Aðventugleði Fjörugusu

Skrá nýjan viðburð


Jólaratleikur, fjölskyldugusa og hugsanlega jólasveinn!

Fjörugusan býður í skemmtilega aðventustund fyrir alla fjölskylduna. Við byrjum á jólaratleik við fjöruna þar sem krakkarnir leysa einfaldar þrautir og safna vísbendingum frá einni stöð til annarrar.

Að ratleik loknum geta fjölskyldur komið saman í heitri og ljúfri fjölskyldugusu og notið góðrar samveru. Að því loknu er tilvalið að setjast niður yfir kaffibolla í Fjörukaffi.

Og hver veit? Það er aldrei að vita nema jólasveinninn láti sjá sig á svæðinu.

Viðburðurinn hentar allri fjölskyldunni og er skemmtileg leið til að njóta aðventunnar saman.

Bæta í dagatal
Er hægt að bæta efnið á síðunni?