Bæjarráð

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
1385. fundur 22. október 2026 kl. 08:10 - 10:05 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Kristján Þór Kristjánsson formaður
  • Elísabet Samúelsdóttir varaformaður
  • Jónas Þór Birgisson aðalmaður
  • Svanfríður G Bergvinsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
  • Gylfi Ólafsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Framkvæmdasjóður ferðamannastaða - umsóknir 2026 - 2026100117

Á 1384. fundi bæjarráðs, þann 15. október 2026, var lagt fram erindi Sölva Guðmundssonar, f.h. Markaðsstofu Vestfjarða, dags. 6. október 2026, þar sem kynnt er að opið er fyrir umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða og er umsóknarfrestur til 27. október 2027, kl. 13.00.

Möguleg verkefni rædd. Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu og leggja aftur fyrir bæjarráð á næsta fundi.

Er nú lagt fram minnisblað Eyþórs Guðmundssonar, setts sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, dags. 20. október 2026, varðandi fyrirhugaðar umsóknir.
Óskað er eftir samþykki fyrir því að unnar verði kostnaðaráætlanir vegna verkefna samkvæmt tillögum 1 og 2 og að í framhaldinu verði umsóknir Ísafjarðarbæjar um styrki úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fullunnar og sendar inn.
Bæjarráð samþykkir að unnar verði kostnaðaráætlanir vegna tveggja verkefna, skipulags- og hönnunarvinnu vegna áfangastaða í þéttbýli í Ísafjarðarbæ og til skipulags-, undirbúnings- og hönnunarvinnu vegna göngu- og hjólastígs um Sandafell á Þingeyri. Bæjarráð felur bæjarstjóra að sjá til þess að umsóknir samkvæmt minnisblaði verði sendar Framkvæmdasjóði ferðamannastaða í samræmi við minnisblað setts sviðsstjóra.

Bæjarráð veitir eftirfarandi umsögn vegna tillögu 1:

„Bæjarráð veitir umsögn um fyrirhugaða skipulags- og hönnunarvinnu vegna verkefnisins Áfangastaðir fyrir skemmtiferðaskipafarþega í þéttbýli Ísafjarðarbæjar.
Verkefnið tengist stefnu Ísafjarðarbæjar um móttöku skemmtiferðaskipa og þeirri uppbyggingu innviða og móttöku ferðamanna sem sveitarfélagið vinnur að. Jafnframt styður verkefnið við það markmið að skapa betri forsendur fyrir dreifingu ferðamanna og uppbyggingu minna nýttra áfangastaða innan sveitarfélagsins.
Bæjarráð telur mikilvægt að skipulags- og hönnunarvinna fari fram áður en ráðist verður í frekari uppbyggingu á stöðunum, þannig að unnt verði að móta heildstæðar, raunhæfar og hagkvæmar lausnir sem taka mið af aðstæðum á hverjum stað.
Bæjarráð styður umsókn Ísafjarðarbæjar í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða um styrk til skipulags- og hönnunarvinnu vegna verkefnisins.“

Bæjarráð veitir eftirfarandi umsögn vegna tillögu 2:

„Bæjarráð veitir umsögn um fyrirhugaða skipulags-, undirbúnings- og hönnunarvinnu vegna göngu- og hjólastígs um Sandafell á Þingeyri.
Bæjarráð telur mikilvægt að áður en ráðist verður í frekari uppbyggingu verði unnin heildstæð hönnun verkefnisins í samráði við aðliggjandi landeigendur og að tekið verði mið af aðstæðum á svæðinu, öryggi, aðgengi og tengingu við núverandi stíga.
Bæjarráð styður umsókn Ísafjarðarbæjar í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða um styrk til skipulags-, undirbúnings- og hönnunarvinnu vegna verkefnisins.“


Eyþór yfirgaf fund kl. 8.20.

Gestir

  • Eyþór Guðmundsson, deildarstjóri - mæting: 08:10

2.Gjaldskrár 2027 - 2026030239

Lögð fram til samþykktar gjaldskrá hafna Ísafjarðarbæjar, en hafnarstjórn vísaði henni til samþykktar á 276. fundi sínum þann 20. október 2026.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja gjaldskrá hafna Ísafjarðarbæjar.
Mál tekið á dagskrá með afbrigðum.

3.Viðhaldsáætlun 2027 - 2026030242

Viðhaldsáætlun Ísafjarðarbæjar 2027-2037 var lögð fram til síðari umræðu í skipulags- og mannvirkjanefnd og vísað til bæjarráðs til afgreiðslu.
Bæjarráð samþykkir framlagða viðhaldsáætlun sem hluta af fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2027 og næstu þriggja ára á eftir.
Mál tekið á dagskrá með afbrigðum.

