Dagbók bæjarstjóra 28. september–3. október: Vika 13

Dagbók bæjarstjóra 28. september–3. október í 13 viku í starfi

Þingmenn á Þingeyri, varnarmál á Grænlandi, þverun Djúpafjarðar, flugáætlun, stjórnarskipti í Náttúrustofu Vestfjarða og fleira.

Þingmenn á Þingeyri

Vikan var kjördæmavika, en þá gefst þingmönnum kjördæmisins tími til að ríða um héröð. Gjarnan eru skipulagðir fundir með sveitarstjórnum úr þremur hlutum kjördæmisins, og komu Vestfirðingar saman í félagsheimilinu á Þingeyri.

Stefán Vagn Stefánsson, María Rut Kristinsdóttir, Arna Lára Jónsdóttir og fyrsti þingmaður, Ólafur Adolfsson, komu til að heyra hvað er efst á baugi.

Í framsögu minni ræddi ég um samgöngumál og mikilvægi þeirrar samstöðu sem náðst hefur á síðustu árum um að klára Vestfjarðahringinn, stöðu mála í móttöku skemmtiferðaskipa, tilvonandi viljayfirlýsingu um uppbyggingu verknámshúss, breytingar á lögregluumdæmum, mikilvægi þess að ríkið skapi forsendur fyrir Hvalárvirkjun, lagareldisfrumvarpið og ýmislegt fleira.

Þórkatla Soffía Ólafsdóttir og María Rut Kristinsdóttir í félagsheimilinu á Þingeyri.

Það var fróðlegt að heyra hvaða sýn þingmenn hefðu á veturinn framundan. Einnig var upplýsandi—í ljósi þess að stór hluti sveitarstjóra og kjörinna fulltrúa eru nýir—að heyra hvaða nálgun nýtt fólk hefur á málefni síns sveitarfélags.

Hernaðarbrölt

Fyrr um morguninn birtist í Morgunblaðinu viðtal við mig um möguleika sem tengjast þríhliðasamningi Grænlands, Danmerkur og Bandaríkjanna.

Það myndaðist svo í vikunni umræða um málið á Facebook, þar sem spurt var hvort íbúar og kjósendur eigi ekki að hafa neitt um það að segja ef Bandaríkjaher verði hleypt hingað. Þá var því velt upp hvort varnarmál hafi verið rædd fyrir kosningar. Um þetta urðu nokkrar umræður, ekki bara á netinu heldur hafa fjölmargir komið að máli við mig til að ræða ýmsar hliðar málsins.

Hér var auðvitað hvorki verið að fjalla um hernaðaruppbyggingu á Vestfjörðum eða prívat vegferð bæjarstjóra, heldur umræða um að Ísafjörður geti verið umskipunarhöfn og þjónustumiðstöð fyrir þær afskekktu óbyggðir sem þessi þrjú lönd hafa metið að þurfi frekari varna við.

Í tæpa öld hafa hér fyrir vestan verið hernaðarmannvirki, fyrst á tveimur stöðum norðan Djúps og svo á Bolafjalli. Þverpólitísk sátt hefur verið um hófsama þátttöku í ýmisskonar varnarverkefnum, sem meðal annars hefur birst í skýrslu þverpólitískar nefndar og stefnu í varnar- og öryggismálum sem Alþingi afgreiddi mótatkvæðalaust. Meira að segja formaður VG, sem var yfirlýstur hernaðarandstæðingur, fór oft á fundi NATO sem forsætisráðherra.

Afstaða mín sem bæjarfulltrúa og formanns Fjórðungssambands Vestfjarða, sem kom fram til dæmis í skýrslu í janúar, er samt ekki að auka hernaðarumsvif, enda er það hvorki mitt að dæma eða ákveða neitt með það. En komi til hernaðarumsvifa og uppbyggingar, sé mikilvægt að það sé til þess fallið að gagnast í borgaralegum tilgangi; að við styrkjum seiglu Vestfjarða með öflugri björgunarsveitum, bættum samgöngum og fjarskiptum, áfallaþolnara raforkukerfi og þar fram eftir götunum. Á þessum nótum voru niðurstöður skýrslunnar og á þessum nótum mun ég tala á Hringborði norðurslóða í næstu viku.

