Bæjarráð

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
1379. fundur 03. september 2026 kl. 08:10 - 09:05 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Kristján Þór Kristjánsson formaður
  • Stefán Hannibal Hafberg varamaður
    Aðalmaður: Elísabet Samúelsdóttir
  • Jónas Þór Birgisson aðalmaður
  • Svanfríður G Bergvinsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
  • Gylfi Ólafsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Snjótroðari - Útboðinnkaup 2026 - 2026030307

Á 1376. fundi bæjarráðs, þann 13. ágúst 2026, var lagt er fram minnisblað Eyþórs Guðmundssonar, deildarstjóra umhverfis- og eignarsviðs, dags. 10. ágúst 2026, um niðurstöðu útboðs nr. 20264 vegna kaupa á snjótroðara fyrir skíðasvæði Ísafjarðarbæjar. Með málinu fylgja útboðsgögn, fyrirspurnir og svör á útboðstíma, kostnaðaráætlun útboðsins og mat tilboða ásamt lokaniðurstöðu umsjónarmanns. Í minnisblaðinu er lagt til að öllum innkomnum tilboðum verði hafnað og að veitt verði heimild til samningsgerðar á grundvelli 39. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup.

Bæjarráð hafnaði öllum tilboðum þar sem ekkert gilt tilboð barst. Bæjarstjóra var veitt heimild til að ganga til samninga á grundvelli 39. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup vegna kaupa á snjótroðara fyrir skíðasvæði Ísafjarðarbæjar, og leggja samning fram til samþykktar.

Í kjölfar ákvörðunar bæjarráðs um að heimila samningaviðræður á grundvelli 39. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup hefur verið gengið frá kaupsamningi. Lagt er til við að bæjarráð samþykkja samning um kaup. Er nú lagt fram minnisblað Eyþórs Guðmundssonar, deildarstjóra umhverfis- og eignarsviðs, dagsett 28. ágúst 2026, ásamt kaupsamningi.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samning við Rafstillingu Reka ehf. um kaup á nýjum snjótroðara fyrir skíðasvæði Ísafjarðarbæjar og veitir bæjarstjóra heimild til að undirrita samninginn fyrir hönd Ísafjarðarbæjar.
Eyþór yfirgaf fund kl. 8:17.

Gestir

  • Eyþór Guðmundsson, deildarstjóri - mæting: 08:10
  • Axel R. Överby, sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs - mæting: 08:10

2.Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026 - 2025120020

Á 1377. fundi bæjarráðs, þann 20. ágúst 2026, var lagt fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, Axel R. Överby, dags. 17. ágúst 2026, vegna aukaverka og forgangsröðunar malbiksframkvæmda ársins 2026. Bæjarráð fór yfir aukaverk samkvæmt minnisblaði og ákvað að samþykkja nokkur aukaverkefni. Bæjarstjóra var falið að leggja fram viðauka á næsta fundi bæjarráðs vegna málsins.

Er nú lagður fram til samþykktar viðauki 15 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar, varðandi framkvæmdaáætlun 2026, vegna aukaverka við malbikunarframkvæmdir. Viðaukinn felur í sér tilfærslu fjárheimilda innan Hafnarsjóðs vegna lagfæringar vegarins í Dagverðardal. Jafnframt eru lögð fram minnisblöð hafnarstjóra og sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs ásamt uppfærðri framkvæmdaáætlun. Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar eru engin.

Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er engin.
Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 274.600.000,
Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 581.600.000
Malbikun Skarfatangi/Æðatangi mun ekki fara fram fyrr en vorið 2027, og felur bæjarráð bæjarstjóra að uppfæra viðauka sem þessu verkefni nemur og leggja fyrir bæjarstjórn til samþykktar á næsta fundi.

Bæjarráð felur bæjarstjóra jafnframt að gæta þess að verkefnið fari á framkvæmdaáætlun 2027.

