Dagbók bæjarstjóra 26.–31. október: Vika 17
Fjórðungsþing og fjárhagsáætlun, listaverk í dönsku uppboðshúsi, verknámshús og númerslausir bílar.
Á mánudag kom Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra vestur til Ísafjarðar að heimsækja fyrirtæki auk þess að halda fund með sveitarstjórnarfólki á norðanverðum Vestfjörðum og Vestfjarðastofu. Ráðuneyti hennar er stórt og tekur til lagareldis, sjávarútvegs, ferðaþjónustu og ýmissa annarra greina. Við hvöttum hana til dáða að leggja aftur fram frumvarp um lagareldi sem féll brott í meðförum Alþingis í vor.
Á mánudag lauk einnig uppboði á málverki eftir Christian Blache. Verkið, ljómandi fallegt olíumálverk af Pollinum á Ísafirði frá 1881, var á uppboði hjá danska uppboðshaldaranum Bruun Rasmussen. Ábending hafði borist til mín frá „manni útí bæ“ og hafði ég ráðgert að kaupa verkið til að koma því heim til Ísafjarðar, að því gefnu að það yrði innan þess verðmats sem uppboðshúsið hafði gert.
Þegar leið á mánudaginn fór verðið að stíga hratt upp fyrir það sem ég taldi réttlætanlegt að verja af opinberum peningum og ég hætti að bjóða í verkið. Svona uppboð fer fram með leyninúmerum í stað nafna og því er ekki hægt að vita hver bauð í, en ljóst er að að minnsta kosti tveir kaupendur voru spenntir fyrir verkinu því það fór á endanum fyrir 55.000 danskar krónur. Að teknu tilliti til aukagjalda slagar það upp í eina og hálfa milljón íslenskra króna.
Nú er spennandi að sjá hvort kaupandinn var heimamaður eða hvað. Allar slúðursögur í listalífinu mega gjarnan leka til mín, en ég varpa einnig fram hugmynd að þriggja þátta hlaðvarpsröð til flutnings í páskadagskrá RÚV eftir fjögur ár. Kollgátan um Pollgátuna gætu þættirnir heitið og mættu endilega innihalda upprifjun úr æviminningum Jóhannesar Nordal af því sem gekk á við kaupin á síðasta geirfuglinum.

Fjórðungsþing á Patreksfirði
Fjórðungsþingið var haldið á Patreksfirði í þetta skiptið, á þriðjudegi og fram að hádegi á miðvikudegi. Í setningarræðu minni rakti ég sögu samstarfs á Vestfjörðum í gegnum aldirnar. Ég rifjaði stuttlega upp sögu Kollabúðafundanna um miðja 19. öld (sem ég hef áður fjallað um á þessum vettvangi), sem haldnir voru fyrst 1849 og var svo í 20 ár. Við þeim tóku sýslufundir en árið 1949 var stofnþing Fjórðungssambands Vestfirðinga haldið og hafa Fjórðungsþing verið haldin æ síðan með mismunandi sniði. Þó aðstæður séu um margt gerbreyttar eru málaflokkarnir þeir sömu; samgöngur, menntamál, fjárhags- og atvinnumál. Það er ekki tákn um að ekkert hafi áorkast þó umræðuefnin séu þau sömu; það eru 2000 ár síðan fólk fór að skrifa bækur um ástina og tilgang lífsins og þar er enn margt ósagt.

Þetta var fyrsta Fjórðungsþing eftir samþykkt svæðisskipulags, og bar þingið þess merki. Sú vinna hefur hjálpað mikið til við að stilla saman strengi, draga fram það sem við erum sammála um og skerpa línurnar í úrlausnarefnum dagsins. Fjölmargar ályktanir voru samþykktar sem bera þess merki að Vestfirðingar gangi í takt. En þetta var líka fyrsta Fjórðungsþing eftir kosningar, og margir þátttakendur nýir. Ég tók eftir því að vel var mætt frá öllum sveitarfélögum.



Almannavarnanefnd hittist
Fimmtudagurinn var annasamur. Bæjarráðsfundur var í upphafi dags með ýmsum góðum málum, þar sem ég kynnti stöðu mála í undirbúningi uppbyggingar ferðaþjónustu á Hauganesi. Þá var samþykkt að lengja opnunartíma í sundlaugum og efla félagsmiðstöðvastarf fyrir unglinga en hvort tveggja er í samræmi við áherslur um bætta þjónustu fyrir ungt fólk og fjölskyldur.
Nýsameinuð HMS hélt fund um stöðu húsnæðismála og er þetta hluti af fundaferð í kringum landið. Margt fróðlegt kom fram í erindum frummælenda um íbúðauppbyggingu og framtíðarhorfur, stafvæðingu og samþættingu ferla þvert á sveitarfélög og skipulagsmál. Þó margt sé orðið rafrænt hefur vinnulag enn borið þess merki að vera endurspeglun á ferlum sem giltu þegar allt var á pappír. Skref fyrir skref náum við tökum á þessu á landsvísu og innan bæjarkerfisins.

