Velferðarnefnd

508. fundur 08. október 2026 kl. 14:30 - 15:40 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Gerður Ágústa Sigmundsdóttir formaður
  • Sædís Ólöf Þórsdóttir varaformaður
  • Sigþór Snorrason aðalmaður
  • Martha Kristín Pálmadóttir varamaður
    Aðalmaður: Grétar Örn Eiríksson Kratsch
  • Rúnar Helgi Haraldsson varamaður
    Aðalmaður: Úlfar Logason
  • Salbjörg Sigurðardóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Margrét Geirsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Harpa Stefánsdóttir deildarstjóri félagsþjónustu
  • Þórunn Sunneva Pétursdóttir ráðgjafi á velferðarsviði
  • Jóhanna Gréta Hafsteinsdóttir ráðgjafi
Fundargerð ritaði: Harpa Stefánsdóttir deildarstjóri félagsþjónustu
Dagskrá

1.Velferðarnefnd 2026 - 2026010407

Lagðar fram upplýsingar um fullnaðarafgreiðslu mála í félagsþjónustu á velferðarsviði Ísafjarðarbæjar fyrir september 2026.
Lagt fram til kynningar.

2.Sjúkratryggingar Íslands - samningur um dagdeild Hlífar - 2026090105

Lagt fram til kynningar endurnýjun á samningi milli Sjúkratrygginga Íslands og Ísafjarðarbæjar, um dagdvalarþjónustu fyrir aldraðra einstaklinga.
Lagt fram til kynningar.

3.Samræmd grunnskráning í félagsþjónustu - 2026100046

Lagt fram til kynningar leiðbeiningar um samræmda grunnskráningu í lögbundinni félagsþjónustu.
Lagt fram til kynningar

4.Gott að eldast - Samþætting heimaþjónustu og heimahjúkrunar á Vestfjörðum - 2023070045

Lagt fram minnisblað Hörpu Stefánsdóttur deildarstjóra í félagsþjónustu dagsett 06. október 2026 um innleiðingu Móma- teymis á þjónustusvæði Ísafjarðarbæjar og Súðavíkurhrepps í samstarfi við Heilbrigðisstofnun Vestfjarða.
Lagt fram til kynningar. Nefndin fagnar þessu úrræði sem er í anda gott að eldast.

5.Forvarnar- og lýðheilsustefna Ísafjarðarbæjar 2026-2031 - 2025030036

Lögð fram til umræðna Forvarnar- og lýðheilsustefna Ísafjarðarbæjar 2026 - 2031.
Velferðarnefnd hefur þá ábyrgð að gera áætlun um forgangsröðun verkefna á grundvelli stefnunnar og það felur í sér að nefndin velji a.m.k. þrjú til fjögur mælanleg verkefni sem verði metin til kostnaðar og lögð fram, með tímaramma.
Lagt fram til kynningar. Velferðarnefndin tekur málið fyrir á næsta fundi þar sem sett verða markmið fram til næsta vors.

Fundi slitið - kl. 15:40.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?