Umhverfis- og framkvæmdanefnd
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
Bergrós Hjálmarsdóttir mætti til fundar klukkan 8:30.
1.Verkefnalisti umhverfis- og framkvæmdanefndar - 2026100148
Verkefnayfirlitið er sett fram til að veita umhverfis- og framkvæmdanefnd yfirsýn yfir helstu verkefni og stöðu þeirra. Verkefnin verða lögð fram til kynningar og umræðu eftir því sem við á.
Kynnt.
Gestir
- Bergrós Hjálmarsdóttir - mæting: 08:30
2.Sláttur opinna svæða 2027 - 2026110048
Lögð fram slátturkort þéttbýliskjarnanna ásamt útboðsgögnum frá 2024. Samningur Ísafjarðarbæjar er runninn út og huga þarf að nýju útboði.
Skipulags- og umhverfisfulltrúa er falið að hefja endurskoðun á slátturkorti Ísafjarðarbæjar.
3.Niðurfelling Hólsvegar af vegaskrá - 2026090307
Lögð fram til kynningar tvö erindi Vegagerðarinnar vegna Hólsvegar nr. 6282-01 í Önundarfirði. Í fyrra erindinu, dags. 14. september 2026, var tilkynnt um fyrirhugaða niðurfellingu vegarins af vegaskrá. Í síðara erindinu, dags. 27. október 2026, er tilkynnt að fallið hafi verið frá fyrirhugaðri niðurfellingu og verði Hólsvegur áfram á vegaskrá sem þjóðvegur.
Lagt fram til kynningar.
4.Skipulagsbreytingar umhverfis- og eignasvið - nýtt skipurit 2026 - 2026100131
Á 1385. fundi bæjarráðs, þann 22. október 2026, var lagt fram minnisblað Gylfa Ólafssonar, bæjarstjóra, dags. 19. október 2026, varðandi skipulagsbreytingar á umhverfis- og eignasviði. Lagt er til að uppfært skipurit verði fellt inn í skipurit sveitarfélagsins í heild og lagt fyrir bæjarstjórn til samþykktar.
Bæjarráð vísar málinu til skipulags- og mannvirkjanefndar og umhverfis- og framkvæmdanefndar til umsagnar.
Bæjarráð vísar málinu til skipulags- og mannvirkjanefndar og umhverfis- og framkvæmdanefndar til umsagnar.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti skipulagsbreytingar á umhverfis- og eignasviði.
Bergrós Hjálmarsdóttir yfirgaf fund klukkan 9:00.
5.Samráðshópur um umferðarmál vegna kláfs á Eyrarfjall - 2026100156
Á 1385. fundi bæjarráðs, þann 22. október 2026, var lagt fram erindi Gissurar Skarphéðinssonar, framkvæmdastjóra Eyrarkláfs ehf., dags. 18. október 2026, þar sem lagt er til að settur verði á fótur samráðshópur um umferðarmál, en í honum sætu fulltrúar Ísafjarðarbæjar, íbúar í hlíðinni og fulltrúar Eyrarkláfs ehf. Hlutverk hópsins yrði meðal annars að móta lausnir í tengslum við rútuumferð, skoða leiðir til að koma gestum að kláfnum og fylgjast með áhrifum á framkvæmdatíma og eftir opnun og leggja til breytingar eftir þörfum.
Ísafjarðarbær fól bæjarstjóra að sitja fyrir sína hönd í samráðshópi Eyrarkláfs ehf.
Bæjarráð vísaði erindinu til kynningar í skipulags- og mannvirkjanefnd og umhverfis- og framkvæmdanefnd.
Ísafjarðarbær fól bæjarstjóra að sitja fyrir sína hönd í samráðshópi Eyrarkláfs ehf.
Bæjarráð vísaði erindinu til kynningar í skipulags- og mannvirkjanefnd og umhverfis- og framkvæmdanefnd.
Lagt fram til kynningar.
6.Bókun hverfisráðs Dýrafjarðar vegna framkvæmda og ástands gagnstétta - 2026100160
Lagt fram erindi hverfisráðs Dýrafjarðar, dags. 5. október 2026, vegna framkvæmda og ástands gangstétta á Þingeyri.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd þakkar fyrir ábendingar hverfisráðs Dýrafjarðar og felur starfsmanni nefndar að svara erindinu.
7.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - 2026010014
Lagt fram erindi Sigrúnar Helgu Sigurjónsdóttir, sérfræðings, f.h. nefndar og greiningarsviðs Alþingis, dags. 15. október 2026, þar sem Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til loftslagslaga, 202. mál.
Frestur til að senda inn umsögn er til og með 29. október 2026.
Frestur til að senda inn umsögn er til og með 29. október 2026.
Lagt fram til kynningar.
8.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - 2026010014
Lagt fram til kynningar erindi frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, dags. 20. október 2026, þar sem kynnt er til samráðs mál nr. 213/2026, „Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013“.
Umsagnarfrestur er til og með 10. nóvember 2026.
Umsagnarfrestur er til og með 10. nóvember 2026.
Lagt fram til kynningar.
9.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - 2026010014
Lagt fram erindi frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, dags. 23. október 2026, þar sem kynnt er til samráðs mál nr. 218/2026, „Grænbók um landgræðslu og skógrækt“.
Umsagnarfrestur er til og með 4. desember 2026.
Umsagnarfrestur er til og með 4. desember 2026.
Lagt fram til kynningar.
10.Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða m.t.t. lagabreytinga 1. jan. 2027 - 2026090035
Á 1387. fundi bæjarráðs, þann 5. nóvember 2026, var lögð fram til kynngar fundargerð 4. fundar heilbrigðisnefnda og landshlutasamtaka um heilbrigðiseftirlit en fundur var haldinn þann 26. október 2026, vegna lagabreytinga sem taka gildi um næstu áramót.
Bæjarráð vísar erindinu til kynningar umhverfis- og framkvæmdanefndar.
Bæjarráð vísar erindinu til kynningar umhverfis- og framkvæmdanefndar.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 09:26.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?