Dagbók bæjarstjóra 19.–25. október: Vika 16
Dagbók bæjarstjóra 19.–25. október í 16 viku í starfi.
Ferðaþjónusta á Þingeyri, malbik (eins og alltaf), grænlenskur hafís, steypustress og reyktur fiskur í Súganda og Loftbrú. Og: Act Alone verður á Suðureyri næstu þrjú ár (staðfest).
Annasamur fimmtudagur, einkum á Þingeyri
Fyrri hluti vikunnar rann hjá við ófréttnæm fundahöld og glímu við innhólfið. Bæjarráðsfundur á fimmtudagsmorgun var talsvert efnismikill. Þar var fjallað um fjárhagsáætlun, Framkvæmdasjóð ferðamannastaða, ráðningu sviðsstjóra og fleira. Ég tók að mér að sitja í nýjum samráðshópi um Eyrarkláf og skrifa umsagnir um frumvarp um stórþörungarækt og viðmið um sjálfbæra þróun.
Þá tók bæjarráð jákvætt í erindi Skúrarinnar á Flateyri um samning um áframhaldandi rekstur skrifstofuhótelsins og mér falið að halda áfram að vinna málið.
Þaðan fór ég yfir á Þingeyri, en þar hafði ég auglýst viðtalstíma í Blábankanum. Eins og oft eru kortasjár mikið þarfaþing þegar ræða á skipulag, gatnagerð og fleira.


Ég fór yfir í æfinga- og skrifstofuaðstöðu Kómedíuleikhússins, en um það mikla starf sem þar er unnið og eljuna þarf ekki að fjölyrða hér. Ég undirritaði þriggja ára samning um Act Alone-hátíðina á Suðureyri sem haldin er í ágúst. Logi hvíslaði að mér nöfnum nokkurra af þeim listamönnum sem eru þegar búnir að staðfesta sig á næsta ári. Það er óhætt að segja að þar verði listamennirnir teknir úr efstu hillu.

Ég fór svo yfir á KEX. Þarna voru Kristinn Vilbergsson og Þórður Kolbeinsson eigendur og Árni Geir Magnússon félagi þeirra. Við ræddum framtíð ferðaþjónustu á Vestfjörðum og Dýrafirði, en þar eru miklir möguleikar. Skipulagsmál, samgöngur, markaðssetning og samhæfing ferðaþjónustunnar bar meðal annars á góma.

Ég brunaði svo yfir Gemluna til Ísafjarðar, þar sem Veturnætur voru komnar á gott skrið. Þema hátíðarinnar í ár var Hafís og fjölbreytt dagskrá í boði. Ég hafði því miður ekki tækifæri til að fara á marga viðburði en náði að kíkja við hjá Írisi Ösp Heiðrúnardóttur sem opnaði fallega sýningu þar sem hún tengdi myndlist við Grænland. Verkin gerði hún með því að mála ísjaka úr Grænlandsjökli og láta þá svo bráðna.

Ég átti svo erindi niður á Suðurtanga. Þar var hjólaskíðaæfing SFÍ í fullum gangi. Skíðagöngufólk veit ekkert betra en nýlagt og slétt malbik.

Súgfirsk fiskverkun
Á föstudag brunaði ég yfir á Suðureyri til að hitta Elías Guðmundsson í reykhúsi Fisks ehf. Elías hefur komið víða við í fyrirtækjarekstri og er nú með bæði fiskvinnslu í neytendaumbúðir á íslenskum og erlendum markaði og ferðaþjónustu fyrir evrópska sjóstangveiðimenn. Við höfðum um margt að tala enda Elías hugmyndaríkur og framtakssamur.

Ég hitti svo þrjá aðra bæjarstjóra sem eru að undirbúa byggingu verknámshúsanna á Sauðárkróki, Akureyri og Reykjanesbæ. Fundinn fékk ég að taka á Fisherman-kaffihúsinu.

Þar við hliðina var verið að steypa undir útveggi viðbyggingar við félagsheimilið á Suðureyri. Ísafjarðarbær á 55% eignarhlut í húsinu og greiðir hlut í framkvæmdunum. Eldra hús hefur verið rifið, en í þessum nýja hluta verða betri salerni, stólageymsla og aðgengi að nýjum útipalli.


Á laugardag hélt Viðreisn sveitarstjórnarþing sitt í Hafnarfirði. Þar gafst tækifæri til að hittast, stilla miðið, skiptast á skoðunum og — sem oft er mikilvægast — spjalla með kaffibolla í hönd.
Mörg spjót hafa staðið að ráðherrum Viðreisnar og ríkisstjórnarinnar upp á síðkastið, og raunar var það svo að á meðan á fundinum stóð voru efstu fréttir vefmiðlanna flestar um fyrirhugaðar breytingar á Loftbrú. Innviðaráðherra og tveir þingmenn Viðreisnar hafa sagt að breytingarnar geti ekki staðið eins og þær voru fyrst lagðar fram, og stór mótmælaalda hefur einnig risið í aðsendum greinum og á samfélagsmiðlum. Loftbrúin hefur rækilega sannað gildi sitt á síðustu árum og réttara væri að hækka fjárhæðir í Loftbrúna heldur en hitt. Nógu dýrt og gisið er flugið fyrir.
Atvinnuvegaráðherra mun koma í heimsókn vestur á firði í komandi viku og verður meðal annars viðstödd Fjórðungsþing. Ég hef hvatt Hönnu Katrínu eindregið til þess að gera aðra atlögu að því að koma lagareldisfrumvarpinu í gegnum Alþingi og hefur það ekki verið létt verk fyrir hana að sætta fjölmörg ólík sjónarmið í því flókna máli.
