Bæjarráð: Fyrirsjáanleiki nauðsynlegur í lagasetningu um veiðigjöld
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar leggur áherslu á að breytingar á veiðigjöldum og auðlindagjöldum verði gerðar í skrefum og með skýrum fyrirsjáanleika. Þetta kemur fram í umsögn Ísafjarðarbæjar um frumvarp til laga um breytingar á lögum um veiðigjald sem nú liggur fyrir Alþingi. Í umsögninni er áréttað að Ísafjarðarbær styður álagningu veiðigjalda og auðlindagjalda almennt en að fyrirsjáanleiki sé nauðsynlegur til að fyrirtæki í sjávarútvegi geti skipulagt fjárfestingar og uppbyggingu í samræmi við stefnu stjórnvalda.
28.05.2025
Fréttir
Lesa fréttina Bæjarráð: Fyrirsjáanleiki nauðsynlegur í lagasetningu um veiðigjöld