: 09:10

3.Framkvæmdaáætlun 2027 til 2037 - 2026030241

Lögð fram til umræðu og samþykktar framkvæmdaáætlun umhverfis- og framkvæmdamála 2027-2037.
Lagt fram til kynningar.
Edda María Hagalín yfirgaf fund kl. 10:23.
Halla Sigrún Sveinbjörnsdóttir, mætir til fundar kl. 10:24.

4.Life - Icewater 2025-2030 - 2025020024

Halla Sigrún Sveinbjörnsdóttir, verkefnastjóri veitna á umhverfis- og eignarsviði, mætir á fund nefndarinnar og kynnir LIFE Icewater-verkefnið, umfang þess, helstu markmið og stöðu þeirra verkefna sem Ísafjarðarbær ber ábyrgð á. Verkefnið snýr meðal annars að greiningu og úrbótum á fráveitu-, ofanvatns- og útrásarkerfum, auk aðgerða til að draga úr mengunarálagi á Skutulsfjörð.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd þakkar góða kynningu.
Halla Sigrún Sveinbjörnsdóttir, yfirgefur fund kl. 10:38

Gestir

  • Halla Sigrún Sveinbjörnsdóttir - mæting: 10:24

5.Göngustígar og merktar gönguleiðir við Tunguskóg - 2026080128

Lögð fram ábending frá íbúa varðandi gönguleiðir og göngustíga í Tunguskógi vegna merktra gönguleiða og leiðaskilta sem hafa verið sett upp á svæðinu.
Frestað til næsta fundar.

6.Strandhreinsun Íslands ehf - erindi til Umhverfis -og framkvæmdanefndar - 2026050119

Lögð eru fram tölvupóstsamskipti milli Jake Lampe f.h. Strandhreinsunar Íslands ehf. og Ísafjarðarbæjar vegna erindis um aðstöðu og annan stuðning við strandhreinsunarverkefni á Vestfjörðum. Jafnframt er lagt fram minnisblað deildarstjóra umhverfis- og eignarsviðs um erindið, mögulega aðkomu sveitarfélagsins að verkefninu og styrkjamöguleika innan verkefnisins Strandhreinsun Íslands á vegum Umhverfis- og orkustofnunar.
Frestað til næsta fundar.

7.Samningur við Náttúrfræðistofnun um refaveiðar 2026-2028 - 2026070024

Lagður fram samningur við Náttúrufræðistofnun um refaveiðar 2026-2028, ásamt minnisblaði sviðsstjóra dags. 3. sept. sl.
Frestað til næsta fundar.

8.Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða m.t.t. lagabreytinga 1. jan. 2027 - 2026090035

Lagt fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, dags. 3. september 2026, með hliðsjón af lagabreytingum. Frá 1. janúar 2027 tekur gildi breytt fyrirkomulag heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga. Með breytingum á lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og breytingum á fyrirkomulagi matvælaeftirlits verða heilbrigðisnefndir sveitarfélaga lagðar niður í núverandi mynd og verkefni þeirra skiptast milli ríkisstofnana og sveitarfélaga. Einnig er lagt fram minnisblað Heilbrigðisnefndar Suðurnesja dags. 18. júní
Frestað til næsta fundar.

9.Aðgengismál fatlaðs fólks í Ísafjarðarbæ - 2026070029

Lagt er fram minnisblað deildarstjóra umhverfis- og eignarsviðs um aðgengismál á vegum sviðsins. Jafnframt er lögð fram skýrslan "Aðgengi að stofnunum í eigu Ísafjarðarbæjar - Úttekt og tillögur að úrbótum" sem Verkís vann fyrir sveitarfélagið.
Frestað til næsta fundar.

Fundi slitið - kl. 10:40.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?