Bæjarráð

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
1388. fundur 12. nóvember 2026 kl. 08:10 - 08:52 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Kristján Þór Kristjánsson formaður
  • Tinna Rún Snorradóttir varamaður
    Aðalmaður: Elísabet Samúelsdóttir
  • Jónas Þór Birgisson aðalmaður
  • Svanfríður G Bergvinsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Gylfi Ólafsson bæjarstjóri
  • Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Skipulagsbreytingar umhverfis- og eignasvið - nýtt skipurit 2026 - 2026100131

Á 1385. fundi bæjarráðs, þann 22. október 2026, var lagt fram minnisblað Gylfa Ólafssonar, bæjarstjóra, dags. 19. október 2026, varðandi skipulagsbreytingar á umhverfis- og eignasviði. Lagt er til að uppfært skipurit verði fellt inn í skipurit sveitarfélagsins í heild og lagt fyrir bæjarstjórn til samþykktar.

Bæjarráð vísar málinu til skipulags- og mannvirkjanefndar og umhverfis- og framkvæmdanefndar til umsagnar.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd tók málið fyrir á 175. fundi sínum, þann 10. nóvember 2026, og samþykkti umræddar skipulagsbreytingar.

Skipulags- og mannvirkjanefnd tók málið fyrir á 682. fundi sínum, þann 10. nóvember 2026, og gerði ekki athugasemdir við skipulagsbreytingar.

Er málið nú lagt aftur fram í bæjarráði til samþykktar.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja fyrirhugaðar skipulagsbreytingar á umhverfis- og eignasviði Ísafjarðarbæjar, með nýrri stöðu deildarstjóra og uppskiptingu sviðsins í tvær megindeildir, skipulag og mannvirki, annars vegar, og umhverfi og framkvæmdir, hins vegar, sem hvor um sig heyrir undir deildarstjóra, og með sviðsstjóra efstan í skipuriti.

2.Skipurit Ísafjarðarbæjar 2026 - 2026060031

Lagt fram til samþykktar nýtt heildarskipurit fyrir Ísafjarðarbæ, m.a. með innfelldum skipulagsbreytingum á umhverfis- og eignasviði, auk annarra minni háttar breytinga sem orðið hafa á sviðum sveitarfélagsins frá síðustu uppfærslu skipuritsins árið 2021.

Jafnframt lagt fram minnisblað Bryndísar Óskar Jónsdóttur, sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs, dags. 10. nóvember 2026, vegna málsins.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja nýtt skipurit Ísafjarðarbæjar, með innfelldum breytingum á skipulagi umhverfis- og eignasviðs, og öðrum þeim breytingum frá núgildandi skipuriti.

3.Þríhliða samningur um Menningarmiðstöðina Edinborgarhúsið - 2026110096

Lagður fram til samþykktar drög á þríhliða samning um Menningarmiðstöðina Edinborgarhúsið, sem gerður er á milli menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins, Ísafjarðarbæjar og Edinborgarhússins ehf. um styrk árlega styrk að fjárhæð kr. 30.000.000 til næstu þriggja ára.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja þríhliða samning um Menningarmiðstöðina Edinborgarhúsið, sem er gerður á milli menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins, Ísafjarðarbæjar og Edinborgarhússins ehf., um styrk árlega styrk að fjárhæð kr. 30.000.000 til næstu þriggja ára.

4.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - 2026010014

Á 1387. fundi bæjarráðs, þann 5. nóvember 2026, var lagt fram erindi frá innviðaráðuneytinu, dags. 29. október 2026, þar sem kynnt er til samráðs mál nr. 223/2026, "Áform um frumvörp varðandi byggðatengdar veiðiheimildir." Umsagnarfrestur er til og með 12. nóvember 2026.

Bæjarráð frestar afgreiðslu erindisins til næsta fundar meðan unnið er að umsögn með málinu.

Er málið nú lagt aftur fram, ásamt umsögn formanns.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að skila inn umsögn um frumvarpið með hliðsjón af drögum formanns, auk þeirra breytinga sem ræddar voru á fundinum.

5.Stjórnsýsluhús - þakskipti 2026 - 2026080114

Lagðar fram til kynningar fundargerðir 2. og 3. verkfundar vegna endurbóta á þaki Stjórnsýsluhúss dags. 13. og 27. október 2026.
Lagt fram til kynningar.

6.Hverfisráð - fundargerðir 2026 - 2026020010

Lögð fram til kynningar fundargerð hverfisráðs Dýrafjarðar, en fundur var haldinn 2. nóvember 2026.
Lagt fram til kynningar.

7.Fundargerðir 2026 - Samband íslenskra sveitarfélaga - 2026020009

Lögð fram til kynningar fundargerð 1005. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 30. október 2026.
Lagt fram til kynningar.

8.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 682 - 2610022F

Lögð fram til kynningar fundargerð 682. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 10. nóvember 2026.

Fundargerðin er í 10 liðum.
Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og mannvirkjanefnd - 682 Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkir framkvæmdina, þar sem hún telur að um óverulega framkvæmd að ræða, miðað við fyrirliggjandi gögn.

    Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að heimila lagningu heimtauga í Tungudal í samræmi við framlögð gögn.
  • Skipulags- og mannvirkjanefnd - 682 Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkir ósk um endurskoðun á breytingu á landnotkun vegna grænna iðngarða í Breiðadal í aðalskipulagi skv. erindinu og vísar því inn í vinnu við Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2025-2050.

    Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að heimila landeiganda að hefja vinnu við gerð deiliskipulagslýsingar skv. 38.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.




9.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 175 - 2610021F

Lögð fram til kynningar fundargerð 175. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar, en fundur var haldinn 10. nóvember 2026.

Fundargerðin er í 10 liðum.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 08:52.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?