Eftir hádegið var svo haldinn fyrsti fundur almannavarnarnefndar eftir kosningar. Nefndin er sameiginleg fyrir Ísafjarðarbæ og Súðavíkurhrepp, en inn á fundinn kom Jóhanna Ósk Halldórsdóttir bæjarstjóri Bolungarvíkur og lýsti áhuga þeirra á að ganga inn í samstarfið. Langt er síðan almannavarnanefnd Bolungarvíkur hefur verið kölluð saman. Ef allt gengur vel verða Bolvíkingar með í samstarfinu fyrir áramót.
Eins og sést af fundargerð var rætt um ýmislegt. Viðbrögð við sólmyrkvanum í ágúst voru gerð upp og rætt um Vestfjarðagöng frá almannavarnasjónarmiði. Þá var lausna leitað á vandræðum sem Súðvíkingar standa frammi fyrir þegar Súðavíkurhlíð lokast vegna snjóa. Rauði krossinn hefur ekki útsendara í bænum til að sinna innlyksa vegfarendum.

Fjárhagsáætlun
Í bæjarstjórn var fyrri umræða um fjárhagsáætlun fyrir 2027.
Ég hef birt ræðuglósurnar sem ég studdist við á fundinum, sjá hér fyrir neðan:
Miðað við áætlunina eins og hún er núna stefnir í að öll fjárhagsleg markmið náist, fjárfest fyrir 2,3 milljarða, viðhald fyrir tæpar 200 milljónir, aukið í félagsmiðstöðvastarf, og ýmis önnur mikilvæg verkefni. Næstu vikur fara í að rýna forsendurnar betur, afgreiða óvissuþætti og búa fjárhagsáætlunina til lokaútgáfu.
Torfnes og númerslausir bílar
Á föstudag komu svo Heiðrún Tryggvadóttir og Þröstur Jóhannesson enn á ný til að ræða stækkun verknámshúss Menntaskólans. Það hefur verið góður gangur í undirbúningnum síðustu vikur. Verkefnið er talsvert flókið.
Í febrúar síðastliðnum var lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu þar sem byggingarreitum Menntaskólans var breytt talsvert, dæluhús fyrir Orkubú Vestfjarða sett inn og lóð Sólborgar stækkuð. Byggði þetta á þeirri sýn sem fram kom í frummati FSRE um að byggja á núverandi bílastæði og upp í átt að Hlíf. Menntaskólanum leist illa á þessar hugmyndir af ýmsum ástæðum, og vildi helst fylgja grunnhugmyndum frá 1994 þar sem lóðin milli verknámshússins og þess sem þá átti að verða tónlistarskóli (en varð leikskóli) yrði notuð frekar.

Tillagan sem MÍ leggur nú til býður upp á að lóð Sólborgar geti stækkað til að taka á móti auknum barnafjölda og vega upp á móti lóðinni sem var tekin undir færanlegar skólastofur. Lóð Sólborgar þarf líka yfirhalningu, sem vonandi á ekki að þurfa að frestast of mikið vegna þessara breytinga. Á næstu vikum verður þessi hugmynd teiknuð betur upp svo hægt sé að ræða hana í skipulags- og mannvirkjanefnd, við leikskólastarfsfólk og víðar.

Á vef bæjarins birtust tvær fréttir sem ég vil hafa orð á. Sú fyrri snýr að númerslausum bílum sem endalaust halda áfram að hrannast upp. Í þetta skiptið var farið í rassíu við Æðartanga, en vandamálið er viðvarandi víða um bæinn. Nýverið var rauður bíll fjarlægður á bílastæði við Landsbankann. Ekki leið á löngu áður en hvítur bíll var kominn í sama stæði. Íbúar hafa litla þolinmæði fyrir þessu og bæjaryfirvöld enn minni. Ábyrgðin er samt hjá eigendum bílanna, sem og eigendum sambærilegs rusls. Auðvitað þarf stundum að geyma tæki og vörur úti, en söfnun og dreifing drasls er óþolandi.

Hin snýr að strætó:
Ný heimasíða fyrir strætisvagna Ísafjarðarbæjar er komin í loftið með það að markmiði að gera upplýsingar um þjónustuna skýrari og aðgengilegri fyrir farþega.
Samhliða nýju síðunni hefur verið tekið í notkun rauntímakort þar sem hægt er að fylgjast með staðsetningu strætisvagna í beinni.