Ef standa ætti skýrt á móti hverslags tengslum við varnarmál, væri það því talsvert róttæk breyting frá þeirri stefnu sem rekin hefur verið á Íslandi og Vestfjörðum frá seinni heimstyrjöld. Afstaða mín hefur því legið ágætlega ljós fyrir frá því talsvert fyrir kosningar. Af því að ég er með kosningaáherslur allra flokkanna fjögurra frá í vor samandregnar á tölvunni minni, þá get ég líka sagt að hernaður, öryggis- og varnarmál eða samheiti eru þar ekki nefnd einu nafni.

Mér er einnig minnisstætt þegar ég í júní sat kynningarfund Kerecis með herráði NATO, þar sem því var lýst hvernig fjármögnun og samstarf við bandaríska herinn hefði leikið lykilhlutverk í uppbyggingu fyrirtækisins. Í frétt Viðskiptablaðsins sagði við þetta tilefni:

Þar kynnti Guð­mundur Fer­tram Sigur­jóns­son starf­semi fyrir­tækisins og hvernig sáraroð Kerecis er nýtt við með­ferð al­var­legra sára, meðal annars í hóp­slysa­aðstæðum og við aðstæður þar sem ekki er hægt að koma særðum ein­stak­lingum hratt undir sér­hæfða læknis­með­ferð.

 

Dagbók bæjarstjóra, vika 1

 
Dagbók bæjarstjóra, vika 1

Um Kerecis-fundinn fund fjallaði ég í fyrstu dagbókarfærslunni minni.

Miðvikudagur: ályktanir Vestfjarðastofu og Náttúrustofa

Í kringum hádegið var fundur Vestfjarðastofu. Í fundargerð segir um lið 3:

Framkvæmdastjóri kynnti þar erindi Vegagerðarinnar frá 28. september 2026, þar sem óskað er staðfestingar á breytingu Icelandair á flugáætlun til Ísafjarðar yfir háveturinn á grunni samninga um ríkisstyrkt áætlunarflug þ.e. tímabilið frá nóvember fram í miðjan febrúar. Samkvæmt samningi Icelandair um áætlun eru sjö flug í viku á tímabilinu. Icelandair gerir tillögu um að fella niður síðara flug á þriðjudögum niður og í stað þess bætist við morgunflug á miðvikudögum. Með breytingunni yrði flogið sex daga vikunnar, en tvö flug yrðu á fimmtudögum. Tillagan er lögð fram í kjölfar fyrirspurna um flug á fleiri dögum vikunnar.

Eftir að ríkið gerði samning við Icelandair um flugið er ákvörðun um flugáætlun allt í einu orðin verkefni stjórnmála og embættismanna frekar en að vera á hreinum markaðsforsendum. Þar sem fleiri en eitt sveitarfélag nýtir flug til Ísafjarðar liggur beint við að vettvangur þeirrar umræðu sé Vestfjarðastofa, með þeim fyrirvörum að ekki er á miklu öðru en reynslu og hyggjuviti að byggja. Stjórnin ályktaði svo:

Stjórn tekur undir með Icelandair að það að tryggja flug alla virka daga milli Ísafjarðar og Reykjavíkur sé forgangsmál, jafnvel þó það þýði að einungis einn dag í viku yfir dimmasta tíma ársins séu tvö flug á dag og felur framkvæmdastjóra að svara Vegagerðinni. Jafnframt er lögð áhersla á að reynsla af flugáætlun Icelandair verði metin áður en flugáætlun haustið 2027 er fastsett.

Samþykktar voru tvær ályktanir um skattlagningu af ferðaþjónustu og þar á eftir fjallað um fréttir af niðurstöðum útboðs á þverun Djúpafjarðar. Eftirfarandi ályktun var þar samþykkt:

Klárum þverunina
Tilboð voru opnuð í síðasta áfanga þverunar Djúpafjarðar í gær og voru tilboð nokkuð yfir kostnaðaráætlun. Stjórn Vestfjarðastofu hvetur Vegagerðina til að ganga til samningsviðræðna við lægstbjóðanda og klára málið. Á meðan brúin er ekki komin á er ekki hægt að taka þveranir Gufu- og Djúpafjarðar í notkun, og umferð er beint á úreltan fjallveg án slitlags. Með brúnni klárast stór áfangi í að koma á heilsárs-hringtengingu um Vestfirði, sem hefur falist í Dýrafjarðargöngum, miklum vegbótum á Dynjandisheiði, þverun Þorskafjarðar auk annarra kafla. Vegbæturnar hafa þó dregist mjög mikið. Vestfjarðastofa samþykkir ekki frekari frestun á framkvæmdum.