4.Framkvæmdaáætlun 2027 til 2037 - 2026030241

Framkvæmdaáætlun Ísafjarðarbæjar 2027-2037 var löðg fram á 681. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 21. október 2026. Var málinu vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
Bæjarráð vísar framkæmdaáætlun Ísafjarðarbæjar 2027 til bæjarstjórnar til fyrri umræðu.

5.Fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2027 - 2026030243

Á 1383. fundi bæjarráðs voru lögð fram fyrstu drög að fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2027. Hefur nú fjárhagsáætlun 2027 verið unnin frekar er nú lögð fram til samþykktar í fyrri umræðu bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2027 til bæjarstjórnar til fyrri umræðu.
Edda María yfirgaf fund kl. 9.25.

6.Skipulagsbreytingar umhverfis- og eignasvið - nýtt skipurit 2026 - 2026100131

Lagt fram minnisblað Gylfa Ólafssonar, bæjarstjóra, dags. 19. október 2026, varðandi skipulagsbreytingar á umhverfis- og eignasviði. Lagt er til að uppfært skipurit verði fellt inn í skipurit sveitarfélagsins í heild og lagt fyrir bæjarstjórn til samþykktar.
Bæjarráð vísar málinu til skipulags- og mannvirkjanefndar og umhverfis- og framkvæmdanefndar til umsagnar.

7.Ráðning sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs - 2026100109

Mál sett á dagskrá að beiðni bæjarfulltrúa D-lista Sjálfstæðiflokks.

Óskað eftir umræðu um auglýsingu og ráðningarferli sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs.
Bæjarfulltrúi D-lista Sjálfstæðisflokks, Jónas Þór Birgisson, lagði fram eftirfarandi bókun:

"Starfslokasamningur við sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs og kostnaður við hann eru auðvitað á ábyrgð meirihluta bæjarstjórnar. Fyrirhugaðar skipulagsbreytingar á sviðinu eru það að sama skapi einnig en þær hafa enn ekki verið ræddar á þeim lýðræðislega vettvangi sem bæjarstjórn og bæjarráð eru. Til að gæta fullrar sanngirni er þó rétt að taka fram að undirrituðum var með óformlegum hætti tilkynnt að þetta stæði til. Ekki verður dregið í efa hið lýðræðislega umboð sem meirihlutinn hefur en fulltrúi Sjálfstæðisflokksins gagnrýnir verklag við þessa framvæmd.

Sviðsstjóri er ráðinn af bæjarstjórn og þess vegna hefur venjan verið að vinna slíkt ferli með opnum, gagnsæjum og faglegum hætti.

Venja hefur verið að auglýsing af þessum toga sé rædd í bæjarráði fyrir birtingu til að reyna að tryggja breiða sátt um ráðningarskilyrði enda verið að ráða í faglega stjórnunarstöðu. Það var ekki gert.

Venja hefur verið að ráðningarstofa komi að ferlinu til þess að reyna að tryggja vönduð vinnubrögð og minnka líkur á pólitískri tortryggni. Það var ekki gert.

Þá telur fulltrúi Sjálfstæðisflokksins ekki góðan brag á því að í umræddri auglýsingu sé lýst fyrirhuguðum skipulagsbreytingum án þess að þær hafi fengið svo mikið sem umræðu í bæjarstjórn en samþykki hennar er þó forsenda fyrir að þær taki gildi."

8.71. Fjórðungsþing Vestfirðinga - að hausti - 2026090067

Á 1384. fundi bæjarráðs, sem haldinn var 15. október 2026, var lagt fram að nýju boð til bæjarfulltrúa á 71. Fjórðungsþing Vestfirðinga að hausti, sem haldið verður á Patreksfirði 27.-28. október 2026, auk kvöldverðar 26. október. Minnt er á að allar ályktanir þurfa að berast skriflega á þingið.

Er nú dagskrá fjórðungsþings lögð fram til kynningar og tillögur að ályktunum til umræðu.

Umræður um dagskrá fyrirhugaðs Fjórðungsþings og ályktanir Ísafjarðarbæjar fyrir þingið.

9.Samráðshópur um umferðarmál vegna kláfs á Eyrarfjall - 2026100156

Lagt fram erindi Gissurar Skarphéðinssonar, framkvæmdastjóra Eyrarkláfs ehf., dags. 18. október 2026, þar sem lagt er til að settur verði á fótur samráðshópur um umferðarmál, en í honum sætu fulltrúar Ísafjarðarbæjar, íbúar í hlíðinni og fulltrúar Eyrarkláfs ehf. Hlutverk hópsins yrði meðal annars að móta lausnir í tengslum við rútuumferð, skoða leiðir til að koma gestum að kláfnum og fylgjast með áhrifum á framkvæmdatíma og eftir opnun og leggja til breytingar eftir þörfum.
Ísafjarðarbær felur bæjarstjóra að sitja fyrir sína hönd í samráðshópi Eyrarkláfs ehf.
Bæjarráð vísar erindinu til kynningar í skipulags- og mannvirkjanefnd og umhverfis- og framkvæmdanefnd.

