Bæjarráð

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
1386. fundur 29. október 2026 kl. 08:10 - 09:27 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Kristján Þór Kristjánsson formaður
  • Hannibal Hafberg varamaður
    Aðalmaður: Elísabet Samúelsdóttir
  • Jónas Þór Birgisson aðalmaður
  • Svanfríður G Bergvinsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
  • Gylfi Ólafsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Hauganes - Beiðni um lóðaúthlutun - 2026040101

Lögð fram drög að samningi milli Ísafjarðarbæjar og Fjallabóls ehf. vegna lóðaúthlutunar vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar lauga, hótels og heilsuræktarstöðvar við Hauganes, ásamt verk og hönnunaráætlun.

Jafnframt lagt fram minnisblað Gylfa Ólafssonar, bæjarstjóra, dags. 28. október 2026, þar sem óskað er eftir heimild til að ganga frá samningi við Hauganes ehf. og leggja fullunninn samning fyrir bæjarstjórn til samþykktar.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fullvinna samning í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir skipulags- og mannvirkjanefnd til samþykktar.
Eyþór yfirgaf fund kl. 8:27.

Gestir

  • Eyþór Guðmundsson, deildarstjóri - mæting: 08:10

2.Notkun sundlauga Ísafjarðarbæjar 2026 - 2026070023

Mál sett á dagskrá að beiðni formanns, en um er að ræða mál tekið fyrir á 51. fundi skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, um að bæjarstjórn samþykki að gert verði ráð fyrir, í fjárhagsáætlun ársins 2027, aukinni opnun sundlauga á Suðureyri, Flateyri og Þingeyri sem nemur 4 klst. á föstudögum á vetraropnunartíma.

Meðfylgjandi er minnisblað Hafdísar Gunnarsdóttur, sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs, dags. 27. október 2026, en um er að ræða viðbótarkostnað að fjárhæð um 5 m.kr. árlega.
Bæjarráð vonar að þessi breyting nýtist íbúum sveitarfélagsins og felur bæjarstjóra að sjá til þess að greining á nýtingu vetrarins í öllum sundlaugum verði lögð fyrir skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd vorið 2027 til skoðunar um áframhaldandi endurskoðun aukins opnunartíma veturinn 2027-2028.

Bæjarráð samþykkir tillögu samkvæmt minnisblaði um aukinn opnunartíma sundlauga á Suðureyri, Flateyri og Þingeyri, sem nemur 4 klukkustundum á föstudögum á vetraropnunartíma, sem tekur gildi 1. janúar 2027. Bæjarráð felur bæjarstjóra að sjá til þess kostnaður vegna þessa verði komið fyrir í fjárhagsáætlun 2027, áður en síðari umræða fer fram.




Gestir

  • Hafdís Gunnarsdóttir, sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs - mæting: 08:28

3.Efling félagsmiðstöðvarstarfs í Ísafjarðarbæ - 2026100084

Mál sett á dagskrá að beiðni formanns, en um er að ræða mál tekið fyrir á 51. fundi skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn 26. október 2026, um að bæjarstjórn samþykki að bætt verði við 100% stöðugildi forstöðumanns félagsmiðstöðvarinnar Djúpsins, sem er með starfsemi í öllum kjörnum sveitarfélagsins, við gerð næstu fjárhagsáætlunar.

Nefndin telur brýnt að efla félagsmiðstöðvastarf í ljósi aukinna áskorana sem snúa að geðheilsu ungmenna, forvarnarstarfi og þátttöku ungmenna. Öflugt og aðgengilegt félagsstarf er ein mikilvægasta forvörn sveitarfélagsins og skapar ungmennum öruggan vettvang og jákvæð tengsl utan skólatíma.

Tillagan er í samræmi við markmið forvarnar- og lýðheilsustefnu Ísafjarðarbæjar 2026-2031, þar sem lögð er sérstök áhersla á forvarnir, vellíðan og virka þátttöku barna og ungmenna á aldrinum 11-18 ára. Nefndin telur að sveitarfélagið verði að bregðast við breyttum þörfum ungmenna með markvissri uppbyggingu félagsmiðstöðvastarfs og eflingu faglegs stuðnings við starfsemina.

Meðfylgjandi er minnisblað Dagnýjar Finnbjörnsdóttur, dags. 9. október 2026, en um er að ræða viðbótarkostnað um 10 m.kr. árlega.
Bæjarráð samþykkir tillögu samkvæmt minnisblaði um 100% stöðugildi forstöðumanns félagsmiðstöðvarinnar Djúpsins.
Bæjarráð telur að umrætt stöðugildi ætti jafnframt nýtast til þróunar og skipulagningar félagsmiðstöðvar/ungmennahúss fyrir ungmenni á aldrinum 16-20 ára.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að sjá til þess að kostnaður vegna þessa verði komið fyrir í fjárhagsáætlun 2027.
Hafdís yfirgaf fund kl. 9.05.

