Velferðarnefnd

510. fundur 19. nóvember 2026 kl. 14:30 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Gerður Ágústa Sigmundsdóttir formaður
  • Sædís Ólöf Þórsdóttir varaformaður
  • Sigþór Snorrason aðalmaður
  • Grétar Örn Eiríksson Kratsch aðalmaður
  • Úlfar Logason aðalmaður
  • Salbjörg Sigurðardóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Margrét Geirsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Harpa Dan Stefánsdóttir deildarstjóri félagsþjónustu
  • Þórunn Sunneva Pétursdóttir ráðgjafi á velferðarsviði
Fundargerð ritaði: Harpa Stefánsdóttir deildarstjóri félagsþjónustu
Dagskrá

1.Trúnaðarmál - velferðarnefnd - 2026010087

Tvö trúnaðarmál lögð fyrir.
Trúnaðarmál rædd og afgreidd, færð til bókar í trúnaðarmálamöppu velferðarnefndar.

2.Velferðarnefnd - styrkbeiðnir - 2026030184

Ósk um styrk frá Einari Erni Ásdísarsyni sem stendur að Arnarskildi sem er forvarnarverkefni í uppbyggingu gegn byrlun í drykki. Markmiðið er fræðsla um öryggi, rétt viðbrögð og kynning á öryggisdrykkjarlokum. Arnarkjöldur leitar að samstarfi um auglýsingar í dagatölum og ýmsan annan stuðning.
Velferðarnefnd þakkar erindið en sér sér ekki fært að styrkja verkefnið.

3.Samningur við VF með gildistöku 1. janúar 2027 - 2026100180

Lögð fram drög að endurskoðuðum samningi við Vesturafl/Fjölsmiðju fyrir árið 2027.
Velferðarnefnd samþykkir samninginn fyrir sitt leyti. Gert er ráð fyrir styrk til starfseminnar í fjárhagsáætlun fyrir árið 2027.

4.Samningur við Sev með gildistöku 1. janúar 2027 - 2026100182

Lögð fram drög að samningi við Starfsendurhæfingu Vestfjarða fyrir árið 2027.
Velferðarnefnd samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og felur starfsmönnum að leggja hann fyrir Tryggingastofnun ríkisins til samþykktar. Gert er ráð fyrir styrk til starfseminnar í fjárhagsáætlun fyrir árið 2027.

5.Félags- og húsnæðismálaráðuneytið - 2025070077

Lagður fram tölvupóstur frá Félags- og húsnæðismálaráðuneytið dags. 13. nóvember 2027. Erindið varðar fjárhagslegan stuðning vegna áskriftarkostnaðar em fellur til hjá sveitarfélögum við samræmda grunnskráningu í þjónustukerfum fyrir stuðnings- og stoðþjónustu.
Lagt fram til kynningar.

6.Forvarnar og lýðheilsustefna Ísafjarðarbæjar 2025, forgangsröðun verkefna 2027 - 2025030036

Forvarnarstefna Ísafjarðarbæjar lögð fram vegna forgangsröðunar markmiða, tengdum forvörnum, fyrir árið 2027.
Velferðarnefnd vill setja eftirfarandi markmið á oddinn á árinu 2027, aldursskipt samkvæmt stefnunni: Aldurinn 0-10 ára, fræðsla til foreldra um streitu og svefn. Aldurinn 11-18 ára, fræðsla um svefn og skaðsemi nikotíns. Aldurinn 19-30 ára, fræðsla um spilafíkn. Aldurinn 31-60, fræðsla um jafnvægi í daglegu lífi. Aldurinn 60, fræðsla um netöryggi. Framangreind verkefni fela ekki í sér kostnaðarauka á árinu 2027. Nefndin hyggst setja sér markmið fyrir árið 2028 í maí 2027, jafnhliða því að endurskoða forvarnarstefnuna.

7.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - 2026010014

Lagt fram til samráðs mál frá Velferðarnefnd Alþingis mál. nr. 286, Stefna og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna til ársins til ársins 2031. Umsagnarfrestur er til og með 27. nóvember 2026.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?