3.Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2025-2050 - 2025060065

Á 675. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, þann 7. júlí 2027, var starfsmanni falið að vísa þeim köflum Aðalskipulagsins sem falla undir verksvið annarra nefnda til viðkomandi nefnda til umfjöllunar. Eftirfarandi kaflar hafa verið lagðir fram til umræðu í tilheyrandi fagnefndum, og eru hér lagðir fram til umræðu eða kynningar eftir atvikum:

Framtíðarsýn og meginstefnu skipulagsins,
Kafli 8.2 Íbúðarbyggð, vegna íbúaþróunar og húsnæðismála,
Atvinnuþróun og verðmætasköpun,
Samfélagsþjónustu,
Kafli 13, samgöngur,
Loftslagsmál og náttúruvá,
Framkvæmdir og áhrif á fjármál,
Kaflar um landnotkun og hugsanlega hagsmunaárekstra.
Lagt fram til kynningar.
Axel yfirgaf fund kl. 8:32.

4.Ársreikningur Byggðasafns Vestfjarða 2025 - 2026080188

Lagður fram til kynningar undirritaður og endurskoðaður ársreikningur Byggðasafns Vestfjarða 2025.
Lagt fram til kynningar.

5.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - sameining sýslumannsembætta - 2026010014

Lögð fram til kynningar erindi dómsmálaráðuneytisins, dags. 28. ágúst 2026, þar sem kynnt er til samráðs mál nr. 159/2026, "Drög að frumvarpi til laga á breytingu á ýmsum lögum vegna sameiningar sýslumannsembætta o.fl". Umsagnarfrestur er til og með 11. september 2026.
Lagt fram til kynningar.

6.Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026-2030 - 2026050225

Lagt fram til kynningar erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 1. september 2026, varðandi stefnumörkun á Landsþingi 2026.
Lagt fram til kynningar.

7.Náttúruhamfaratrygging - bótaábyrgð vegna uppbyggingar á hættulegum svæðum - 2025090065

Á 1339. fundi bæjarráðs var lagt fram erindi Náttúruhamfaratrygginga Íslands dags. 10. september 2025 um áhrif 16. gr. laga nr. 55/1992 ef byggingar eru reistar á svæðum sem fyrir fram er vitað að séu sérlega næm fyrir náttúruhamförum sem eru bótaskyldar hjá NTÍ. Erindinu var vísað til umfjöllunar í skipulags- og framkvæmdarnefnd.

Nú hefur borist áminning um skipulag byggða á þekktum hættusvæðum dags. 27. ágúst 2026 frá Huldu Ragnheiði Árnadóttir, forstjóra, f.h. Náttúruhamfaratryggingar Íslands.
Bæjarráð vísar erindinu til kynningar í skipulags- og mannvirkjanefnd.

8.Andlát Hans hátingar Haraldar V Noregskonungs - 2026080187

Lagt fram til kynningar erindi Jóns Ottós Gunnarssonar, Kjörræðismanns Noregs á Vestfjörðum, dags. 28. ágúst 2026, vegna andláts Hans hátignar Haraldar V Noregskonungs.
Bæjarráð þakkar erindið og sendir norsku þjóðinni samúðarkveðjur sínar.

9.Hafnarstjórn - 273 - 2608016F

Lögð fram til kynningar fundargerð 273. fundar hafnarstjórnar sem haldin var 27. ágúst 2026.

Fundargerðin er í 4 liðum.
Lagt fram til kynningar.
  • Hafnarstjórn - 273 Hafnarstjórn samþykkir viðauka 15 við framkvæmdaáætlun ársins 2026 vegna aukaverka við klæðningu og vísar málinu til bæjarsjórnar til afgreiðslu.

10.Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd - 47 - 2608012F

Lögð fram fundargerð 47. fundar skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar sem haldin var þann 27. ágúst 2026.

Fundargerðin er í 10 liðum.
Lagt fram til kynningar.
  • Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd - 47 Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd felur starfsmönnum að gera breytingar á reglunum í samræmi við umræður á fundinum og leggja þær svo fyrir bæjarstjórn til samþykktar.
  • Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd - 47 Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd felur starfsmönnum að gera minniháttar breytingar í samræmi við umræður á fundinum og vísar því í framhaldinu til bæjarstjórnar til samþykktar.

Fundi slitið - kl. 09:05.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?