Alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa

Skrá nýjan viðburð


Sunnudaginn 15. nóvember tökum við þátt í alþjóðlegum minningardegi um fórnarlömb umferðarslysa. Þá minnumst við þeirra sem hafa látist, sýnum þeim sem glíma við afleiðingar slysa og aðstandendum þeirra samstöðu og þökkum viðbragðsaðilum fyrir þeirra störf.
 
Dagskrá
Kl. 14:30
Viðbragðsaðilar á svæðinu, lögregla, slökkvilið og björgunarsveitir, aka fylktu liði um Ísafjörð á helstu viðbragðstækjum svæðisins. Aksturinn endar við Félagsheimilið í Hnífsdal.
 
Kl. 15:00
- Teitur Magnússon flytur erindið „30 mínútur í köldum sjó – þegar allt þarf að ganga upp“.
- Séra Fjölnir Ásbjörnsson verður með hugvekju.
 
Að lokinni dagskrá verður boðið upp á vöfflur og kaffi.
 
Við hvetjum öll til að mæta og taka þátt í þessari samverustund.
Sjáumst í Félagsheimilinu í Hnífsdal.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?