Dagbók bæjarstjóra 9.–15. nóvember: Vika 19

Dagbók bæjarstjóra 9.–15. nóvember

Lýðskólinn á Flateyri, Kaleo-tónleikar og fyrirlestur um björgunarafrek í fyrra.

Myndirnar í albúminu eru fremur fáar þetta skiptið.

Á miðvikudagsmorgun skaust ég yfir á Flateyri til að skoða ný húsakynni Lýðskólans. Þar kom í ljós að skólastjórinn, Margrét Gauja Magnúsdóttir, átti 50 ára afmæli sem fagnað var af öllum nemendum, starfsmönnum og sjálfboðaliðum.

Á fimmtudagsmorgun var bæjarráðsfundur og að honum loknum var fundur í stjórn Byggðasafns Vestfjarða. Það var jólalegt um að litast í Neðstakaupstað.

Fyrsti opnunardagur skíðagöngusvæðisins á Seljalandsdal var á sunnudag. Það var nístingskalt en einstaklega frískandi að taka nokkra hringi.

 

Á sunnudag var haldin athöfn á alþjóðlegum degi fórnarlamba umferðarslysa. Keyrt var fylktu liði frá Guðmundarbúð út í Hnífsdal og fékk ég far með einum slökkvibíl. Í Hnífsdal hélt Teitur Magnússon magnaðan fyrirlestur um bílslys í október í fyrra. Lýsingar af samstilltu átaki viðbragðsaðila voru magnaðar.