10.Skúrin - beiðni um þjónustusamning - 2026100161

Lagt fram erindi Runólfs Ágústssonar, framkvæmdastjóra Skúrinnar á Flateyri, dags. 19. október 2026, þar sem óskað er eftir þjónustusamningi við Ísafjarðarbæ sambærilegan og Blábankinn er með, með fjárframlagi að fjárhæð 2 m.kr. árlega í þrjú ár.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.

11.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - stórþörungarækt í sjó - 2026010014

Lagt fram erindi frá atvinnuvegaráðuneytinu, dags. 16. október 2026, þar sem kynnt er til samráðs mál nr. 209/2026, "Frumvarp til laga um stórþörungarækt í sjó". Umsagnarfrestur er til og með 28. október 2026.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að senda umsögn í samræmi við umræður á fundinum.

12.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - kílómetragjald á ökutæki - 2026010014

Lagt fram erindi frá fjármála- og efnahagsráðuneytisins, dags. 136. október 2026, þar sem kynnt er til samráðs mál nr. 204/2026, "Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um kílómetragjald á ökutæki, nr. 100/2025 (lagaumgjörð og innheimta gjaldsins)". Umsagnarfrestur er til og með 27. október 2026.
Lagt fram til kynningar.

13.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - bókhaldslög - 2026010014

Lagt fram erindi frá atvinnuvegaráðuneytinu, dags. 14. október 2026, þar sem kynnt er til samráðs mál nr. 206/2026, "Frumvarp til laga um bókhald (ný heildarlög)". Umsagnarfrestur er til og með 28. október 2026.
Lagt fram til kynningar.

14.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - viðmið um sjálfbæra þróun - 2026010014

Lagt fram erindi frá innviðaráðuneytinu, dags. 12. október 2026, þar sem kynnt er til samráðs mál nr. 191/2026, "Viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga". Umsagnarfrestur er til og með 13. nóvember 2026.
Lagt fram til kynningar.

15.Almenningssamgöngur til og frá Ísafjarðarflugvelli - 2026090355

Lagt fram til kynningar erindi Huldu Rósar Bjarnadóttur, f.h. Vegagerðarinnar, dags. 16. október 2026, þar sem fram kemur að samkomulag hefur náðst við Vestfirskar Ævintýraferðir ehf., um akstur leiðar 67, einnig þekkt sem flugrúta til og frá Ísafjarðarflugvelli, til og frá Ísafirði, frá og með 17. október 2026, til og með 5. apríl 2027, að hámarki 7 ferðir á viku.
Lagt fram til kynningar.

16.Hverfisráð - fundargerðir 2026 - Dýrafjörður - 2026020010

Lögð fram til kynningar fundargerð hverfisráðs Dýrafjarðar, en fundur var haldinn 5. október 2026.
Lagt fram til kynningar.

17.Fundargerðir 2026 - Samband íslenskra sveitarfélaga - 2026020009

Lögð fram til kynningar fundargerð 1004. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 8. október 2026.
Lagt fram til kynningar.

18.Hafnarstjórn - 276 - 2610012F

Lögð fram til kynningar fundargerð 276. fundar hafnarstjórnar, en fundur var haldinn 20. október 2026.

Fundargerðin er í 1 lið.
Lagt fram til kynningar.
  • 18.1 2026030239 Gjaldskrár 2027
    Hafnarstjórn - 276 Hafnarstjórn leggur til við bæjarstjórn að samþykkja gjaldskrá hafna Ísafjarðarbæjar fyrir árið 2027.

19.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 174 - 2609030F

Lögð fram til kynningar fundargerð 174. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar, en fundur var haldinn 20. október 2026.

Fundargerðin er í 11 liðum.
Lagt fram til kynningar.

20.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 681 - 2610010F

Lögð fram til kynningar fundargerð 681. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 21. október 2026.

Fundargerðin er í 8 liðum.
Lagt fram til kynningar.
  • 20.1 2026030242 Viðhaldsáætlun 2027
    Skipulags- og mannvirkjanefnd - 681 Skipulags- og mannvirkjanefnd vísar viðhaldsáætlun Ísafjarðarbæjar 2027 - 2037 til bæjarráðs.
  • 20.2 2026030241 Framkvæmdaáætlun
    Skipulags- og mannvirkjanefnd - 681 Skipulags- og mannvirkjanefnd vísar framkvæmdaáætlun Ísafjarðarbæjar, A og B hluta 2027-2037, til bæjarráðs.
    Nefndin ítrekar þó mikilvægi þess að tryggja nægt lóðarframboð til íbúðaruppbyggingar á næstu árum.

Fundi slitið - kl. 10:05.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?