Umhverfis- og framkvæmdanefnd
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Verkefnalisti umhverfis- og framkvæmdanefndar - 2026100148
Deildarstjóri umhverfis- og eignasviðs ræðir verkefni nefndarinnar.
2.Sorphirða og -förgun - útboð 2025 - 2024100021
Málið er lagt fram til kynningar og umræðu. Vinna stendur yfir við undirbúning nýs útboðs á sorphirðu og úrgangsþjónustu hjá Ísafjarðarbæ. Í minnisblaðinu er farið yfir stöðu þeirrar vinnu, núverandi þjónustufyrirkomulag og þá vinnu sem farið hefur fram vegna framtíðarfyrirkomulags lífræns úrgangs.
Lagt fram til kynningar. Umhverfis- og framkvæmdanefnd felur starfsmanni nefndar að koma með frekari kostnaðargreiningu á meðhöndlun á lífúrgangi skv. umræðum á fundi.
3.Uppbygging akstursíþróttasvæðis á Seljalandsdal - 2026060030
Á 44. fundi skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar var lagt fram erindi frá Páli Janusi Þórðarsyni fyrir hönd Akstursíþróttadeildar Vestra dagsett 3. júní 2026, varðandi uppbyggingu akstursíþróttasvæðis á Seljalandsdal. Á 45. fundi skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar var erindinu vísað til umhverfis- og framkvæmdanefndar til umsagnar.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd bendir á að svæðið er utan vatnsverndarsvæðis en það er á innan svæðis náttúruminjaskrár og það ber að taka tillit til þess við framkvæmdir á svæðinu. Málinu er vísað til frekari afgreiðslu í skipulags- og mannvirkjanefnd.
4.Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2025-2050 - 2025060065
Á 172. fundi umhverfis- og framkvæmdanefndar þann 8. september 2026 voru lagðir fram kaflar í greinargerð vinnslutillögu Aðalskipulags Ísafjarðarbæjar 2025-2050 til kynningar. Nú eru eftirfarandi kaflar lagði fram til samþykktar:
Kafli 4: Náttúruvá og öryggi
Kafli 5: Lífríki og landslag
Kafli 7: Óbyggð svæði og strandsvæði
Kaflar 8.2 og 8.5: Íbúðarbyggð, byggð í dreifbýli, frístundabyggð og miðsvæði
Kafli 11: Útivist og opin svæði
Kafli 12: Veitur og fjarskipti
Kafli 13: Samgöngur
Kafli 9.8: Úrgangur
Kafli 15: Landnotkun með hliðsjón af náttúruvá, aðgengi, vegakerfi, fráveitu, vatnsöflun, útivist, landslagi og umhverfisáhrifum landnotkunar.
Kafli 4: Náttúruvá og öryggi
Kafli 5: Lífríki og landslag
Kafli 7: Óbyggð svæði og strandsvæði
Kaflar 8.2 og 8.5: Íbúðarbyggð, byggð í dreifbýli, frístundabyggð og miðsvæði
Kafli 11: Útivist og opin svæði
Kafli 12: Veitur og fjarskipti
Kafli 13: Samgöngur
Kafli 9.8: Úrgangur
Kafli 15: Landnotkun með hliðsjón af náttúruvá, aðgengi, vegakerfi, fráveitu, vatnsöflun, útivist, landslagi og umhverfisáhrifum landnotkunar.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd telur ekki tilefni til þess að veita umsögn á þessu stigi.
5.Fundargerðir stjórnar Náttúrustofu Vestfjarða 2026 og ýmis mál - 2026100005
Lögð fram til kynningar, 160. fundargerð stjórnar Náttúrustofu Vestfjarða en fundur var haldinn 28. september 2026.
Lagt fram til kynningar.
6.Fundargerðir stjórnar Náttúrustofu Vestfjarða 2026 og ýmis mál - 2026100005
Lögð fram til kynningar, fundargerð samráðsfundar aðildarsveitarfélaga Náttúrustofu Vestfjarða (ársfundur), sem var haldinn 30. september 2026.
Jafnframt er lagt fram sögulegt yfirlit og framtíðarfyrirkomulag Náttúrustofu Vestfjarða.
Jafnframt er lagt fram sögulegt yfirlit og framtíðarfyrirkomulag Náttúrustofu Vestfjarða.
Lagt fram til kynningar.
7.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - 2026010014
Lagt fram til kynningar erindi atvinnuvegaráðuneytis, dags. 23. september 2026, þar sem kynnt er til samráðs mál nr. 180/2026, „Drög að frumvarpi til laga um náttúru- og innviðagjald“.
Umsagnarfrestur er til og með 7. október 2026.
Umsagnarfrestur er til og með 7. október 2026.
Lagt fram til kynningar.
8.Fundargerðir heilbrigðisnefndar 2026 - 2026070028
Lögð fram til kynningar, 157. fundargerð Heilbrigðisnefndar Vestfjarðasvæðis, en fundur var haldinn 2. september 2026.
Lagt fram til kynningar.
9.Fundargerðir heilbrigðisnefndar 2026 - 2026070028
Lögð fram til kynningar, 158. fundargerð Heilbrigðisnefndar Vestfjarðasvæðis, en fundur var haldinn 7. október 2026.
Lagt fram til kynningar.
10.Skipulagsdagurinn 2026 - 2026100089
Lögð fram tilkynning frá HMS, með kynningu á Skipulagsdeginum 2026 sem fer fram þann 5. nóvember, kl 9-16 í Háteig á Grandhótel og í beinu streymi.
Dagskrá dagsins skiptist niður í fjóra hluta:
Samþætting skipulagsmála og húsnæðisáætlana
Staða og þróun skipulagsmála og landnýtingar
Aðlögun byggðar að loftslagsbreytingum
Menningarlandslag, ásýnd byggðar í dreifbýli og þéttbýli
Fagfólk, kjörnir fulltrúar og allt áhugafólk um skipulag er hvatt til að taka daginn frá.
Dagskrá dagsins skiptist niður í fjóra hluta:
Samþætting skipulagsmála og húsnæðisáætlana
Staða og þróun skipulagsmála og landnýtingar
Aðlögun byggðar að loftslagsbreytingum
Menningarlandslag, ásýnd byggðar í dreifbýli og þéttbýli
Fagfólk, kjörnir fulltrúar og allt áhugafólk um skipulag er hvatt til að taka daginn frá.
Lagt fram til kynningar.
11.Almenningssamgöngur til og frá Ísafjarðarflugvelli - 2026090355
Lagt fram til kynningar erindi Vegagerðarinnar dags. 15. október 2026 varðandi samkomulag milli Vegagerðar og Ævintýraferða ehf. um breytta leiðaráætlun flugrútunnar.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 10:00.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?
Umhverfis- og framkvæmdanefnd felur starfsmanni nefndar að útbúa verkefnalista í samræmi við umræður.