Bæjarráð

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
1383. fundur 01. október 2026 kl. 08:10 - 09:40 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Kristján Þór Kristjánsson formaður
  • Elísabet Samúelsdóttir varaformaður
  • Jónas Þór Birgisson aðalmaður
  • Svanfríður G Bergvinsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Gylfi Ólafsson bæjarstjóri
  • Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði: Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir Upplýsingafulltrúi
Dagskrá
Formaður leggur fram tillögu um að mál um byggingu verknámshúss verði tekið inn á dagskrá með afbrigðum. Tillagan samþykkt samhljóða. Málið verður nr. 1.

1.Bygging verknámshúss við MÍ - framkvæmd Ísafjarðarbæjar - 2026080042

Mál tekið á dagskrá með afbrigðum.

Lögð fram drög að viljayfirlýsingu um að Ísafjarðarbær taki að sér undirbúning og verkframkvæmdir vegna stækkunar verknámshúss Menntaskólans á Ísafirði.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viljayfirlýsingu um að Ísafjarðarbær taki að sér undirbúning og verkframkvæmdir vegna stækkunar verknámshúss Menntaskólans á Ísafirði.

2.Torfnes - Gervigras varmadælur forsendur - 2025020207

Lagt er fram minnisblað Axels Rodriguez Överby, sviðsstjóra umhverfis- og eignarsviðs, dags. 26. ágúst 2026, um niðurstöður verðfyrirspurnar vegna varmadælukerfis fyrir Torfnesvöll. Jafnframt er lögð fram verðfyrirspurn nr. 5405962639, dags. 4. mars 2026, vegna kaupa á loft-vatn varmadælukerfi fyrir Torfnesvöll. Málið er lagt fyrir bæjarráð til umræðu og afstöðu um framhald innkaupaferlisins.
Bæjarráð samþykkir að hafna öllum tilboðum sem bárust í verðfyrirspurn vegna varmadælukerfis fyrir Torfnesvöll og núverandi innkaupaferli þar með hætt.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að kanna aðrar tæknilegar lausnir eða orkugjafa sem reynst getur hagkvæmari en þær lausnir sem lagðar voru til grundvallar núverandi verðfyrirspurn.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að hafa samband við Fiskeldissjóð og óska eftir því að styrkur sem veittur var vegna varmadæluverkefnis á Torfnesvelli verði nýttur til fjármögnunar vallarlýsingar á Torfnesvelli. Beiðnin verði rökstudd með vísan til þess að forsendur varmadæluverkefnisins hafi breyst verulega frá því að styrkumsókn var lögð fram, kostnaður verkefnisins reynst mun hærri en upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir og að verkefni vallarlýsingar sé hluti af sömu uppbyggingu Torfnesvallar og stuðli að sömu markmiðum um bætta nýtingu og aukið aðgengi að mannvirkinu.
Eyþór yfirgaf fund 8:33

Gestir

  • Eyþór Guðmundsson, deildarstjóri - mæting: 08:17

3.Ráðning mannauðsstjóra - 2026080104

Lagt fram til kynningar minnisblað Baldurs I. Jónassonar, mannauðsstjóra, dags. 29. september, um tillögu að ráðningu mannauðsstjóra hjá Ísafjarðarbær, en núverandi mannauðsstjóri lætur af störfum 1. desember 2026.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að ráða Írisi Arnlaugsdóttur, sem mannauðsstjóra Ísafjarðarbæjar og að bæjarstjóra verði falið að ganga frá ráðningarsamningi.

4.Fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2027 - 2026030243

Lögð fram fyrstu drög að fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2027.
Lagt fram til kynningar.

Gestir

  • Edda María Hagalín, fjármálastjóri - mæting: 08:43

5.Framkvæmdaáætlun 2027 til 2037 - 2026030241

Lögð fram fyrstu drög að framkvæmdaáætlun 2027-2037.
Lagt fram til kynningar.

6.Viðhaldsáætlun 2027 - 2026030242

Lögð fram fyrstu drög að viðhaldsáætlun 2027-2037.
Lagt fram til kynningar.
Edda María yfirgaf fund 9:19

7.Almenningssamgöngur til og frá Ísafjarðarflugvelli - 2026090355

Lögð fram til kynningar tilkynning frá Vegagerðinni, dags. 21. september 2026, þar sem fram kemur að þar sem aðeins eitt tilboð barst vegna vegna útboðs á akstri leiðar 67, einnig þekkt sem flugrúta, sem var langt umfram kostnaðaráætlun, var tilboðinu hafnað.

Gerður hefur verið tímabundinn samningur við Vestfirskar Ævintýraferðir ehf. meðan unnið er að framtíðarútfærslu á þjónustunni. Leggurinn hefur því verið styttur og hefjast og enda ferðir því á Ísafirði, í stað Bolungarvíkur.

Tekur breytingin gildi 21. september 2026, og verður eftirfarandi:

Ísafjörður - Ísafjarðarflugvöllur - Ísafjörður.
Stoppistöðvar verða eftirfarandi:
- Pollgata Ísafjörður
- Ísafjarðarflugvöllur
- Pollgata Ísafjörður
Einnig er hægt að hafa samband við akstursaðila í síma: 893 6356
Málinu frestað til næsta fundar.

8.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - 2026010014

Á 1382. fundi bæjarráðs, þann 23. september 2026, var lagt fram erindi frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis, dags. 17. september 2026, þar sem óskað er umsagnar um 5. mál, frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum. Umsagnarfrestur er til og með 1. október 2026. Var málinu frestað til næsta fundar og nú lagt fram að nýju.
Bæjarráð telur ekki þörf á að senda inn umsögn.

9.Stjórnsýsluhús - þakskipti 2026 - 2026080114

Lögð fram til kynningar fundargerð 1. verkfundar vegna endurbóta á þaki Stjórnsýsluhúss dags. 22. september 2026.
Lagt fram til kynningar.

10.Fundargerðir 2026 - Samband íslenskra sveitarfélaga - 2026020009

Lögð fram til kynningar fundargerð 1002. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 11. september 2026.
Lagt fram til kynningar.

11.Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd - 49 - 2609017F

Lögð fram til kynningar fundargerð 49. fundar skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn 21. september 2026.

Fundargerðin er í 9 liðum.
Lagt fram til kynningar.
  • Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd - 49 Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd ræddi drög að samþykktum um ungmennaráð þar á meðal aldur fulltrúa, fundartíma, staðsetningu funda og fyrirkomulag ráðsins. Nefndin vísar drögunum, með þeim breytingum sem ræddar voru á fundinum, til bæjarstjórnar til samþykktar. Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd - 49 Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd tekur jákvætt í erindið og vísar því til bæjarstjórnar til samþykktar. Bókun fundar Lagt fram til kynningar.

12.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 173 - 2609020F

Lögð fram til kynningar fundargerð 173. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar, en fundur var haldinn 22. september 2026.

Fundargerðin er í 10 liðum.
Lagt fram til kynningar.
  • 12.1 2026030239 Gjaldskrár 2027
    Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 173 Umhverfis- og framkvæmdanefnd hefur farið yfir gjaldskrár og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytingu á gjaldskrá áhaldahúss. Bókun fundar Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 09:40.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?