Af stjórnarfundinum fór ég í loftköstum til Bolungarvíkur á ársfund Náttúrustofu Vestfjarða. Almennt eru fundir af þessu tagi haldnir að vori, en á kosningaári eru þeir að hausti svo sveitarstjórnir geti kosið nýja stjórn. Á fundinum kynnti Hulda Birna Albertsdóttir ársskýrslu og magnaða starfsemi þessarar stofnunar. Smári Haraldsson, sem setið hefur í stjórninni með hléum frá stofnun hennar, og sem stjórnarformaður síðustu árin, steig til hliðar og flutti erindi af því tilefni. Catherine Chambers hætti einnig í stjórn. Lilja Magnúsdóttir sem verið hefur stjórnarmaður tók við stjórnarformennsku.

Fimmtudagur

Fimmtudagur byrjaði í bæjarráði. Ýmis mál voru þar tekin til umræðu. Minnisblað um varmadælur fyrir Torfnesvöll var birt, en þar koma fram upplýsingar um að fyrri áætlanir hafi reynst óframkvæmanlegar við nánari skoðun. Það voru ekki góðar fréttir og nú þarf að vinna úr þeirri stöðu sem upp er komin. Vallarlýsingin er þó á leiðinni, vonum seinna.

Hilmar hafnarstjóri og Guðni formaður hafnarstjórnar komu svo til að ræða staðsetningu móttökuhússins á höfninni. Þegar spreyjað hafði verið fyrir byggingarreitnum hafði komið í ljós að staðsetningin væri ekki fullkomin. Úr varð að hnika reitnum um nokkra metra til að mæta þeim fjölbreyttu verkefnum sem höfninni er ætlað að sinna.

Anna Hildur Hildibrandsdóttir kom svo og kynnti fyrir mér doktorsverkefni sem hún er að undirbúa um skapandi frumkvöðlastarf þar sem sjónum verður beint að Ísafjarðarbæ. Anna hefur komið víða við á starfsferli sínum og er fagstjóri skapandi greina við Háskólann á Bifröst.

Í bæjarstjórn seinnipartinn var slökkt á hljóðnemum þegar ráðning á nýjum mannauðsstjóra var tekin fyrir, en Íris Arnlaugsdóttir var talin hæfust til að taka við Baldri Inga Jónassyni sem starfað hefur fyrir bæinn í um áratug.

Þá var ætlunin að afgreiða gjaldskrár en því var frestað með bókun sem öll bæjarstjórn stóð bakvið:

Forseti ber upp tillögu um að málinu verði frestað og leggur til eftirfarandi bókun með frestunartillögu:

Ísafjarðarbær lætur ekki sitt eftir liggja í baráttu við vexti og verðbólgu, og telur gríðarlega mikilvægt að kjarasamningar haldi. Á síðustu dögum hefur Samband íslenskra sveitarfélaga samþykkt hvatningu um að takmarka hækkanir almennra gjaldskráa sveitarfélaga. Forsætisráðherra tilkynnti í dag að ríkið myndi takmarka sínar hækkanir við 2,5%.

Gjaldskrár Ísafjarðarbæjar hafa verið unnar samkvæmt tímaáætlun sem ákveðin var í vor. Þær voru unnar í samræmi við hagrænar forsendur frá opinberum aðilum, en þó þannig að fjölskyldur og tekjulægri væru vernduð fyrir hækkunum. Bæjarstjórn telur þó skynsamlegt að fresta samþykkt gjaldskráa svo hægt sé að rýna þær betur til að tryggt sé að það sé yfir vafa hafið að þær endurspegli vilja launþegahreyfingarinnar, Sambands íslenskra sveitarfélaga og ríkisins um 2,5% hækkun.

Föstudagur

Á föstudag komu nemendur úr Menntaskólanum á Ísafirði til að ræða dagskrá laugardagsins 10. október, en þá er efnt til samtals um framtíðina að frumkvæði Höllu Tómasdóttur forseta. Við hvetjum alla til að taka þátt. Dagskráin byrjar kl. 14 en það er mælt með að þátttakendur skrái sig fyrirfram á talasaman.is.

Jón Páll Halldórsson, heiðursborgari Ísafjarðarbæjar, átti afmæli á föstudag, 97 ára gamall. Kristján Þór formaður bæjarráðs kíkti til hans og færði honum blómvönd að því tilefni.

Á laugardag fór árshátíð Ísafjarðarbæjar fram í íþróttahúsinu á Flateyri. Þar var vel mætt og mikil skemmtun.