4.Álagningarhlutfall fasteignagjalda 2027 - 2026090124

Á 1381. fundi bæjarráðs, þann 14. september 2026, var lagt fram minnisblað Eddu Maríu Hagalín, fjármálastjóra, dags. 14. september 2026, varðandi samantekt um fasteignagjöld og fasteignamat ársins 2027 til samanburðar við fyrri ár. Bæjarráð fól bæjarstjóra að vinna málið áfram og leggja fyrir á næsta fundi. Á 1382. fundi bæjarráðs var uppfært minnisblað lagt fram. Bæjarráð fól bæjarstjóra að vinna málið áfram og leggja málið aftur fram á síðari stigum.

Á 1382. fundi bæjarráðs, þann 23. september var lagt fram uppfært minnisblað Eddu Maríu Hagalín dags. 21. september með umbeðnum viðbótarupplýsingum.

Er málið nú lagt fram á nýjan leik þar sem lagt er til við bæjarráð að ákvarða hlutfall fasteignaskatts til grundvallar fjárhagsáætlunargerðar 2027.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja óbreytt hlutfall fasteignaskatts og og lóðarleigu árið 2027, þ.e. fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði verður áfram 0,48% af hús- og lóðamati, fasteignaskattur á annað húsnæði 1,65% og fasteignaskattur á opinberar byggingar 1,32%.

Lóðarleiga veður áfram 1,5% af lóðarmati íbúðarhúsnæðis, og 3% af lóðarmati annarra fasteigna.
Edda María yfirgaf fund kl. 9.14.

Gestir

  • Edda María Hagalín, fjármálstjóri - mæting: 09:10

5.Fyrirspurn um launahækkanir - 2026100245

Lögð fram fyrirspurn Jónasar Þórs Birgissonar, bæjarfulltrúa D-lista Sjálfstæðisflokks, dags. 18. október 2026, um launahækkanir starfsmanna.

Jafnframt lagt fram minnisblað Helgu Sigríðar Hjálmarsdóttur, launafulltrúa, dags. 27. október 2026, með svörum.
Lagt fram til kynningar.

6.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - greiðslur vegna kosninga - 2026010014

Lagt fram erindi frá dómsmálaráðuneytinu, dags. 20. október 2026, þar sem kynnt er til samráðs mál nr. 212/2026, "Greiðslur til sveitarfélaga vegna kosninga", drög að breytingum á reglugerð nr. 442/2024 um kostnaðarskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga í kosningum. Drögin byggjast á tillögum frá landskjörstjórn. Umsagnarfrestur er til og með 17. nóvember 2026.

Jafnframt lagt fram til kynningar minnisblað sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs, dags. 28. október 2026, vegna málsins.
Lagt fram til kynningar.

7.Samtök sjávarútvegssveitarfélaga - fundargerðir og ýmis erindi 2026 - 2026100246

Lagðar fram til kynningar fundargerðir 99. og 100 fundar stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, en fundir voru haldnir 24. ágúst og 21. september 2026.
Lagt fram til kynningar.

8.Menningarmálanefnd - 183 - 2610014F

Lögð fram til kynningar fundargerð 183. fundar menningarmálanefndar, en fundur var haldinn 22. október 2026.

Fundargerðin er í 6 liðum.
Lagt fram til kynningar.

9.Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd - 51 - 2610017F

Lögð fram til kynningar fundargerð 51. fundar skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn 26 október 2026.

Fundargerðin er í 8 liðum.
Lagt fram til kynningar.
  • Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd - 51 Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd leggur til við bæjarstjórn að gert verði ráð fyrir, í fjárhagsáætlun ársins 2027, aukinni opnun sundlauga á Suðureyri, Flateyri og Þingeyri sem nemur 4 klst. á föstudögum á vetraropnunartíma.
  • Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd - 51 Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd leggur til við bæjarstjórn að bætt verði við 100% stöðugildi forstöðumanns félagsmiðstöðvarinnar Djúpsins, sem er með starfsemi í öllum kjörnum sveitarfélagsins, við gerð næstu fjárhagsáætlunar.

    Nefndin telur brýnt að efla félagsmiðstöðvastarf í ljósi aukinna áskorana sem snúa að geðheilsu ungmenna, forvarnarstarfi og þátttöku ungmenna. Öflugt og aðgengilegt félagsstarf er ein mikilvægasta forvörn sveitarfélagsins og skapar ungmennum öruggan vettvang og jákvæð tengsl utan skólatíma.

    Tillagan er í samræmi við markmið Forvarnar- og lýðheilsustefnu Ísafjarðarbæjar 2026-2031, þar sem lögð er sérstök áhersla á forvarnir, vellíðan og virka þátttöku barna og ungmenna á aldrinum 11-18 ára. Nefndin telur að sveitarfélagið verði að bregðast við breyttum þörfum ungmenna með markvissri uppbyggingu félagsmiðstöðvastarfs og eflingu faglegs stuðnings við starfsemina.

Fundi slitið - kl. 09:27.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?