Dagbók bæjarstjóra 16.–22. nóvember: Vika 20

Dagbók bæjarstjóra 16.–22. nóvember

Skólamál vítt og breitt, fjárhagsáætlun og níu mánaða uppgjör, prjónauppskriftir og kleinuboð með utanríkisráðherra.

Á miðvikudag kom stór sendinefnd Kennarasambands Íslands með fulltrúum nær allra skólastiga sem heyra undir sambandið. Þau kynntu átak sitt, Blásum byr í seglin, með efnismiklum og gagnadrifnum fyrirlestri og hreinskiptum umræðum um stöðu mála. Á vef KÍ segir að Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, hafi verið ánægður með heimsóknina vestur:

Eins og í fyrri fundum okkar í verkefninu um að blása byr í seglin voru fundir með Ísafirði, Bolungarvík og MÍ afskaplega góður vettvangur umræðu um skólamál, þar var farið á dýptina og þá sérstaklega þegar kom að því að fræðast um skólamálin í þeirra héraði. Ég held að hægt sé að fullyrða að margt væri hægt að læra af skólastarfinu sem okkur var kynnt enda ríkir metnaður fyrir skólunum sem hjartslætti samfélaganna fyrir vestan og áhersla á að ná árangri í þeirra starfi.

 

Annasamur fimmtudagur

Fimmtudeginum varði ég að miklu leyti í fundarsal bæjarstjórnar. Dagurinn hófst á fundi bæjarráðs. Þar var lagt fram ársfjórðungsuppgjör rekstrar, viðhalds og framkvæmda. Jákvæðu fréttirnar eru að rekstrarafgangur er verulega meiri en ráð var fyrir gert, svo nemur tæpum 300 m.kr., en á móti kemur að stór verkefni eru enn á framkvæmdastigi og á eftir að bóka og mikilvæg viðhaldsverkefni hafa tafist af ýmsum ástæðum.

Á forstöðumannafundi fórum við yfir ýmis innri mál. Sérstaklega þótti mér gaman að kynningu Svövu Ránar Valgeirsdóttur og Vilborgar Ásu Bjarnadóttur skólastjóra leik- og grunnskólanna á Suðureyri, en þær fjölluðu um það hvernig skólarnir hafa notað MEMM-verkefnið sem tæki til að kenna börnum íslensku og virkja allt samfélagið með sér.

Í bæjarstjórn var stærsta málið seinni umræða fjárhagsáætlunar fyrir 2027. Einstaklega ánægjulegt var að áætlunin skyldi afgreidd 9-0.

Bókun meirihlutans var svona:

Fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar fyrir árið 2027 einkennist af skynsemi, jákvæðri rekstrarniðurstöðu, bættri þjónustu og lækkun skulda.

Gert er ráð fyrir að afgangur verði 404 m.kr. fyrir A-hluta og 684 m.kr. A og B. Markmið fjármálastefnu sem bæjarstjórn setti sér samhljóða í haust nást flest, meðal annars veltufé frá rekstri sem er vel yfir markmiðum, rekstrarjöfnuður, skuldahlutfall og handbært fé.

Gjaldskrár hækka hóflega, og er það framlag Ísafjarðarbæjar til baráttunnar við verðbólgu. Gjaldskrár í leikskólum hækka ekki, sem nýtist barnafjölskyldum beint.

Þjónusta er efld á ýmsum sviðum. Unglingarnir okkar fá enn betri félagsmiðstöð, þríhliðasamningur verður gerður um stóreflingu menningar í Edinborgarhúsi, stoðþjónusta grunnskóla eykst, opnunartími í sundlaugum lengist og umhverfis- og eignasvið verður styrkt verulega. Skíðasvæðið verður enn betra og sjást munu merki umhverfisátaks strax næsta sumar.

Samanlagt sýnir áætlunin metnaðarfulla og ábyrga framtíðarsýn þar sem þjónusta, uppbygging og traust fjármál haldast í hendur. Framsókn og óháðir og Viðreisn þakka gott samstarf við starfsfólk bæjarins og bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins. Við getum verið stolt af fjárhagsáætlun bæjarins fyrir 2027.

 
 

Á fimmtudag var tilkynnt að Kaleo héldi Bergmál, stórtónleika sína, á Vestfjörðum í sumar. Smáatriðin verða kynnt eftir því sem nær dregur en mig langar samt af þessu tilefni að birta mynd af nýlegri heimsókn þeirra. Við fórum fyrst niður á höfn og létum taka af okkur mynd og til að hlýja okkur fórum við svo á skrifstofu mína til að fá okkur kaffi, fara yfir tónleikana og hugmyndir þeirra um þá. Verkefnið er afar metnaðarfullt. Ég settist svo að sjálfsögðu niður og sýndi þeim hvernig á að spila alvöru vestfirskan djass.

Klassík í vikulok

Eftir annasama viku var mér mikið ánægjuefni að vita af tónleikum í Hömrum. Þar komu saman Frach-bræðurnir Maksymilian Haraldur, Mikolaj Ólafur og Nikodem Júlíus og léku nokkrar minna þekktar perlur klassísku tónbókmenntanna á píanó, fiðlu og víólu.

Mikolaj er þennan veturinn hér heima á Ísafirði. Hann fæst við kennslu og æfingar og tók við undirleik fyrir Karlakórinn Erni, hlutverki sem ég þurfti að gefa frá mér vegna anna við bæjarstjórastörf. Sérstaklega var magnað að heyra Mikolaj flytja Chaconne-partítu nr. 2, BWV 1004, eftir Bach í píanóútsetningu Busonis.

Maksymilian og Nikodem búa í Kraká og eru þar drifkraftar í menningartengslum milli Íslands og Póllands. Tónleikarnir Norrænir straumar hafa verið haldnir þrisvar með norrænni og íslenskri tónlist og verið vel sóttir.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og María Rut Kristinsdóttir, þingmaður Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi, komu á föstudagskvöld og héldu nokkra fundi með ýmsum stjórnum og hópum.

Á laugardeginum var til dæmis haldinn vel sóttur fundur í Rögnvaldarsal Edinborgarhússins. BB sagði frá umræðum um vetrarþjónustu á Dynjandisheiði en nokkuð púður fór einnig í að ræða lagareldi, leikskólamál og réttindi fatlaðs fólks.

Meðal viðkomustaða á sunnudag var Naust, félagsheimili eldri borgara í kjallara Hlífar. Þar sendi formaður félagsins, Sigrún Camilla Halldórsdóttir, þingkonurnar heim með heimaverkefni um að bæta kjör eldri borgara.