Bæjarráð

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
1381. fundur 17. september 2026 kl. 08:10 - 09:05 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Kristján Þór Kristjánsson formaður
  • Elísabet Samúelsdóttir varaformaður
  • Jónas Þór Birgisson aðalmaður
  • Svanfríður G Bergvinsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
  • Gylfi Ólafsson bæjarstjóri
  • Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði: Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir upplýsingafulltrúi
Dagskrá
Tillaga formanns um að næsti fundur bæjarráðs verði miðvikudaginn 23. september 2026, kl. 8.10, í stað fimmtudags, vegna Landsþings. Samþykkt samhljóða.

1.Álagningarhlutfall útsvars 2027 - 2026030240

Tillaga bæjarstjóra um að álagningarhlutfall útsvars 2027 verði óbreytt frá árinu 2026 eða 14,97%. Frekari greiningargögn verða lögð fram síðar.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að álagningarhlutfall útsvars 2027 verði óbreytt eða 14,97%.

Gestir

  • Edda María Hagalín, fjármálastjóri - mæting: 08:15

2.Álagningarhlutfall fasteignagjalda 2027 - 2026090124

Lagt fram minnisblað Eddu Maríu Hagalín, fjármálastjóra, dags. 14. september 2026, varðandi samantekt um fasteignagjöld og fasteignamat ársins 2027 til samanburðar við fyrri ár.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram og leggja fyrir á næsta fundi.

3.Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026 - viðauki 16 - tilfærsla Sólborg/Tangi - 2025120020

Lagður fram til samþykktar viðauki 16 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2026, vegna tilfærslu á rekstrarkostnaði við lokun Tanga og færslu starfsemi yfir á Sólborg, en þar sem rekstri er lokið liggur fyrir nákvæmari sundurliðun á kostnaði ásamt mati á áhrifum á rekstur Sólborgar. Áhrifa gætir einnig á rekstri mötuneytis GÍ þar sem mötuneytið sá um að selja máltíðir til Tanga. Tekjur lækka því ásamt innkaupum.

Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er engin.
Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 274.600.000,-
Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 581.600.000,
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka 16 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2026, vegna tilfærslu á rekstrarkostnaði við lokun Tanga og færslu starfsemi yfir á Sólborg.

Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er engin.
Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 274.600.000,-
Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 581.600.000,
Edda María yfirgefur fund kl. 08:31

4.Þjónustustefna 2027-2030 - 2026090268

Lögð fram Þjónustustefna Ísafjarðarbæjar 2026-2029, en samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal sveitarstjórn, samhliða fjárhagsáætlun, móta stefnu fyrir komandi ár og næstu þrjú ár á eftir um það þjónustustig sem sveitarfélagið hyggst halda uppi í byggðum og byggðarlögum fjarri stærstu byggðarkjörnum sveitarfélagsins.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að uppfæra þjónustustefnu vegna breytinga á leikskólamálum með lokun Tanga. Stefnt skuli að ítarlegri endurskoðun síðar á kjörtímabilinu.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja framlagða óbreytta Þjónustustefnu fyrir árin 2027-2030 að teknu tilliti til ofangreindra breytinga.

5.Mánaðaryfirlit launakostnaðar 2026 - 2026020074

Lagt fram til kynningar minnisblað Helgu Sigríðar Hjálmarsdóttur, launafulltrúa, dags. 14. september 2026, um launakostnað fyrir janúar til ágúst árið 2026.
Lagt fram til kynningar.

6.Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026-2030 - 2026050225

Lagt fram til kynningar erindi Vals Rafns Halldórssonar, f.h. Sambandsins, dags. 9. september 2026, þar sem tilkynnt er um tillögur að breytingum á samþykktum Sambandsins.
Lagt fram til kynningar.

7.Ýmis erindi 2026- 2027 - Sambandið - 2026090082

Lagt fram erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dags. 8 september 2026 þar sem sveitarfélög eru minnt á að skipa í lögbundinn notendaráð sveitarfélaga, s.s. öldungaráð, notendaráð í málefnum fatlaðs fólks og ungmennaráð.
Kjör öldungaráð og notendaráð er á dagskrá bæjarstjórnar í dag. Málefni ungmennaráðs er í vinnslu og mun ljúka fljótlega.

8.Stjórn Fasteigna Ísafjarðarbæjar - 110 - 2606017F

Lögð fram til kynningar fundargerð 110. fundar stjórnar Fasteigna Ísafjarðarbæjar, en fundur var haldinn 10. september 2026.

