Reglur um menningarstyrki endurskoðaðar

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hefur samþykkt endurskoðaðar reglur um úthlutun styrkja til menningarmála. Breytingarnar byggja á tillögu menningarmálanefndar frá fundi nefndarinnar 14. september 2026 og fela meðal annars í sér hækkun á heimild hámarksstyrkfjárhæð til menningarmála úr 250.000 í 300.000 krónur. 

Menningarmálanefnd Ísafjarðarbæjar veitir árlega styrki til verkefna sem efla listir, menningu og samfélagsstarf í sveitarfélaginu. Markmið styrkjanna er að styrkja fjölbreytt menningarlíf og skapa svigrúm fyrir skapandi verkefni og frumkvæði íbúa. Styrkirnir eru auglýstir einu sinni á ári. Nánari upplýsingar má finna á Styrkir til menningarmála | Ísafjarðarbær.

 

Tillaga um endurskoðun reglnanna var samþykkt samhljóða í bæjarstjórn með níu atkvæðum gegn engu.