Umhverfis- og framkvæmdanefnd
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
Edda María Hagalín og Védís Geirsdóttir mættu til fundar kl. 8:30.
1.Gjaldskrár 2027 - 2026030239
Lögð fram gjaldskrá Áhaldahúss, til þriðju umræðu, á síðasta fundi nefndar var eftirfarandi bókað.
„Umhverfis- og framkvæmdanefnd hefur farið yfir gjaldskrár, nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytingar á gjaldskrám sem heyra undir nefndina, að undanskyldu áhaldahúsi.
Nefndin mun boða til aukafundar þriðjudaginn 15. september, næstkomandi og fara betur yfir gjaldskrá áhaldahúss, nefndin óskar eftir minnisblaði um rekstrargreiningu hússins sem rökstyður gjaldskrárbreytingar“.
„Umhverfis- og framkvæmdanefnd hefur farið yfir gjaldskrár, nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytingar á gjaldskrám sem heyra undir nefndina, að undanskyldu áhaldahúsi.
Nefndin mun boða til aukafundar þriðjudaginn 15. september, næstkomandi og fara betur yfir gjaldskrá áhaldahúss, nefndin óskar eftir minnisblaði um rekstrargreiningu hússins sem rökstyður gjaldskrárbreytingar“.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd hefur farið yfir gjaldskrár og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytingu á gjaldskrá áhaldahúss.
Védís Geirsdóttir yfirgaf fund kl. 8:46.
Gestir
- Edda María Hagalín - mæting: 08:30
- Védís Geirsdóttir - mæting: 08:30
Eyþór Guðmundsson og Smári Karlsson mættu til fundar kl. 8:50.
2.Viðhaldsáætlun 2027 - 2026030242
Kynntar eru viðhaldsáætlanir Eignasjóðs, Fasteigna Ísafjarðarbæjar, Fráveitu, Vatnsveitu, Funa og Aðalsjóðs.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd hefur yfirfarið framlagða viðhaldsáætlun og telur rétt að endurskoða forgangsröðun með tilliti til brýnna verkefna þar sem eignir sveitarfélagsins liggja undir skemmdum. Starfsmanni falið að fylgja eftir forgangsröðun í samræmi við umræður á fundinum.
Edda María Hagalín yfirgaf fund kl. 9:35. Smári Karlsson yfirgaf fund kl. 9:40.
Gestir
- Smári Karlsson - mæting: 08:50
- Eyþór Guðmundsson - mæting: 08:50
3.Strandhreinsun Íslands ehf - erindi til Umhverfis -og framkvæmdanefndar - 2026050119
Lögð eru fram tölvupóstsamskipti milli Jake Lampe f.h. Strandhreinsunar Íslands ehf. og Ísafjarðarbæjar vegna erindis um aðstöðu og annan stuðning við strandhreinsunarverkefni á Vestfjörðum. Jafnframt er lagt fram minnisblað deildarstjóra umhverfis- og eignarsviðs um erindið, mögulega aðkomu sveitarfélagsins að verkefninu og styrkjamöguleika innan verkefnisins Strandhreinsun Íslands á vegum Umhverfis- og orkustofnunar.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd felur starfsmanni nefndarinnar að vinna tillögu að útfærslu og leggja fyrir nefndina að nýju.
4.Samningur við Náttúrfræðistofnun um refaveiðar 2026-2028 - 2026070024
Lagður fram samningur við Náttúrufræðistofnun um refaveiðar 2026-2028, ásamt minnisblaði sviðsstjóra dags. 3. september 2026.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd felur starfsmanni nefndar að ganga frá samkomulagi við Náttúrufræðistofnun um refaveiðar 2026-2028.
5.Aðgengismál fatlaðs fólks í Ísafjarðarbæ - 2026070029
Lagt er fram minnisblað deildarstjóra umhverfis- og eignarsviðs um aðgengismál á vegum sviðsins. Jafnframt er lögð fram skýrslan "Aðgengi að stofnunum í eigu Ísafjarðarbæjar - úttekt og tillögur að úrbótum" sem Verkís vann fyrir sveitarfélagið.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd felur starfsmanni nefndar að uppfæra fyrirliggjandi aðgengisúttekt með það að markmiði að taka saman yfirlit yfir aðgengisverkefni sveitarfélagsins og leggja aftur fyrir nefnd.
6.Skíðamót Íslands 2027 - snyrting birkis í keppnisbrautum í Tungudal - 2026090270
Lagt fram erindi Hafdísar Gunnarsdóttur, sviðsstjóra, og Ragnars Högna Guðmundssonar, forstöðumanns skíðasvæðis, dags. 16. september 2026 varðandi undirbúning fyrir Skíðamót Íslands 2027 á Ísafirði og snyrtingu birkis í keppnisbrautum í Tungudal.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd gerir ekki athugasemd við framkvæmdina en leggur áherslu á að framkvæmdin verði unnin í samráði við garðyrkjustjóra Ísafjarðarbæjar.
7.Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða m.t.t. lagabreytinga 1. jan. 2027 - 2026090035
Lagt fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, dags. 3. september 2026, með hliðsjón af lagabreytingum. Frá 1. janúar 2027 tekur gildi breytt fyrirkomulag heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga. Með breytingum á lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og breytingum á fyrirkomulagi matvælaeftirlits verða heilbrigðisnefndir sveitarfélaga lagðar niður í núverandi mynd og verkefni þeirra skiptast milli ríkisstofnana og sveitarfélaga. Einnig er lagt fram minnisblað Heilbrigðisnefndar Suðurnesja dags. 18. júní.
Lagt fram til kynningar.
8.Úrbætur í Tunguhverfi - erindi frá íbúum - 2026070081
Á fundi nr. 676 í skipulags- og mannvirkjanefnd, þann 21. júlí 2026 hvatti nefndin umhverfis- og framkvæmdanefnd til að skoða lokun á umferð vélknúinna ökutækja yfir brúnna.
Er nú málið lagt fyrir umhverfis- og framkvæmdanefndar til umfjöllunar.
Er nú málið lagt fyrir umhverfis- og framkvæmdanefndar til umfjöllunar.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd felur starfsmanni að loka fyrir alla umferð á brúnni þar sem brúin er orðin hættuleg.
Eyþór Guðmundsson yfirgaf fund kl. 10:13.
9.Göngustígar og merktar gönguleiðir við Tunguskóg - 2026080128
Lögð fram ábending frá íbúa varðandi gönguleiðir og göngustíga í Tunguskógi vegna merktra gönguleiða og leiðarskilta sem hafa verið sett upp á svæðinu.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd felur starfsmanni að fylgja eftir ábendingunni.
10.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - 2026010014
Lögð fram til kynningar, tilkynning frá samráðsgátt stjórnvalda þar sem innviðaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 179/2026, „Áform um frumvarp til laga um breytingu á umferðarlögum nr. 77/2019“.
Umsagnarfrestur er til og með 4.október 2026.
Umsagnarfrestur er til og með 4.október 2026.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 10:20.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?