Dagbók bæjarstjóra 13.–18. september: Vika 11

Gylfi Ólafsson bæjarstjóri.
Gylfi Ólafsson bæjarstjóri.

Dagbók bæjarstjóra 13.–18. september, í 11 viku í starfi. 

Dagur í Dýrafirði, bleik kaka, drullumallslatte, skák og mát.

Skákfélag Vestfjarða hefur verið á siglingu síðustu misseri. Félagið heldur reglulega æfingar og keppnir á Ísafirði, gjarnan í Rögnvaldarsal Edinborgarhússins. Eitt sem gerir skák skemmtilega er að þar geta setið keppendur á ólíkum aldri og att kappi á jafnréttisgrundvelli. Skákfélagið er opið krökkum og fullorðnum, og öllum vel tekið, þar á meðal þeim sem eru rétt að læra mannganginn. Halldór Pálmi Bjarkason og Guðmundur Gíslason eru helstu driffjaðrirnar, báðir sterkir leikmenn, Gummi þó sýnu sterkari. Við Halldór tefldum oft þegar við vorum í grunnskóla, og þá átti ég aldrei roð í hann. Nú á hann tvo syni sem eru firnasterkir, og sá yngri, Karma, er Íslandsmeistari í skólaskák.

Halldór sendi mér skeyti á dögunum og sagði að bæjarstjórinn yrði að láta sjá sig, því þó ég hafi af og til komið á æfingar og innanfélagsmót hef ég ekki komið síðan fyrir kosningar. Ég ákvað því að slá til og setti mér það markmið að vera með fleiri ELO-stig en íbúafjöldi Bolungarvíkur. Það var fremur fámennt þetta skiptið og því tvöföld umferð leikin. Í annarri skáka okkar Halldórs lék hann af sér í miðtaflinu og ég náði máti, og fyrsta sigri mínum gegn Halldóri sem ég man eftir. Mótsstigin urðu 1799, langt yfir íbúafjölda Bolungarvíkur. Ég hvet unga sem aldna til að kíkja á æfingar og mót félagsins.

Nirvaan, Gummi, Karma og Halldór. 

Mánudagur í Dýrafirði

Ég tók daginn snemma á mánudeginum og byrjaði á Núpi. Þar hefur færst líf í mörg hús sem lengi hafa fengið að grotna niður. Eitt af þeim er gamla skólahúsið, en þar hefur Þorsteinn Jónsson, ættfræðingur og útgefandi, unnið ásamt fleirum að gagngerum endurbótum.

Það var töfrum líkast að fá að ganga um húsin, en í húsinu eru ekki bara kennslustofur og gistiálma, heldur líka íþróttahús með sviði, gömul lítil sundlaug og fleira. Þorsteinn vinnur að gerð bókasafns og gagnagrunns um þjóðlegan fróðleik sem merkilegt var að heyra hann lýsa. Þá eru tilbúin gistiherbergi í öðrum væng hússins og vandað til alls frágangs.

Þorsteinn með hluta af bókakostinum.

Ég keyrði svo fyrir fjörðinn yfir í íþróttamiðstöðina, sem hýsir ekki eingöngu sundlaug og íþróttasal, heldur er líka miðstöð fyrir tjaldsvæðið á Þingeyri. Fyrir utan voru skólabörn í hreyfingabingói.

Sigríður Kristín Ólafsdóttir er forstöðukona yfir þessu öllu og eiginmaður hennar, Hafþór, er henni við hlið.

Fréttir af mögulegri heimsókn minni höfðu kvisast út uppi í grunnskóla. Krakkarnir í unglingadeildinni settust niður og skrifuðu bréf um mikilvægi rútuferða fyrir minni byggðakjarna. Ég hef komið bréfinu áleiðis til þeirra starfsmanna og nefnda sem eru að skoða almenningssamgöngur milli byggðakjarna. Svona hefst bréfið:

Við nemendur efsta stigs í Grunnskólanum á Þingeyri biðjum um betri samgöngur til og frá Ísafirði. Það er mjög mikilvægt fyrir lýðheilsu barna að geta mætt í fjölbreytt félagslíf og geta stundað tómstundir eins og önnur börn.

Með þingeyrsku bréfriturunum.

Undir lok vinnudags kom svo Sr. Þorgrímur Daníelsson upp í Stjórnsýsluhús. Hann hefur verið settur prestur í Ísafjarðarprestakalli á meðan Sr. Magnús Erlingsson er í leyfi. Við fórum yfir nokkur praktísk mál en vorum svo snöggir að fara í önnur og á köflum andlegri mál. Við ræddum af hverju Ísafjarðarkirkja er ein af uppáhaldsbyggingunum mínum, og svo kynnti ég honum að ég væri í harðri samkeppni við þjóna kirkjunnar sem athafnastjóri Siðmenntar. Ég nefni það hér því síðar í vikunni hringdi svo Morgunblaðið til að ræða hugmyndir um að sveitarfélög gætu tekið að sér hjónavígslur. Ég tók þeirri hugmynd nú frekar fálega; sýslumaður getur sinnt þessu fyrir þá sem vilja enga aðkomu lífsskoðunarfélaga. Auk þess stendur húsakostur Ísafjarðarbæjar opinn fyrir þá sem vilja leigja rými til athafna af ýmsu tagi. Börn hafa verið skírð í Safnahúsinu og á pallinum þar sem myndin af okkur Sr. Þorgrími var tekin hef ég til dæmis einu sinni fermt barn.

