Dagbók bæjarstjóra 9.–15. nóvember: Vika 19
17.11.2026
Dagbók bæjarstjóra
Dagbók bæjarstjóra 9.–15. nóvember
Lýðskólinn á Flateyri, Kaleo-tónleikar og fyrirlestur um björgunarafrek í fyrra.
Myndirnar í albúminu eru fremur fáar þetta skiptið.
Á miðvikudagsmorgun skaust ég yfir á Flateyri til að skoða ný húsakynni Lýðskólans. Þar kom í ljós að skólastjórinn, Margrét Gauja Magnúsdóttir, átti 50 ára afmæli sem fagnað var af öllum nemendum, starfsmönnum og sjálfboðaliðum.


Á fimmtudagsmorgun var bæjarráðsfundur og að honum loknum var fundur í stjórn Byggðasafns Vestfjarða. Það var jólalegt um að litast í Neðstakaupstað.

Fyrsti opnunardagur skíðagöngusvæðisins á Seljalandsdal var á sunnudag. Það var nístingskalt en einstaklega frískandi að taka nokkra hringi.