Fundargerðin er í 11 liðum.
Lagt fram til kynningar.

9.Hafnarstjórn - 274 - 2609002F

Lögð fram til kynningar fundargerð 274. fundar hafnarstjórnar, en fundur var haldinn 8. september 2026.

Fundargerðin er í 2 liðum.
Lagt fram til kynningar.
  • Hafnarstjórn - 274 Hafnarstjórn samþykkir samhljóða framkvæmdaráætlun Hafnarsjóðs og vísar henni til umfjöllunar í Skipulags- og mannvirkjanefnd.

10.Menningarmálanefnd - 182 - 2609011F

Lögð fram til kynningar fundargerð 182. fundar menningarmálanefndar, en fundur var haldinn 14. september 2026.

Fundargerðin er í 13 liðum.
Lagt fram til kynningar.
  • 10.3 2026030239 Gjaldskrár 2027
    Menningarmálanefnd - 182 Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja framlagða gjaldskrá fyrir söfn.
  • Menningarmálanefnd - 182 Nefndin samþykkir framlagða framkvæmdaáætlun vegna menningarmála og vísar henni til samþykktar í skipulags- og mannvirkjanefnd.
  • Menningarmálanefnd - 182 Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja endurnýjum samnings við Act Alone fyrir 2027-2029.
  • Menningarmálanefnd - 182 Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja endurskoðaðar reglur um úthlutun styrkja til menningarmála þar sem hámarksstyrkfjárhæð er hækkuð í kr. 300.000.

11.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 678 - 2609006F

Lögð fram til kynningar fundargerð 678. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 8. september 2026.

Fundargerðin er í 12 liðum.
Lagt fram til kynningar.
  • 11.1 2026030239 Gjaldskrár 2027
    Skipulags- og mannvirkjanefnd - 678 Skipulags- og mannvirkjanefnd hefur farið yfir gjaldskrár sem heyra undir nefndina og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi tillögur:

    Gjaldskrá slökkvitækjaþjónustu taki mið af launavísitölu.
    Gjaldskrá öryggisþjónustu verði óbreytt.
    Gjaldskrá slökkviliðs taki mið af launavísitölu og verðlagsþróun.
    Gjaldskrá skipulagsbreytinga og framkvæmdaleyfa taki ekki öðrum breytingum en spá um launavísitölu.
    Gjaldskrá byggingarleyfa taki ekki öðrum breytingum en spá um launa- og byggingarvísitölu.
    Gatnagerðargjöld verði óbreytt.
  • Skipulags- og mannvirkjanefnd - 678 Skipulags- og mannvirkjanefnd þakkar fyrir umsagnir og athugasemdir við auglýsta tillögu.

    Nefndin hefur farið yfir athugasemdir og tekur undir þau sjónarmið og svör sem Verkís ehf. hefur sett fram í minnisblaði dags. 7. september 2026.

    Skipulags- og mannvirkjanefnd áréttar að tekið verður samtal við Minjastofnun, í samræmi við innsenda athugasemd stofnunarinnar.

    Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytingu á deiliskipulagi Eyrarinnar, fyrir færanlega stofu við Eyrarskjól við Eyrargötu á Ísafirði, unnið af ráðgjafa Verkís ehf. fyrir Ísafjarðarbæ, dags. 3. júní 2026

12.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 172 - 2609005F

Lögð fram til kynningar fundargerð 172. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar, en fundur var haldinn 8. september 2026.

Fundargerðin er í 9 liðum.
Lagt fram til kynningar.
  • 12.2 2026030239 Gjaldskrár 2027
    Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 172 Umhverfis- og framkvæmdanefnd hefur farið yfir gjaldskrár, nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytingar á gjaldskrám sem heyra undir nefndina, að undanskildu áhaldahúsi.
    Nefndin mun boða til aukafundar þriðjudaginn 15. september, næstkomandi og fara betur yfir gjaldskrá áhaldahúss, nefndin óskar eftir minnisblaði um rekstrargreiningu hússins sem rökstyður gjaldskrárbreytingar.

13.Velferðarnefnd - 507 - 2609010F

Lögð fram til kynningar fundargerð 507. fundar velferðarnefndar, en fundur var haldinn 10. september 2026.

Fundargerðin er í 8 liðum.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 09:05.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?