Í vikunni fór fram Ungmennaþing Vestfjarða sem ég fékk að setja og svo hjálpa til á vinnustofu degi seinna. Í setningarræðu minni fór ég yfir að í mínum huga hefði þingið þríþætt hlutverk;

  1. kalla fram áherslumál ungmennanna sem fólk eins og ég get þá litið til við ákvarðanatöku,
  2. þjálfa ungmenni í þátttöku í stjórnmálum og félagsstarfi, og kynna fyrir þeim hvernig íslenskt stjórnkerfi virkar, og
  3. hafa gaman, kynnast nýjum stöðum og nýjum unglingum.

Niðurstaða þingsins var að auka almenningssamgöngur, það sama og þingeyrsku unglingarnir höfðu haft á orði fyrr í vikunni. Við heyrum þetta hátt og snjallt.

Bæjarráð og bæjarstjórn

Á fimmtudag var tvíhleypa; bæði bæjarráð og bæjarstjórn. Á fimmtudag var einnig forstöðumannafundur í staðfundi og fjarfundi. Á þessum fundum sem eru mánaðarlegir koma forstöðumenn allra stofnana og deilda sveitarfélagsins til umræðna og til að meðtaka ýmsan fróðleik frá stoðdeildunum. Umræður um fjárhagsáætlun setja svip sinn á störfin þessar vikurnar.

Þegar ég smellti af myndinni var Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir upplýsingafulltrúi að kynna Veturnætur 2026. Veturnætur er önnur tveggja hátíða (hin er Skíðavikan) sem kalla mætti safnhátíðir, þ.e. ramma sem sveitarfélagið býr til fyrir einstaklinga, stofnanir, félagasamtök og fyrirtæki að vera með viðburði.

Jöfnun atkvæðavægis

Þórunn Elísabet og Björn Þór í Morgunvaktinni á Rás 1 hringdu í mig snemma á föstudagsmorgun. Við ræddum um ýmis mál; fyrstu 100 daga nýrrar sveitarstjórnar, fjárlagafrumvarpið og tillögur í skýrslu um jöfnun atkvæðavægis. Ég var nú frekar neikvæður um það síðastnefnda og var frétt skrifuð upp úr því.

Ríkisvaldið er ekki eingöngu fólgið í löggjafarvaldinu, heldur einnig dómsvaldinu og framkvæmdavaldinu, og framkvæmdavaldið einskorðast ekki við ráðuneytin heldur er því dreift í fjölmargar stofnanir ríkisins. Öll ráðuneytin eru í Reykjavík og höfuðstöðvar nær allra ríkisstofnana einnig.

Ég deili ekki um stærðfræðina við prófessorana. En hlutverk þeirra er þrengra en hlutverk Alþingis og ráðherranna. Hlutverk þeirra síðarnefndu er að horfa heildstætt á það hvernig samfélagsgerðin er og hefur þróast, hvernig sameiningar stofnana, færsla valds úr héraði í höfuðstöðvar í Reykjavík, skattapólitík og margt fleira spilar saman.

Það er einnig rætt um að minnka kjördæmin og hafa þá færri fulltrúa. Ég held að það sé óráð. Þegar flokkar eru fleiri en þingsætin í kjördæminu fjölgar þeim flokkum sem ekki eiga neinn fulltrúa í ákveðnu kjördæmi. Sama hvað fólk vill segja um að þingmenn eigi að vera þingmenn alls landsins (sem er raunin í miklum meirihluta þeirra verkefna sem þingmenn fást við), þá myndar þetta rof milli kjördæmis og heilu stjórnmálaflokkanna.

Verkmenntaskóli hér fyrir vestan

Ég fundaði á föstudagsmorgun með Heiðrúnu Tryggvadóttur skólameistara og Dórótheu Margréti Einarsdóttur aðstoðarskólameistara um verkmenntahús Menntaskólans á Ísafirði. Viljayfirlýsingar hafa verið undirritaðar um að sveitarfélög taki yfir framkvæmdir í Skagafirði, Reykjanesbæ og á Akureyri. Slíkt hið sama er í burðarliðnum hér fyrir vestan. Þetta er ekki fullkomið fyrirkomulag, en um þessa lausn er pólitísk sátt hér heima og hef ég verið í sambandi við ráðuneytið vegna þessa.

Ferðaþjónustuföstudagur

Ferðaþjónar komu færandi hendi með köku með morgunkaffinu. Tilefnið var herferð SAF um að stærri ferðaþjónusta geti skilað enn stærri sneið til ríkisins:

Við í ferðaþjónustunni erum stolt af þessum árangri og viljum halda áfram. Aukin gjaldtaka og skortur á fyrirsjáanleika minnkar hins vegar ávinning samfélagsins af atvinnugreininni, dregur úr mætti ferðaþjónustu, seiglu og samkeppnishæfni, skaðar fjárfestingar í gæðum og framtíðaruppbyggingu og hefur neikvæð áhrif á nærsamfélög um allt land.

Þær Arna María, Alex og Nanný fóru yfir stöðu mála í ferðaþjónustunni hér fyrir vestan og lýstu mikilvægi ferðaþjónustunnar fyrir vestfirskan efnahag.

Hafnarstjóri var fjarverandi í öðrum erindum þegar lúxusskipið Explora III kom í fyrsta sinn til hafnar á Ísafirði og það kom því í minn hlut að afhenda platta frá höfninni og taka við platta frá skipinu. Skipstjórinn, Serena Melani, hefur að vísu margoft komið hingað, en var ráðin til að fylgja skipi sem er einungis nokkurra vikna gamalt. Það er búið vélum sem geta gengið fyrir fljótandi jarðgasi, sem ku vera umhverfisvænna en aðrir orkugjafar. Það er þó auðvitað nokkur ókostur að gas er ekki selt í magni á Íslandi.