Velferðarnefnd

509. fundur 17. nóvember 2026 kl. 14:30 - 15:30 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Gerður Ágústa Sigmundsdóttir formaður
  • Sædís Ólöf Þórsdóttir varaformaður
  • Sigþór Snorrason aðalmaður
  • Grétar Örn Eiríksson Kratsch aðalmaður
  • Salbjörg Sigurðardóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Margrét Geirsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Harpa Dan Stefánsdóttir deildarstjóri félagsþjónustu
  • Þórunn Sunneva Pétursdóttir ráðgjafi á velferðarsviði
  • Jóhanna Gréta Hafsteinsdóttir ráðgjafi
Fundargerð ritaði: Harpa Stefánsdóttir deildarstjóri félagsþjónustu
Dagskrá

1.Svæðisbundin farsældaráætlun Vestfjarða 2026-2030 - 2026110051

Erna Lea Bergsteinsdóttir verkefnastjóri farsældar hjá Vestfjarðastofu mætt til fundar og kynnir áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða vegna farsældar barna á Vestfjörðum fyrir tímabilið 2026-2030.
Velferðarnefnd tekur jákvætt í markmið Svæðisbundinnar forgangsröðunar aðgerða vegna farsældar á Vestfjörðum 2026-2030 og fagnar auknu samstarfi sveitarfélaga, stofnana og annarra samstarfsaðila í þágu barna og fjölskyldna á Vestfjörðum.

Nefndin bendir þó á að ýmsar þeirra aðgerða sem áætlunin kveður á um leiði til nýrra verkefna og aukins kostnaðar fyrir sveitarfélagið. Mikilvægt sé að áður en ákvörðun er tekin um framkvæmd einstakra aðgerða liggi fyrir mat á áhrifum þeirra á rekstur, mannaflaþörf og fjárhag þeirra stofnana og málaflokka sem í hlut eiga.

Verkefnastjóri á Vestfjarðastofu og Sviðsstjóri velferðarsviðs fóru yfir aðgerðaáætlunina á fundi þann 16. nóvember 2026.

Ljóst er að sveitarfélögin á Vestfjörðum eru ekki á sama stað í innleiðingarferli farsældar og að því þarf að huga. Velferðarnefndin leggur því til að gerð verði áætlun sem miðar við að á árinu 2027 verði fimm liðir aðgerðaáætlunar settir í forgang, þ.e. sameiginlegt verklag, samræmd fræðsluáætlun, sameiginlegt yfirlit yfir úrræði og þjónustu, samþættur stuðningur frá fyrstu stundu og efling félagsmiðstöðvastarfs. Ekki verði gert ráð fyrir sérstöku fjárframlagi til verkefnanna á árinu 2027. Í ágúst, ár hvert, verði gerð áætlun um forgangsverkefni næsta árs í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar og þau kostnaðarmetin. Áætlunin verði lögð fyrir velferðar- og fræðslunefndir sveitarfélaganna.
Erna Lea Bergsteinsdóttir yfirgaf fundinn klukkan 15:10

Gestir

  • Erna Lea Bergsteinsdóttir verkefnastjóri Farsældar barna hjá Vestfjarðastofu - mæting: 14:30

2.Velferðarnefnd - styrkbeiðnir - 2026030184

Ósk um styrkbeiðni fyrir samtök um karlaathvarf um stuðning við nýjan hjálparsíma samtakanna.
Málinu er frestað, en verður lagt fyrir á ný þegar frekari upplýsingar liggja fyrir.

3.Velferðarnefnd - styrkbeiðnir - 2026030184

Ósk um styrkbeiðni frá Kvennaathvarfinu.
Velferðarnefnd hefur tekið fyrir erindi um styrk vegna Kvennaathvarfs dagsett 06. október 2026. Nefndin fagnar því starfi sem unnið er að og þeirri þjónustu/þeim verkefnum sem erindið lýtur að. Að yfirferð lokinni samþykkir velferðarnefnd að veita styrk að fjárhæð kr. 350.000.-, sem færist á fjárhagslið styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun ársins 2027.

4.Velferðarnefnd - styrkbeiðnir - 2026030184

Í bréfi frá Stígamótum dagsett 07. október 2026 er óskað eftir fjárstuðningi fyrir árið 2027.
Velferðarnefnd hefur tekið fyrir erindi um styrk vegna Stígamóta dagsett 07. október 2026. Nefndin fagnar því starfi sem unnið er að og þeirri þjónustu/þeim verkefnum sem erindið lýtur að. Að yfirferð lokinni samþykkir velferðarnefnd að veita styrk að fjárhæð kr. 300.000.-, sem færist á fjárhagslið styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun ársins 2027.

5.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - 2026010014

Lagt fram til samráðs mál frá Dómsmálaráðuneytinu, mál nr. 225/2026, "Drög að reglugerð um framfærslu vegna umsókna um dvalarleyfi og íslenskan ríkisborgararétt". Umsóknarfrestur er til og með 16. nóvember 2026.
Lagt fram til kynningar.

6.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - 2026010014

Lagt fram til samráðs mál frá Forsætisráðuneytinu mál nr. 211/2026, Reglugerð um fósturheimilanefnd. Umsagnarfrestur er til og með 02. nóvember 2026.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 15:30.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?